15.12.1977
Sameinað þing: 32. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (936)
133. mál, gagnkvæmar fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Forseti. Út af fyrirspurn hv. 1. landsk. þm. varðandi fiskveiðisamningstímann við Færeyinga, þá er því til að svara, að það er bægt að segja þessum samningi upp hvenær sem er með 6 mánaða fyrirvara. Hann er ekki tímabundinn. Hann var gerður með þeim hætti, að segi hvorugur aðili samningnum upp, þá framlengist hann óbreyttur. Færeyingar féllust á frjálsa takmörkun að þessu leyti, og það sem gerir það að verkum, að ríkisstj. hefur ekki tekið neina ákvörðun um að segja þessum samningi upp, er að hún metur það og vegur hvernig ástandið er í fiskveiðimálum þessarar þjóðar. Það hefur verið gengið nærri færeyskum fiskimiðum, og Færeyingar veiða enn þá um 60% af heildarafla sínum á fjarlægum fiskimiðum. Og við höfum talið það vera mjög slæmt út á við og gagnvart Hafréttarráðstefnunni að segja upp þessum samningi, þó að við þurfum á þessum aflakvóta öllum að halda. Þá yrði sagt að svona ætli strandríkin að nota til hlítar hafréttarsáttmálann, og við getum átt á bættu að þjóðir risi upp og geri handalag um að breyta orðalagi þessara draga. Þá erum við í miklu stærri og veigameiri hættu en 7 þús. tonna þorskveiði felur í sér.
Ég held að við megum ekki einblína mjög á 7000 eða 8500 tonn, eins og þorskveiði getur orðið hjá útiendingum, þó að við þurfum sannarlega á henni að halda, því að við verðum nú að tefla mjög vandasamt tafl í þessum efnum. Í staðinn fyrir að hafa nýtt aðeins um 50% af botnfiskaflanum, þá erum við búnir að losna við stærstu fiskveiðiþjóðirnar, og það er auðvitað það sem skiptir langmestu máli, fyrst og fremst mestu máli að losna við bresku togarana af íslenskum fiskimiðum og svo aftur nú síðast Þjóðverja, sem eru auðvitað stórir sigrar, þannig að við verðum, ef þessir samningar verða með þessum hætti út næsta ár, með 3% af þorskaflanum til annarra þjóða, en förum í 97% sjálfir, frá því að hafa verið með um 40% og upp í 50% þangað til nú á allra síðustu árum.
Undir þessum lið vil ég nú eiginlega frábiðja mér að ræða um hina margumtöluðu flotvörpu, sem er afskaplega vinsælt umræðuefni og ályktunarefni, en nú eru skiptar skoðanir í þeim málum og það mjög. Ég sendi ekki í fjölmiðlana, eins og ýmsir aðrir, þó að komi eitthvað slíkt. Ég fékk skeyti eftir samþykkt L.Í.Ú., sem samþ. með naumum meiri hl. áskorun á sjútvrh. að banna flotvörpuna. Þá fékk ég skeyti frá flestöllum togurum landsins sem voru á veiðum, eitthvað yfir 40 togurum, þar sem þeir skora aftur á sjútvrh. að hafa þá samþykkt að engu. Fiskiþing felldi bann við flotvörpu, og Farmanna- og fiskimannasamband Íslands gerði líka ályktun í þá átt. En viðræður við mig átti n. frá þeim sem lagði aftur mikla áherslu á flotvörpuna. Sumir menn trúa því, að þetta sé skaðræðisveiðarfæri, en ég er annarrar skoðunar persónulega. Ég tel að þetta veiðarfæri komi með besta hráefnið að landi. Eini skaðinn, sem getur skeð þar, er að það séu of stór höl sem eiga sér stað einstaka sinnum, en það er auðvitað ekki nema lítið brot. Ég hef séð fisk úr flotvörpunni, bæði hér sunnanlands, vestan og norðan, og er ekki um deilt, að það er mjög gott hráefni. En svo er aftur annað sem skiptir að mínum dómi miklu meira máli. Það er í sambandi við veiðarfæri og veiðarfæratækni, að við eigum auðvitað að nota þá tækni að við veiðum sem mest af fiski innan þeirra stærðarmarka og á þeim svæðum sem við viljum leyfa að veiða fisk. Það gerir það að verkum að útgerðarkostnaðurinn verður þá minni og tekjur sjómanna hærri.
Við getum auðvitað bannað flotvörpu, víð getum bannað að nota fisksjá í skipum og jafnvel dýptarmæla, og þá verða skipin auðvitað miklu lengur að fiska upp í þennan aflakvóta. Við getum líka bannað net með öllu og sagt öllum að fara hér eftir á skak. Þá þurfum við ekki að gera neinar ráðstafanir í sambandi við möskvastærð eða annað þess háttar. En þetta hefur ekki verið stefna okkar Íslendinga í þessum efnum, hvar sem við höfum búið. Við höfum veríð að auka tækni okkar á öllum sviðum og víð allar veiðar, og ég er hræddur um að afköstin í loðnuveiðum væru nú ólíkt minni ef við værum með tvo snurpubáta og herpinót. Þetta er það sem mér finnst fyrst og fremst eiga að vera ríkjandi. Hitt er alveg rétt hjá hv. 1. landsk. þm., að það er ákaflega erfitt að takmarka þetta gersamlega nema með margvíslegum ráðstöfunum sem er reynt að koma niður á sem flesta. Og það er alveg rétt, það hefur verið langmest gengið á botnvörpuskipin eða á togarana í þessum efnum. Þeir hafa verið látnir stöðva helst sínar veiðar. En höfuðatriði málsins er auðvitað að fá útgerðarmenn og sjómenn með öllum ráðum til þess að fara yfir í aðrar veiðar og minnka á þann hátt sóknina í þorskinn, en auka sóknina í þá fiskstofna sem eru vannýttir eða allsendis ónýttir, eins og enda er til í dæminu. En það er eins og allir þekkja, það er alltaf erfitt með alla nýbreytni. Það eru varla nema 20 ár síðan sjómenn spörkuðu humrinum fyrir borð eins og hverju öðru óæti sem væri alls ekki hægt að hirða. Þannig tekur allt sinn tíma, alveg eins og það tekur bæði þessa þjóð og aðrar að breyta um matarvenjur.
Ég sem sagt vil ekki fara að ræða frekar um flotvörpuna, því að það mundi lengja mjög umr. í þessu máli, en ég vildi láta þetta koma fram í fullri vinsemd.