16.12.1977
Neðri deild: 32. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (993)
126. mál, almannatryggingar
Frsm. minni hl. (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Í tíð síðustu ríkisstj. gerðist það á hverju ári að lögð voru fyrir Alþ. frv. um veigamiklar breytingar á almannatryggingum, sjúkratryggingum og heilbrigðislöggjöf. Þetta voru allt mjög efnislegar till. um að breyta þessum kerfum og bæta þau, auka rétt þeirra sem erfiðast eiga í þjóðfélaginu og eru háðir því, að almannatryggingakerfið og heilsugæslukerfið séu sem fullkomnust í landinu. Á sviði almannatrygginga var komið upp hér á landi smánarlegt ástand eftir valdatíð viðreisnarstjórnarinnar.
Alþfl. hefur oft hælt sér að því að hafa haft forustu um almannatryggingar á Íslandi, og hann má vissulega hæla sér af því sem hann hefur þar gert vel. En því miður seig á aðra hlið meðan viðreisnarstjórnin var við völd á Íslandi. Hlutur almannatrygginga varð minni og minni og þeir, sem áttu framfæri sitt undir bótum almannatrygginga, lifðu hér á Íslandi við smánarleg kjör í samanburði við það ástand sem var t.a.m. annars staðar á Norðurlöndum. Mikið stórmál var að kippa þessu í liðinn, og það var eitt af aðalverkefnum þeirrar ríkisstj. sem stofnuð var 1971. Þá var unnið mjög myndarlega að þessum málum. Það voru færðir til fjármunir svo milljörðum kr. skipti í þjóðfélaginu til þess að tryggja hag þeirra bágsöddustu, en að sjálfsögðu varð jafnframt að skerða hag þeirra, sem höfðu borið mest úr býtum í þjóðfélaginu. Um þetta var fjallað á hverju einasta þingi. Gerðar voru ákaflega miklar breytingar á almannatryggingalöggjöfinni, bætur voru hækkaðar mikið í prósentutölu en prósentur eru oft villandi. Þær greiðslur, sem aldrað fólk og öryrkjar fengu í lok tímabils þeirrar ríkisstj. voru engin rausn heldur, því fer mjög fjarri. Ástandið hér á Íslandi er þannig, að tekjur þessara þjóðfélagshópa eru miklu lægri en annars staðar á Norðurlöndum. En að þessu var sem sagt unnið mjög rösklega í tíð fyrrv. ríkisstj., gerðar voru miklar breytingar á þessum sviðum og gengið frá föstum tekjustofnum til að standa undir þeim breytingum. Ég segi fyrir mig, ég hef ekki haft eins mikla ánægju af að vinna að nokkru máli eins og einmitt þessum breytingum.
Það hefur einnig gerst í tíð núv. ríkisstj., að á hverju ári hafa verið flutt frv. um breytingar sem eru taldar snerta almannatryggingar. En þær breytingar hafa ekki verið neinar efnisbreytingar á kerfi almannatrygginga, þær hafa einvörðungu fjallað um tekjuhliðina, hvernig eigi að safna peningum til að standa undir almannatryggingakerfinu. Ástæðan til þessa er að sjálfsögðu sú óðaverðbólga sem hefur vaxið út yfir öll mörk í tíð núv. ríkisstj. Hún veldur því, að ekkert stenst nema í nokkra mánuði, og tekjustofnar, sem voru fastir og öruggir í sambandi við almannatryggingar og heilsugæslumál, hafa hrunið niður í þessari óðaverðbólgu. Hæstv, heilbrrh. hefur flutt frv. á hverju einasta þingi, en einvörðungu um þessa hlið málsins.
En hæstv. ráðh. hefur ekki látið þar við sitja. Við samþykktum í tíð fyrrv. ríkisstj. nýja löggjöf um heilbrigðismál, mjög vandaða löggjöf, sem lengi hafði verið undirbúin, og menn samþykktu hana einróma hér á hinu háa Alþ. eftir breytingar sem því miður varð að fallast á. Ég minni þar á till. frá hv. þm. Ingólfi Jónssyni um að skera Suðurlandskjördæmi út úr þessari heildarlöggjöf og ég held að það hafi verið mjög röng stefna. Á það var fallist til að reyna að ná samstöðu hér á hinu háa Alþ. Ég hygg að öllum þm. hafi verið ljóst að þessi löggjöf fól það í sér, að Íslendingar ætluðu að verja meiri hluta af þjóðartekjum sínum en áður var til þess að efla heilsugæslukerfið í landinu. Ég held að það hafi ekki farið fram hjá nokkrum manni að þetta fólst í löggjöfinni. En því miður hefur núv. heilbrrh. ekki staðið við það.
Í tíð fyrrv. stjórnar var gengið frá ýmsum mjög veigamiklum þáttum í þessu kerfi. Til að mynda var gengið frá ákvörðun um byggingu geðdeildar við Landsspítalann í Reykjavík, en vandi geðsjúklinga er einhver mesti heilbrigðisvandi sem Íslendingar eiga við að etja. Gengið var frá því máli í öllum atriðum. Undirbúningur var ákaflega vandaður. Gerð var fullgild framkvæmdaáætlun og veitt fé í samræmi við þá áætlun í tíð fyrrv. ríkisstj. Samkvæmt þeirri áætlun átti geðdeildin að vera fullbúin og taka til starfa nú um næstu áramót, áramótin 1977–1978.
Ég held að hæstv. heilbrrh. ætti að hugsa um það um jólin, hvort það hefði ekki verið skemmtilegt fyrir hann að geta vigt geðdeildina t.a.m. á nýjársdag. Hann hefði þá fest nafn sitt í sögu íslenskra heilbrigðismála. En því miður hefur þetta ekki gerst. Hæstv. ráðh. hefur skorið niður öll framlög til þessarar deildar. Hún verður ekki tilbúin um þessi áramót, sem nú eru skammt undan. Hún verður ekki tilbúin fyrr en á næsta áratug. Hæstv. ráðh. geymist ekki í sögu þessarar heilbrigðisstofnunar sem frumkvöðull, heldur sem dragbítur.
Þetta er ekki eina dæmið á þessu sviði. Fjallað var um Fjórðungssjúkrahús Norðurlands í tíð fyrrv. ríkisstj. Gengið var frá áætlun um hvernig að þeirri framkvæmd skyldi staðið, og þeirri framkvæmd átti að ljúka á næsta áratug. Ég gegndi þá starfi heilbrrh, og fékk á mig ámæli frá þeim þm. Sjálfstfl. í Norðurlandskjördæmi um að þarna væri gert ráð fyrir allt of hægum vinnubrögðum. Hvað hefur gerst í tíð núv. heilbrrh.? Framkvæmdum við þessa mikilvægu miðstöð heilbrigðisþjónustu á Íslandi hefur verið frestað svo mikið að hún verður ekki fullgerð á næsta áratug, heldur á næstu öld. Þannig hefur verið staðið að fjölmörgum þáttum öðrum. Það er verið að taka upp sama háttinn og áður var að mylgra allt of litlum upphæðum á allt of marga staði, í stað þess að reyna að vinna skipulega og ljúka verkefnum eins fljótt og unnt er.
Fyrirmæli eru um það í lögum um heilbrigðisþjónustu, að gerð skuli framkvæmdaáætlun og henni skuli fylgt. Ég hef áður vakið athygli hins háa Alþingis á því, að hæstv. heilbrrh. hefur ekki látið vinna þetta verk. Hann aðhyllist handahófsvinnubrögð á þessu sviði.
Eitt dæmi um þetta atriði er raunar á dagskrá hjá okkur þm. núna. Ég hef vakið athygli á því áður, að það er ekki gert ráð fyrir því í till. meiri hl. fjvn., að lokið verði við slysadeild Borgarspítalans á næsta ári, en það er knýjandi nauðsyn, og að kasta peningum í steinsteypu á þessum verðbólgutímum án þess að steinsteypan komi að gagni er versta meðferð á fjármunum sem hægt er að hugsa sér. Við eigum að ljúka verkefnum, sem búið er að undirbúa að fullu, á sem allra skemmstum tíma. Þarna er að verki óðaverðbólgan, þessi hroðalega meinsemd sem tröllríður Íslensku þjóðfélagi. Þessi meinsemd gerir það að verkum, að engar áætlanir standast nema í nokkra mánuði í hæsta lagi. Það er ekki hægt að gera áætlun til eins árs af nokkru viti. Við erum nú að ganga frá fjárl., en við vitum ákaflega vel að þetta er einskisvert starf, það stendur ekki steinn yfir steini eftir nokkra mánuði ef þessi verðbólguþróun heldur áfram.
Eins og ég minntist á áðan, fjalla frv. hæstv. heilbrrh. einvörðungu um fjármuni og ekkert nema fjármuni. Ráðh. er að glíma við draug sem hann hefur sjálfur tekið þátt í að vekja upp, verðbólgudrauginn. Ég vil vekja athygli manna á því, að þetta ástand, þessi óðaverðbólga sem er í landinu, er stórhættulegt sjálfstæði okkar og allri framtíð. Verðbólgan hefur ekki aðeins áhrif á opinberar framkvæmdir í landinu, þannig að engar áætlanir standast nema í nokkra mánuði. Hún hefur, eins og ég hef stundum minnst á áður hér á hinu háa Alþ., mjög alvarleg áhrif á siðgæðisvitund manna. Við skulum minnast þess, að siðgæðisvitund er nauðsynleg hverjum einstaklingi og hverju heilbrigðu þjóðfélagi. Siðgæðismælikvarðar eru ekki eilífir, þeir eru í vissum tengslum við þjóðfélagsaðstæður og þjóðfélagsöfl, en siðgæðisviðhorf lifa samt mjög lengi og oft langt fram yfir þann tíma þegar reglur þessar urðu til. Enginn maður og ekkert þjóðfélag stenst án siðgæðisviðhorfa. Ég vil minna á það í þessu sambandi að einmitt á þessum óðaverðbólguárum hafa verið framin hér á Íslandi verri óhæfuverk en nokkurn tíma síðan á Sturlungaöld, þegar við glötuðum sjálfstæði okkar. Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir hlær. Þetta er ekkert aðhlátursefni. Hér hafa verið framin viðurstyggileg óhæfuverk í þeim eina tilgangi að komast yfir peninga. Í stað siðgæðishugmynda er komin ný sókn í peninga, og menn skulu ekki hlæja að því. Þetta er fullkomið alvörumál. Atburðir eins og gerst hafa á Íslandi síðustu árin eru einsdæmi í Íslandssögunni síðan á Sturlungaöld.
Haldi þetta ástand áfram, þessi siðferðilega upplausn, sem nú mótar þjóðfélagið, og þessi afgjöra óstjórn á sviði efnahagsmála og atvinnumála, höldum við ekki lengi sjálfstæði sem þjóð. Siðgæðismælikvarðar eru mælikvarðar sem menn eiga að muna eftir. Það skiptir fleira máli en krónur. Ég nefni ekki aura því að búið er að fella þá úr gildi á Íslandi.
Einn þáttur þessarar óðaverðbólguþróunar er þetta hátterni hæstv, heilbrrh., að leggja fyrir hvert einasta Alþ. till. eða frv. um fjáröflun í sambandi við tryggingamál. Hæstv. ráðh. lagði í upphafi til fjáröflun sem nam, minnir mig, hálfum öðrum milljarði. Nú leggur hann til að þessi upphæð verði aukin um 1.9 milljarða að því er áætlað er. Þessi upphæð er komin á milli þriggja og fjögurra milljarða króna. Hvað skyldi gerast á næsta ári með sama áframhaldi að því er varðar óðaverðbólgu og óstjórn? Ætli þessi upphæð verði ekki hækkuð upp í 8 milljarða, svo 16 milljarða, síðan 32 milljarða o.s.frv., ef þessi stefna á að halda áfram? Slík stefna er þjóðhættuleg.
Í sambandi við þau vandkvæði, sem upp hafa komið vegna þessarar óðaverðbólgu, hafa birst hugmyndir um að skerða sjálft almannatryggingakerfið. Ég minnist þess ákaflega vei, að ég horfði á sjónvarpsþátt í vor þegar yfir stóðu umr. milli launamanna og atvinnurekenda um kjör launafólks á Íslandi. Málsvari atvinnurekenda í þessum umr., einn af forustumönnum Sjálfstfl., þátttakandi í prófkjöri Sjálfstfl. nú um frambjóðendur til næstu alþingiskosninga, kom fram með þá till., að fólk á sjúkrahúsum gæti borgað matinn sinn. Ég var staddur á Grensásdeild Borgarspítalans þegar ég hlustaði á þetta, og ég þekkti orðið allgóð deili á því fólki sem dvaldist þar með mér. Ég vissi ósköp vel, að allur þorri þessa fólks hefði orðið að fara út af deildinni á svipstundu ef slík breyting hefði verið gerð. Ég er ekki gefinn fyrir að bera vandkvæði mín á torg, en ég fór að hugsa um sjálfan mig. Ég hef orðið að dveljast allengi á sjúkrahúsum síðustu árin og ef ég hefði orðið að borga matinn minn, væri ég algjörlega gjaldþrota núna, og hef ég þó góðar tekjur að mínu mati og fæ tekjur þó ég sé veikur, en ákaflega stór hluti þjóðarinnar fær það ekki.
Þetta er till. um að heilbrigðiskerfið á Íslandi nái ekki til snauðra manna, heldur verði forréttindi þeirra sem hafa miklar tekjur. Ég hélt að þetta hefði óvart skroppið upp úr þessum atvinnurekanda. En ég var ekki viðstaddur hér á þingi þegar í fyrsta skipti var lagður á sá skattur sem nú er til umr. Ég gerði það mér til fróðleiks í gær, að ég náði mér í Alþingistíðindaheftið sem fjallaði um umr, um þetta mál í fyrsta skipti. Þar sá ég að hæstv. heilbrrh. sjálfur talaði um þetta sem möguleika, að fólk á sjúkrahúsum yrði að borga matinn sinn.
Þetta eru viðhorf sem uppi eru í veröldinni. Þannig var t.a.m. ástatt í Bandaríkjunum til skamms tíma. Þar hefur orðið nokkur bót á að undanförnu, sem betur fer, en þannig var ástatt í Bandaríkjunum, að þar voru engar almannatryggingar. Til voru fyrirtæki sem tóku að sér að tryggja fólk á gróðagrundvelli. Ég þekki íslenska konu sem giftist bandarískum manni, fluttist til Bandaríkjanna og vann þar um tíma í iðnfyrirtæki. Hún fór á skrifstofu slíks tryggingafélags og tryggði sig þannig að hún fengi bætur frá félaginu ef hún yrði fyrir slysum eða sjúkdómum og yrði að leggjast á sjúkrahús. Það kom tvívegis fyrir þessa konu, að hún slasaðist í starfi sínu, — og hvað halda hv. þm. að hafi gerst? Tryggingafélagið sagði henni upp viðskiptum vegna þess að þarna var viðskiptavinur sem félagið græddi ekki á. Það sagði henni upp. Vilja menn koma upp almannatryggingum af þessu tagi á Íslandi?
Ef þessi hugmynd, sem hæstv. ráðh. hefur orðað og þar að auki þessi forustumaður Sjálfstfl. sem ég minntist á áðan, yrði að veruleika væri verið að gera það að verkum, að heilbrigðiskerfið á Ísandi yrði forréttindi efnamanna, en það er einhver viðurstyggilegasta þróun sem ég get hugsað mér.
Ég sagði frá því áðan, að ég hefði flett upp Alþingistíðindum til þess að kynna mér umr. um þetta mál þegar það kom fyrir í fyrsta sinn. Það var í desembermánuði 1975. Ég rak augun í það, að hæstv. ráðh. Matthías Bjarnason sagði í framsöguræðu sinni á fundi Ed. 15. des., að þessi lög ættu ekki að gilda nema á árinu 1916. Hann sagði einnig að almannatryggingalögin væru í endurskoðun og að því væri stefnt, að þessari endurskoðun yrði lokið fyrir næsta haust, þ.e.a.s. haustið í fyrra, þannig að ný löggjöf tæki þá gildi. Ekkert frv. var lagt fram frá þessum hæstv. ráðh. í þingbyrjun í fyrra, og ekkert frv. frá þessum hæstv. ráðh. hefur verið lagt fram á þessu þingi, Svardagar hæstv. ráðh. hafa ekki staðist. Hann hefur brugðist þeim fyrirheitum sem hann gaf hinu háa Alþ. þegar hann var að mæla fyrir því, að þessi skattheimta yrði tekin upp.
Hæstv. ráðh. sagði einnig í þessari sömu ræðu, með leyfi hæstv. forseta: .,Hins vegar vil ég taka það fram, að það hefur aldrei hvarflað að mér að skerða ellilífeyri þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. — Það má síst af öllu skerða tekjutrygginguna frá því sem hún er nú, heldur jafnvel að auka hana, enda hefur hún fullkomlega fylgt þeim verðbreytingum sem orðið hafa nú á síðasta ári og þessu ári.“
Þessi ummæli hæstv. ráðh. eru algjör ósannindi. Kaupmáttur þessara bóta hefur lækkað stórlega, en það skýrist af því, að hæstv. ráðh. notar rangan mælikvarða. Hann notaði vísitölu framfærslukostnaðar, sem er byggð á ákveðinni neyslu, mjög sómasamlegu neyslustigi á sínum tíma, en aldrað fólk og öryrkjar hafa ekki þetta sama neyslustig. Það notar tekjur sínar til að kaupa brýnustu matvæli, til þess að greiða fyrir hitunarkostnað og ljós. Þessir liðir hafa hækkað miklu meira en vísitalan í heild. Það hefur ekkert hækkað eins mikið og þessar brýnustu lífsnauðsynjar. Í rauninni væri ástæða til að reikna út sérstaka vísitölu sem miðuð væri við neyslu aldraðs fólks og öryrkja, svo að við vissum hvernig þessum þjóðfélagshópum vegnar, en að nota almennu vísitöluna sem mælikvarða á neyslu þess er fölsun.
Ég minntist á það áðan, að hæstv. ráðh. lofaði því, að skattheimta þessi ætti aðeins að standa í eitt ár, vegna þess að hann mundi leggja fram nýtt frv. um breytingar á almannatryggingakerfinu í fyrrahaust. Á þessum forsendum og þessum forsendum einum fengust alþm. til að fallast á þessa annarlegu skattheimtu.
Ég vil leyfa mér, hæstv. forseti, að vitna stuttlega í nokkrar ræður sem fluttar voru í sambandi við þetta mál haustið 1975.
Hv. þm. Axel Jónsson sagði: „Ég vil aðeins láta það koma hér fram strax við 1. umr., að ég tel þetta algjör bráðabirgðaúrræði, t.d. með tilliti til þess að þetta gengur á móti því sem sveitarstjórnarmenn vilja stefna að. En til þess að leysa málið nú til bráðabirgða um eins árs skeið, þá get ég fyrir mitt leyti fellt mig við þessa lausn málsins.“
Hv. þm. Oddur Ólafsson var frsm. heilbr.og trn. í Ed. og hann sagði svo: „Eftir að við höfðum rætt við framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga var okkur ljóst að sveitarfélögin eru mjög óánægð með þetta spor sem stigið er, ekki síst þegar litið er til þess, að þau telja þetta beinlínis í öfuga átt við það sem þau höfðu ætlast til.“ Ýmsar sveitarstjórnir gerðu formlegar samþykktir til að mótmæla þessari skattheimtu, því þarna er verið að ganga inn á, vaða inn á tekjuöflunarsvið sveitarstjórna í landinu.
Hv. þm. Sverrir Bergmann, sem þá sat hér á þingi sem varaþm., sagði: „Ég tel mig ekki sérstakan talsmann þessa frv. sem hér liggur fyrir, en ég hef ákveðið að ljá því minn stuðning. Til þess liggja nokkrar ástæður og hin fyrsta er sú, að hér er um bráðabirgðaráðstafanir að ræða, og ég vil treysta því, að sú mikla endurskoðun, sem nú fer fram á almannatryggingum í landinu, leiði til þess, að við getum gert þær endurbætur sem við sem allra flestir getum sameinast um.“
Hann ítrekaði í ræðu sinni að þetta væri bráðabirgðaráðstöfun, tvívegis ítrekaði hann það, og enginn þm., sem til máls tók, studdi þessa skattheimtu á neinum öðrum forsendum en þeim, að þetta væri bráðabirgðaráðstöfun sem aðeins ætti að standa í eitt einasta ár, enda voru loforð hæstv. ráðh. um, að þetta ætti aðeins að standa í eitt ár, ákaflega hátíðlega. En við erum því miður vanir að hlusta á hátíðleg loforð ráðh. sem auðsjáanlega taka minna mark á sjálfum sér en nokkrir þegnar aðrir.
Eins og við hv. þm. Karvel Pálmason gerum grein fyrir í nál. okkar er hér um að ræða félagslega rangláta skattheimtu. Útsvarsstofninn er afar lágur á Íslandi, og hér er gert ráð fyrir að lágtekjufólk bæti á sig umtalsverðum byrðum. Auk þess var það þannig í upphafi, að þessi skattheimta gekk miklu lengra en útsvörin, eins og fram hefur komið í umr., og það frv., sem lagt var fram núna af hæstv. ráðh., var einnig sama marki brennt. Við fengum til okkar ríkisskattstjóra, sem hefur verið tæknilegur sérfræðingur við samningu frv., og ég spurði hann að því, hvort það væri ekki rétt skilið hjá mér að aldrað fólk, sem víða er undanþegið útsvari, ætti að greiða þetta gjald. Hann viðurkenndi að svo væri.
Ég mótmælti því mjög eindregið í n., að þessi skattur væri lagður á fólk sem væri undanþegið útsvari af félagslegum ástæðum. Enginn vildi fallast á það sjónarmið okkar hv. þm. Karvels Pálmasonar á nefndarfundinum sjálfum. En ég sé að meiri hl. n. hefur tekið sig á eftir fundina í gær og gengið til móts við þetta sjónarmið okkar, eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir gerði grein fyrir áðan. (Forseti: Ég vil spyrja hv. þm., hvort hann eigi langt mál eftir ræðu sinnar.) Ekki ýkjalangt, hugsa ég. Ég veit ekki hvað mikið er eftir. (Forseti: Það hefur verið heitið kaffihléi um þetta leyti vegna nefndafunda.) Ég skal reyna að ljúka máli mínu á 10 mínútum eða 5 mínútum. (Forseti: Það hrekkur varla. Þá held ég að betra sé að fresta máli þm. og ljúka því eftir kaffihlé.) Má ég ljúka máli mínu eftir kaffihlé? Þá tala ég miklu lengur. — [Frh.]