Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1301, 135. löggjafarþing 532. mál: staðfest samvist (heimild presta til að staðfesta samvist).
Lög nr. 55 7. júní 2008.
Þingskjal 1301, 135. löggjafarþing 532. mál: staðfest samvist (heimild presta til að staðfesta samvist).
Lög nr. 55 7. júní 2008.
Lög um breytingu á lögum um staðfesta samvist, nr. 87/1996, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- Í stað orðanna „framkvæma staðfestingu á“ í 1. mgr. kemur: staðfesta.
- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðast svo: Prestum og forstöðumönnum skráðra trúfélaga er hafa vígsluheimild skv. 17. gr. hjúskaparlaga, nr. 31/1993, er heimilt að staðfesta samvist.
- Í stað orðanna „framkvæmd staðfestingar“ í 2. mgr. kemur: staðfestingu samvistar.
2. gr.
Við 2. mgr. 8. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig geta prestar og forstöðumenn skráðra trúfélaga leitað um sættir.3. gr.
Lög þessi öðlast gildi 27. júní 2008.Samþykkt á Alþingi 30. maí 2008.