16.12.1977
Neðri deild: 32. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (997)

128. mál, tímabundið vörugjald

Frsm. minni hl. (Lúðvík Jósepsson):

Hæstv. forseti. Á þskj. 191 er birt nál. okkar sem erum í minni hl. fjh.- og viðskn. varðandi afgreiðslu þessa máls, en það eru ég og hv. 9. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason. Við erum báðir andvígir þessu frv. og leggjum til að það verði fellt.

Hér er um sömu afstöðu okkar að ræða og áður þegar þetta mál hefur verið til umr. og afgreiðslu hér á Alþ. Það er skoðun okkar, að þetta svonefnda tímabundna vörugjald eigi ekki að framlengja lengur, það sé búið að standa allt of lengi og fráleitt sé að ætla að gera þetta gjald að föstum tekjustofni ríkissjóðs. Þetta var lagt á til bráðabirgða vegna tiltekinna þarfa sem komu upp á árinu 1976, og var alltaf ætlunin að það gjald stæði aðeins stuttan tíma og hyrfi svo með öllu. En að ætla sér að halda þessu gjaldi áfram og það svona háu er í rauninni alveg fráleitt.

Eins og kunnugt er hvílir þetta gjald á vissum vörutegundum, en ekki á öðrum. Það leggst því mjög óréttlátlega á. Vissulega er svo komið, að þetta gjald færir ríkissjóði miklar tekjur, eða sem nemur 7 milljörðum kr. að áætlað er á næsta ári. En það ber líka að hafa í huga, að þetta gjald eykur drjúgum á dýrtíðina í landinu. Það hækkar verðlag mjög tilfinnanlega og leiðir þar af leiðandi einnig af sér margvíslega erfiðleika í heildarrekstri ríkisins, því allt það, sem verkar til verðlagshækkunar og hækkar þar með vísitölu, hefur auðvitað líka áhrif til útgjalda hjá ríkinu og ríkisstofnunum og hjá öllum rekstri, í landinu. Því er það, að gjaldi af þessari tegund er mjög óskynsamlegt að ætla að halda lengi.

Vegna þess, að umr. hafa farið fram um þessa gjaldtöku æðioft og sjónarmið hafa þar öll komið greinilega fram sé ég ekki ástæðu til að lengja þessa umr. Afstaða okkar er sem sagt sú, að það beri að fella þetta gjald. Sé talið alveg óhjákvæmilegt að afla ríkissjóði tekna í staðinn verður það að gerast með öðrum hætti. Þar koma margar leiðir til greina. En eins og víð bendum á í okkar nál. væri auðvitað langsamlega heppilegast að losna við nokkrar nýjar gjaldtökur í staðinn, því þá hefði þetta sin ágætu áhrif til lækkunar á verðlagi.

Sem sagt, afstaða okkar er sú, að við leggjum til að frv. verði fellt.