15.12.1977
Neðri deild: 31. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1323 í B-deild Alþingistíðinda. (926)

124. mál, umferðarlög

Flm. (Ellert B. Schram):

Virðulegi forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 152 að flytja frv. til I. um breyt. á umferðarlögum, sem felur í sér að inn komi nýtt ákvæði sem verði svo hljóðandi:

„Dómsmrh. er heimilt að leyfa aksturskeppni á vélknúnum ökutækjum við aðstæður og undir eftirliti, sem nánar verður kveðið á um í reglugerð sem ráðh. setur. Í þeirri reglugerð er heimilt að víkja frá hámarkshraða skv. 50. gr.“

Eins og flestum er kunnugt um, er nú að ryðja sér til rúms margvísleg aksturskeppni meðal áhugamanna á þeim vettvangi og við höfum nú þegar fylgst með slíkri keppni hér á landi. Hér er um að ræða fyrst og fremst íþrótt sem reynir á hæfni manna í akstri og á að stuðla að því, að þeir, sem þátt taka í slíkri keppni, og aðrir, sem með þeim fylgjast, fái betri skilning á því, hvað sé nauðsynlegt að hafa í haga þegar menn stýra ökutækjum. Keppni af þessu tagi er orðin afar vinsæl og hér hafa verið stofnuð samtök manna um þessi málefni. Þau samtök hafa eindregið óskað eftir því, að sett yrðu í lög ákvæði sem heimila slíka aksturskeppni við eðlilegar aðstæður og undir eftirliti.

Þetta mál hefur verið borið undir ýmsa aðra aðila, svo sem Náttúruverndarráð, og þeir flestir hverjir, ef ekki allir, eru eindregið meðmæltir því, að slík lagaákvæði séu sett til þess að koma í veg fyrir að keppni af þessu tagi fari fram án eftirlits, sem getur valdið því að náttúru sé spillt og vegir eða landslag eyðilagt. Ég held því, að það sé í þágu bæði þeirra, sem áhuga hafa á þessu málefni, svo og þeirra, sem vilja stuðla að bættri umgengni við náttúruna og við landið, að þetta mál nái fram að ganga. Hér er ekki um stórt mál að ræða, sem ég þarf ekki að hafa fleiri orð um, en legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2, umr. og hv. allshn.