15.12.1977
Sameinað þing: 32. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (932)

133. mál, gagnkvæmar fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga

Utanrrh. (Einar Ágústsson):

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að gera hv. Alþingi grein fyrir nýju samkomulagi við Færeyinga um gagnkvæmar fiskveiðiheimildir sem undirritað var hér í Reykjavík s.l. mánudag, 12. des., en ríkisstj. hefur lagt fram till. til þál. um staðfestingu þess á þskj. 184.

Hér er um að ræða sams konar samkomulag og gert var á s.l. ári, annars vegar um loðnuveiðar Færeyinga hér við land og hins vegar kolmunnaveiðar íslenskra skipa innan færeysku fiskveiðimarkanna. Magnið, sem leyfilegt er að veiða að þessu sinni, var ákveðið 35 þús. smálestir í stað 25 þús. í fyrra. Styðst ákvörðun um þetta við álit fiskifræðinga sem telja loðnustofninn það sterkan að veiðar þessar séu innan við mörk skynsamlegar nýtingar á honum. Veiðitíminn takmarkast við vetrarvertíð. Þess ber að geta, að Færeyingar hefðu kosið að geta veitt hér meira af loðnu, en sættu sig eftir atvikum við þessa niðurstöðu.

Þrátt fyrir þessa breytingu á leyfilegu hámarksaflamagni var af okkar hálfu haldið við það, að skipafjöldi Færeyinga við loðnuveiðar yrði óbreyttur, þ.e. að af þeim 15 skipum, sem leyfi hafa, yrðu aldrei fleiri en 8 skip innan fiskveiðimarkanna í senn. Er með þessu komið í veg fyrir að óeðlilega þröngt verði um okkar eigin skip sem veiðar stunda á sömu slóðum.

Eins og fyrr er færeysku skipunum gert skylt að hlíta öllum sömu reglum og íslensk skip við loðnuveiðar. Í samkomulaginu nú var lögð sérstök áhersla á reglurnar um lágmarksstærð og tekið inn ákvæði um að við löndun skuli sérstakt eftirlit haft með afla og lágmarksstærð. Aflamagn her að tilkynna, bæði áætlaðan afla og veiðistað, við brottför af miðum og staðfesta aflatölur eftir löndun.

Gagnkvæmni samkomulagsins byggist sem fyrr á því, að Íslendingum er heimiluð veiði kolmunna innan fiskveiðimarka Færeyja, nú allt að 35 þús. smálestum. Er þar með skapaður grundvöllur fyrir áframhald og nokkra aukningu þeirra veiða, eftir því sem íslenskir útgerðarmenn vil ja notfæra sér þennan möguleika. Í hinu nýgerða samkomulagi er veiðitíminn lengdur og nær nú til alls ársins, en takmarkaðist áður við tímabilið marsbyrjun til júníloka. Þessi lenging tímabilsins hefur gildi þar sem kolmunnarannsóknir þykja benda til þess, að fiskurinn gangi á Færeyjasvæðinu lengur ársins en áður var talið. Í því skyni að greiða fyrir þessum veiðum var nú einnig ákveðið að halda áfram sameiginlegum rannsóknum og gera þær víðtækari en áður.

Um þetta samkomulag vil ég almennt segja að bæði hér á hv. Alþ. og meðal þjóðarinnar hefur frá fornu fari verið sterkur vilji til náins og góðs sambands við Færeyinga vilji til þess að koma til móts við þarfir þeirra og óskir, eftir því sem hefur verið talið hægt. Ég leyfi mér því að vona að þessu samkomulagi verði vel tekið og að það hljóti staðfestingu.

Það ber einnig að hafa í huga, að slíkt samkomulag er tvímælalaust til þess fallið að styrkja stöðu okkar í hinum alþjóðlegu umræðum um hafréttarmál. Drögin að hafréttarsáttmála, sem enn eru til meðferðar á Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, gera beinlínis ráð fyrir því, að strandríkin veiti öðrum bjóðum hlutdeild í veiðum fiskstofna sem þau fullnýta ekki sjálf, en svo er nú ástatt um loðnustofninn.

Í viðræðum þeim við Færeyinga, sem fram fóru í vikunni, féllust þeir einnig á að hlutfall þorsks í samanlögðum 17 þús. smálesta handfæra- linu- og togveiðiafla þeirra hér við land minnki um 1 þús. smálestir, úr 8 þús. í 7 þús. smálestir, á árinu. Um þessar veiðar gildir áfram samkomulagið frá 20 mars 1976, sem samþ. var á Alþ. 18. maí í fyrra. Var nú undirrituð sérstök bókun varðandi framkvæmd þess þar sem kveðið er á um umrædda lækkun þorskaflans. Í bókuninni er einnig slegið fastri skyldu færeyskra skipa til að hlíta hvers konar veiðibanni eða öðrum veiðitakmörkunum sem íslensk stjórnvöld ákveða. En algjört veiðibann var sem kunnugt er ekki komið til sögunnar þegar áður nefnt samkomulag frá í mars í fyrra var gert. Ég þarf að sjálfsögðu ekki að útskýra hér fyrir hv. alþm. að umrædd minnkun á þorskafla Færeyinga hentar vel núverandi aðstæðum.

Að síðustu vil ég svo skýra frá því, að í viðræðunum við Færeyinga urðu aðilar sammála um að hafa nána samvinnu sín á milli og við önnur hlutaðeigandi lönd um síldarrannsóknir á Norður-Atlantshafi, einkum með tilliti til svæðisins milli Íslands og Færeyja og þar í grennd m.a. innan vébanda Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Var undirrituð um þetta sérstök yfirlýsing.

Bókunin varðandi minnkun þorskaflans og yfirlýsingin um hinar sameiginlegu síldarrannsóknir eru að mínu mati ekki þess eðlis að þær krefjist formlegrar staðfestingar Alþingis og eru því ekki lagðar hér fyrir, aðeins frá þeim skýrt.

Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, leggja til að þáltill. verði vísað til hv. utanrmn. að lokinni umr.