Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1063, 130. löggjafarþing 340. mál: sjóntækjafræðingar (sjónmælingar og sala tækja).
Lög nr. 11 15. mars 2004.

Lög um breytingu á lögum um sjóntækjafræðinga, nr. 17/1984.


1. gr.

     5. gr. laganna orðast svo:
     Sjóntækjafræðingar mæla sjón og fullvinna og selja sjónhjálpartæki (gleraugu og snertilinsur).
     Ráðherra skal í reglugerð setja ákvæði um menntunarskilyrði sem sjóntækjafræðingar skulu uppfylla til að mega mæla sjón og fullvinna sjónhjálpartæki.
     Ráðherra getur í reglugerð takmarkað heimildir sjóntækjafræðinga til að mæla sjón hjá nánar tilgreindum hópum.

2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 15. júní 2004.

Samþykkt á Alþingi 8. mars 2004.