Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 626, 140. löggjafarþing 305. mál: raforkulög (hækkun raforkueftirlitsgjalds).
Lög nr. 176 23. desember 2011.

Lög um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum (hækkun raforkueftirlitsgjalds).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 31. gr. laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „0,2 aurum“ í 1. tölul. kemur: 0,4 aurum.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „0,5 aurum“ í 2. tölul. kemur: 1 eyri.


2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 17. desember 2011.