Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 623, 132. löggjafarþing 333. mál: framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum (verðmiðlunargjöld).
Lög nr. 119 19. desember 2005.
Innheimta skal verðskerðingargjald af verði hrossakjöts til framleiðenda og skal gjaldið vera 2% af framleiðendaverði hrossakjöts. Innheimta skal verðskerðingargjald á heildsölustigi af kindakjöti sem ætlað er til sölu á innlendum markaði og skal gjaldið vera 2 kr. á kg.
Þingskjal 623, 132. löggjafarþing 333. mál: framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum (verðmiðlunargjöld).
Lög nr. 119 19. desember 2005.
Lög um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum.
1. gr.
2. málsl. 1. mgr. 19. gr. laganna orðast svo: Verðmiðlunargjaldið skal vera 0,65 kr. á lítra af mjólk sem lögð er inn í afurðastöð innan greiðslumarks.2. gr.
1. mgr. 20. gr. laganna orðast svo:Innheimta skal verðskerðingargjald af verði hrossakjöts til framleiðenda og skal gjaldið vera 2% af framleiðendaverði hrossakjöts. Innheimta skal verðskerðingargjald á heildsölustigi af kindakjöti sem ætlað er til sölu á innlendum markaði og skal gjaldið vera 2 kr. á kg.
3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2006.Samþykkt á Alþingi 9. desember 2005.