15.12.1977
Efri deild: 27. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1305 í B-deild Alþingistíðinda. (910)
113. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Jón Helgason:
Herra forseti. Mig langaði aðeins að segja nokkur orð vegna þessa nýja ákvæðis sem sett er hér fram í þessu frv. um skiptingu á verðjöfnunargjaldinu, enda þótt búið sé að ræða það nokkuð.
Ég vil undirstrika það, að ég tel að raforka eigi að vera seld öllum landsmönnum á sama verði og þar eigi Vestfirðingar vitanlega að sitja við sama borð og aðrir og ekki vera verr settir. Og ég vil vona að ávinningur verði svo mikill af þeirri samvinnu Vestfirðinga á sviði orkumálum sem stefnt er að með Orkubúinu, að þeir nái því marki.
Það hafa hins vegar komið fram hér í umr. ýmsar spurningar sem hafa vaknað í sambandi við samninginn sem gerður hefur verið milli ríkisins og Orkubús Vestfjarða. Ég skal ekki fara að ræða mörg atriði í því sambandi. Það hefur verið minnst hér á samninga um fjármagn og annað slíkt. Ég vil aðeins benda á það, sem beinlínis kemur þessu frv. við, þ.e.a.s. verðjöfnunargjaldinu. Mér sýnist að það sé þegar að koma í ljós, að það hafi ekki verið gengið á heppilegasta hátt frá sambandinu milli Orkubús Vestfjarða og Rafmagnsveitna ríkisins, úr því að það er strax núna, áður en Orkubúið tekur til starfa, farið að jagast hér á Alþ. um hvernig á að skipta verðjöfnunargjaldinu.
Ég held að það sé algerlega ófær leið, ef á að koma þessu þannig fyrir að það þurfi að gera þetta árlega. Ekki er hægt að gera þetta langt fram í tímann, ef á að ná því marki, að allir verði jafnsettir. Og hversu flókið verður það ekki ef orkubúunum fjölgar? Ég held því að það verði að vera einhvern veginn sú samvinna og samband á milli Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða og annarra landshlutaorkubúa, ef stofnuð verða, að það verði að nokkru leyti rekið sem ein heild, en ekki svona alger skipting. Það er líka verið að fara, finnst mér, að nokkru leyti í öfuga átt þegar ákveðin er fyrir fram skipting á gjaldi sem á að ganga til verðjöfnunar, en ekki farið eftir þörfinni eftir á. Ég dreg samt í efa að fjvn. sé heppilegur aðili til að annast þessa skiptingu, eins og hv. 5. þm. Norðurl. e. leggur til. Ég held, að það þurfi að vera eitthvert fastara skipulag á því en það, og tel því, að það hljóti að vera algert neyðarúrræði að fara út á þessa braut. (Gripið fram í.) Ég tel að það sé ekki hlutverk fjvn. að fara að ofan í rekstrarreikninga hvers einstaks fyrirtækis og úrskurða um slíkt, það sé heppilegra að fela Rafmagnsveitum ríkisins að sjá um það.
En ég skal ekki fjölyrða um þetta, vildi aðeins leggja áherslu á það, að ég held að þetta sé algert neyðarúrræði, að vera að fara þessa leið. Það getur vel verið, að að þessu sinni sé það óhjákvæmilegt vegna þess samkomulags sem búið er að gera, til þess að það verði ekki brotið niður. Ég skal ekki fullyrða um það.
Mig langaði aðeins í lokin, vegna þess sem fram kom í ræðu hæstv. iðnrh. við 1. umr. þessa máls, að varpa fram þeirri spurningu, hvort þessi samningur eigi að marka stefnuna í sambandi við uppgjör á orkuverum og öðrum eignum í fjórðungum, hvort Sunnlendingar megi vænta sömu kjara, ef eða þegar þeir stofna sitt orkubú og yfirtaka þau orkuver sem komið hefur verið upp í Sunnlendingafjórðungi, eða hvort það eigi að vera einhverjar aðrar reglur sem gildi þar.