Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1035, 117. löggjafarþing 530. mál: réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um herafla í Evrópu.
Lög nr. 90 9. maí 1994.
Þingskjal 1035, 117. löggjafarþing 530. mál: réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um herafla í Evrópu.
Lög nr. 90 9. maí 1994.
Lög um réttindi eftirlitsmanna vegna samnings um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings um opna lofthelgi.
1. gr.
Eftirlitsmenn og flutningsáhafnir, sem starfa á grundvelli samnings frá 19. nóvember 1990 um hefðbundinn herafla í Evrópu og samnings frá 24. mars 1992 um opna lofthelgi, skulu njóta þeirrar friðhelgi, forréttinda og undanþágna hér á landi sem kveðið er á um í samningunum.2. gr.
Utanríkisráðherra getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 25. apríl 1994.