15.12.1977
Efri deild: 27. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í B-deild Alþingistíðinda. (908)
113. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls lagði ég hér fram nokkrar fsp., gerði grein fyrir þeirri skoðun minni, að hér væri um mjög stórt mál að ræða og vegna þess væru því máli gerð allt of lítil skil í þeim skjölum sem þm. fengu í hendur. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir það, að ég hef fengið aðgang að ýmsum skjölum varðandi þetta mál. Það er hins vegar ljóst, að ég hef ekki haft nægilegt tækifæri til að kanna þetta mál svo vel sé á þeim eina sólarhring sem ég hef haft þessi skjöl undir höndum. En ég vil samt þakka honum fyrir þá viðleitni að veita mér aðgang að því sem hann hafði undir höndum.
Sem þm. höfum við orðið áhorfendur að því, að ýmis vinnubrögð eru viðhöfð í sambandi við ákvarðanatöku í stórum málum og smáum, og það er alveg ljóst, að stundum eru þau vinnubrögð góð, stundum ekki nægilega góð, og eiga ýmsir þátt af því og þá þm. einnig. Í svo stóru máli sem þessu, eins og ég met það, tel ég að vanda þurfi allan undirbúning. Menn þurfa að gera sér ljósa grein fyrir því, hvaða áhrif slík ákvörðun hefur í þjóðfélaginu sem heild, hvaða áhrif slík ákvörðun hefur á arðsemi í orkubúskapnum, og ég tel að það liggi ekki nægilega vel fyrir. Ég hef áður gert grein fyrir því, að ég telji ótímabært að hefja rekstur á Orkubúi Vestfjarða nú, án þess að ég hafi út af fyrir sig neitað að taka þátt í því að slíkt gæti orðið. En ég vil gera mér betur grein fyrir því, hvert verður framhaldið. Ég vil ekki vera þátttakandi í því aðeins að taka fyrsta hlutann af Rafmagnsveitum ríkisins án þess að vita hvernig skuli farið með afganginn.
Það er alveg ljóst, að það er ekki í reynd vitað hvernig þessi rekstur verður. Það getur enginn spáð svo fram í tímann, hvorki um Orkubú Vestfjarða né aðra hluti. En mér sýnist að eftir að lögin um Orkubú Vestfjarða voru samþykkt hafi menn fyrst fyrir alvöru farið að íhuga og leggja niður fyrir sér hvernig þetta fyrirtæki yrði rekið. Ég gat ekki skilið betur framsögu hv. formanns iðnn. en að fyrsta ákvörðun, sem þar hafi verið tekin, hafi verið sú, að það hafi komið í ljós, eftir að menn fóru að íhuga þessi rekstrarmál, að Orkubú Vestfjarða gæti með engu móti staðið undir þeim skuldum sem á eignum Rafmagnsveitna ríkisins á Vestfjörðum hvíldu. Þetta kom ljóslega fram í grg. Rafmagnsveitnanna á sínum tíma. Í framhaldi af því er tekin sú ákvörðun, að Orkubú Vestfjarða yfirtaki aðeins 500 millj. af þessum skuldum sem munu verða um næstu áramót rúmar 700 millj., og síðan yfirtaki ríkissjóður 2000 millj. Þegar þessi niðurstaða er fengin .og heimildir fyrir því af hæstv. ríkisstj. að standa að þessu, þá fara menn að íhuga það, hvað stóran hluta Orkubú Vestfjarða eigi að fá af verðjöfnunargjaldinu, og komast að þeirri niðurstöðu, að það muni láta nærri, að það muni vera um 20%. Nú skiptir í sjálfu sér ekki máli á hverju menn hefðu byrjað í þessum efnum, því að allt er þetta hlutar af sömu heildinni, annars vegar niðurfellingin á skuldunum og síðan hve mikinn hluta Orkubúið á að fá af verðjöfnunargjaldinu. En ég vil lýsa þeirri skoðun minni, að ég tel að hér sé um svo stóra ákvarðanatöku að ræða, að þetta mál þurfi að undirbúa miklu betur. Og við skulum gera okkur grein fyrir því, hvaða ákvarðanir hér er verið að taka, eins og það kemur mér fyrir sjónir.
Í fyrsta lagi er verið að taka þá ákvörðun að ganga til móts við, eftir því sem mér hefur skilist, einróma óskir Vestfirðinga, sveitarstjórnarmanna á Vestfjörðum, um að þetta Orkubú verði stofnað. Það er út af fyrir sig mjög góð ákvörðun, svo langt sem hún nær. En eins og ég hef áður rakið hafa menn ýmsar óskir í öðrum landshlutum og annars staðar í landinu sem stangast á við þessar óskir, og ekki hefur verið gerð nægilega góð tilraun til að samræma þessa hluti.
Í öðru lagi er verið að taka þá ákvörðun að stíga fyrsta skrefið í því að leggja Rafmagnsveitur ríkisins niður. Það er verið að taka undan rekstri Rafmagnsveitnanna ekki aðeins orkudreifingu á Vestfjörðum, heldur einnig orkuvinnslu og orkurannsóknir.
Í þriðja lagi er verið að taka þá ákvörðun óbeint, eins og ég skil það, að greiða orkuverð niður beint úr ríkissjóði. Það hefur hingað til verið stefna í landinu, að þeir, sem njóta orkunnar, verði að greiða fyrir hana og síðan gerð tilraun til þess að jafna verð á milli notenda með verðjöfnunargjaldi. Sú verðjöfnun hefur ekki verið það mikil að jafnræði ríkti í þessum málum, og að mínum dómi þyrfti að auka hana. En hér er sem sagt verið að taka þá ákvörðun, að ríkissjóður og þá Orkusjóður, af þeim tekjum sem hann hefur, taki á sig 2000 millj, af skuldum Rafmagnsveitna ríkisins vegna Vestfjarða. Hafa menn trú á því, að það verði staðnæmst hér? Hafa menn trú á því, að það verði ekki ýmsir aðrir í landinu og aðrir landshlutar og önnur fyrirtæki í orkumálum í landinu sem muni óska eftir því og biðja ríkissjóð vinsamlegast að meðtaka og yfirtaka þeirra skuldir? Ég leyfi mér að vara við því að stíga þetta skref án þess að menn hyggi að framhaldinu.
Ég ætla ekki að orðlengja frekar um þessi mál. Það eru ýmsar spurningar sem eru enn þá uppi í mínum huga í sambandi við þennan rekstur.
Það er í fyrsta lagi sú spurning, sem ég veit að verður ekki svarað til fullnustu, að mér sýnist að það verði ekki gengið fram hjá því, miðað við hvaða rekstur sé rekinn á hagkvæman hátt, að með mörgum einingum muni koma aukinn rekstrarkostnaður vegna stjórnar, vegna tæknimanna, vegna birgðahalds. Það er alveg ljóst, að efnið, sem notað er til þessara hluta, er mjög svipað, og þess vegna hefði mér þótt eðlilegt, jafnvel þótt það væru stofnuð mörg fyrirtæki, að það væri sameiginlegt birgðahald að einhverju leyti, og það má vel vera að svo verði.
Í öðru lagi liggur það fyrir, að stofnkostnaðurinn verður stórlega greiddur niður, og við sjáum ekki framhald á því.
Í þriðja lagi er það ljóst, að fyrir þetta smáar einingar verður erfiðara að mæta óvæntum og skyndilegum áföllum, og ég verð að segja það fyrir mig, að mér fyndist eðlilegt að þar væri einhver samtrygging. Ég veit til þess að rafstrengurinn yfir Arnarfjörð hefur bilað mjög oft á þessu ári og þar hefur orðið mikill viðgerðarkostnaður. Ég skal ekki fullyrða hvað hann hefur verið mikill, en einhver hefur sagt mér 70 millj. kr., og ég býst við að þessi viðgerðarkostnaður sé þá einhvers staðar á bilinu 15–20% af öllum tekjum Rafmagnsveitna ríkisins á Vestfjörðum. Menn þurfa náttúrlega líka að huga að því, hvernig eigi að mæta svona áföllum sem alltaf geta orðið í öllum landshlutum. Ég býst við, að það geti orðið erfitt fyrir lítið fyrirtæki að mæta því, nema einhvers konar samtrygging sé.
Einnig er ljóst að það verður erfiðara með öll samrekstrarmál, eftir að svo er komið að fleiri og fleiri aðilar bætast í hópinn. Mér hefur verið sagt, að rafmagnsveitan í Vestmannaeyjum kaupi t.d. raforku af RARIK á ákveðnu gjaldi fyrir kwst., miðað við ákveðinn afltopp á ári. Þetta mun koma þannig út, að til þess að fara ekki yfir þennan topp keyrir Rafmagnsveita Vestmannaeyja dísilvélar úti í Vestmannaeyjum á mestu álagstímum og til þess að halda þessum toppum niðri. Þetta er jafnvel gert á þeim tíma þegar nægileg orka er fyrir hendi hjá Landsvirkjun og vatn rennur til sjávar, og þetta getur á engan hátt verið skynsamlegt. Þess vegna er ljóst að það þarf að huga mjög að samrekstrarmálum í sambandi við þessa hluti.
Ég hef frá upphafi, frá því að ég sá þetta mál fyrst, viljað fara varlega í þessum efnum og viljað fá meiri heildaryfirsýn í þessum orkumálum. Ég hafði hugsað mér að fara af athygli yfir þau gögn, sem ég fengi, og hlusta á þær umr., sem hér færu fram, og ég hef ekki fengið sannfæringu fyrir því, að hér væri verið að stíga rétt skref við núverandi aðstæður. Þess vegna hef ég hugsað mér að leggja hér fram brtt., og ég legg hana nú fram, vegna þess að ég taldi ekki eðlilegt að gera það fyrr en við þessa umr., fyrr en ég hefði hlýtt á mál nm. í iðnn. Ég vil leggja fram brtt., sem er þess eðlis að verðjöfnunargjaldinu skuli varið til að bæta fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins, og undirstrika með því þá skoðun mína, að ég tel ótímabært að hefja rekstur á Orkubúi Vestfjarða. Ég vil koma því á framfæri, að ég tel eðlilegra að hinkra við a.m.k. eitt ár enn til að fá betri yfirsýn yfir þessi mál, til þess að fá betri yfirsýn yfir það, hvað muni gerast í öðrum landshlutum og hvað muni vera með það fyrirtæki, Rafmagnsveitur ríkisins, og hvað skuli gera við það fyrirtæki og allt það starfsfólk sem þar starfar. En ég vil hins vegar undirstrika það, að ég er ekki á þennan hátt að segja að það komi ekki til greina að byrja að reka þetta Orkubú. Það er margt gott við það, t.d. að geta sameinað þarna bæði rekstur á hitaveitum og rafmagnsveitum og fleiru. En ég get ekki fallist á það, að svo mjög liggi á í þessum málum að það sé ekki rétt að hinkra við. Ég býst einnig við því, að það skipti verulegu máli fyrir Orkubúið á Vestfjörðum, hvenær það tengist öðrum orkuveitum. Ekki gerist það á næsta ári, það er ljóst, hvenær sem það verður. Þess vegna bygg ég að það geti einnig verið skynsamlegt fyrir Vestfirðinga að sjá hvernig þeim málum lyktar.
En ég vil, herra forseti, leggja hér fram þessa skriflegu brtt.