Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 487, 141. löggjafarþing 64. mál: málefni innflytjenda (stjórnsýsla, Fjölmenningarsetur, innflytjendaráð o.fl.).
Lög nr. 116 23. nóvember 2012.

Lög um málefni innflytjenda.


I. KAFLI
Markmið.

1. gr.

Markmið.
     Markmið laga þessara er að stuðla að samfélagi þar sem allir geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna. Markmiði þessu skal náð meðal annars með því að:
  1. hagsmunir innflytjenda séu samþættir allri stefnumótun, stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera,
  2. stuðla að víðtæku samstarfi og samþættingu aðgerða og verkefna milli allra aðila sem koma að málefnum innflytjenda,
  3. efla fræðslu og miðlun upplýsinga um málefni innflytjenda og samfélag án fordóma,
  4. stuðla að og styðja við rannsóknir og þróunarverkefni í málefnum innflytjenda.


II. KAFLI
Stjórnsýsla.

2. gr.

Fjölmenningarsetur.
     Starfrækja skal sérstaka stofnun, Fjölmenningarsetur, undir yfirstjórn ráðherra.
     Ráðherra skipar forstöðumann Fjölmenningarseturs til fimm ára í senn.

3. gr.

Hlutverk Fjölmenningarseturs.
     Verkefni Fjölmenningarseturs eru meðal annars að:
  1. veita stjórnvöldum, stofnunum, fyrirtækjum, félögum og einstaklingum ráðgjöf og upplýsingar í tengslum við málefni innflytjenda,
  2. vera sveitarfélögum til ráðgjafar við að taka á móti innflytjendum sem flytjast í sveitarfélagið,
  3. taka saman og miðla upplýsingum um réttindi og skyldur innflytjenda,
  4. fylgjast með þróun innflytjendamála í þjóðfélaginu, meðal annars með upplýsingaöflun, greiningu og upplýsingamiðlun,
  5. koma á framfæri við ráðherra, innflytjendaráð og önnur stjórnvöld ábendingum og tillögum um aðgerðir sem hafa það að markmiði að allir einstaklingar geti verið virkir þátttakendur í samfélaginu óháð þjóðerni og uppruna,
  6. taka saman árlega skýrslu til ráðherra um málefni innflytjenda,
  7. hafa eftirlit með framgangi verkefna sem fram koma í þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, sbr. 7. gr.,
  8. vinna önnur verkefni í samræmi við markmið laganna og þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda og einnig samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.

     Stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum er skylt að veita Fjölmenningarsetri hvers konar almennar upplýsingar sem stofnuninni eru nauðsynlegar til að annast þau verkefni sem lög þessi fela því.

4. gr.

Innflytjendaráð.
     Eftir hverjar alþingiskosningar skipar ráðherra sex manna innflytjendaráð. Ráðherra skipar tvo fulltrúa án tilnefningar, þ.e. formann og einn fulltrúa, og skal að minnsta kosti annar þeirra vera úr hópi innflytjenda. Auk þess skal ráðherra skipa einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu frá þeim ráðherra sem fer með málefni útlendinga, einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu frá þeim ráðherra sem fer með fræðslumál, einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu frá Reykjavíkurborg. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt.
     Komi til atkvæðagreiðslu í innflytjendaráði og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.
     Forstöðumaður Fjölmenningarseturs skal sitja fundi innflytjendaráðs með málfrelsi og tillögurétt.

5. gr.

Hlutverk innflytjendaráðs.
     Hlutverk innflytjendaráðs er að:
  1. vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málefnum innflytjenda og hafa eftirlit með framkvæmd hennar,
  2. stuðla að samhæfingu og samráði milli ráðuneyta, sveitarfélaga og innan stjórnsýslunnar,
  3. stuðla að opnum umræðum um málefni innflytjenda með ráðstefnum og fundum með hagsmunaaðilum,
  4. gera árlega tillögu til ráðherra um hverjar áherslur þróunarsjóðs innflytjendamála skulu vera,
  5. gera árlega tillögu til ráðherra um veitingu styrkja úr þróunarsjóði innflytjendamála,
  6. skila ráðherra árlega skýrslu um störf sín,
  7. vinna önnur verkefni í samræmi við markmið laganna samkvæmt nánari ákvörðun ráðherra.


6. gr.

Þróunarsjóður innflytjendamála.
     Starfrækja skal sjóð er nefnist þróunarsjóður innflytjendamála. Hlutverk sjóðsins skal vera að efla rannsóknir og styðja þróunarverkefni á sviði málefna innflytjenda með það að markmiði að auðvelda innflytjendum aðlögun að íslensku samfélagi og gera samfélaginu betur kleift að koma til móts við þá. Til sjóðsins renna fjármunir sem veittir eru í fjárlögum hverju sinni.
     Innflytjendaráð gerir árlega tillögu til ráðherra um áherslur þróunarsjóðs innflytjendamála. Jafnframt gerir innflytjendaráð tillögu til ráðherra um úthlutun styrkja og fjárhæð þeirra.
     Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari reglur um starfsemi og skipulag þróunarsjóðs innflytjendamála.

7. gr.

Þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda.
     Ráðherra skal leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Fjölmenningarseturs og innflytjendaráðs.
     Í tillögu til þingsályktunar skv. 1. mgr. skal kveða á um verkefni sem hafa það að markmiði að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna. Framkvæmd, ábyrgð og áætlaður kostnaður verkefna skulu tilgreind í áætluninni ásamt því hvernig mati á árangri aðgerða skuli háttað.
     Skýrsla ráðherra um stöðu og þróun í málefnum innflytjenda skv. 8. gr. skal fylgja tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda skv. 1. mgr.

8. gr.

Mat á stöðu og þróun í málefnum innflytjenda.
     Fjórða hvert ár skal ráðherra leggja fram á Alþingi skýrslu um stöðu og þróun í málefnum innflytjenda. Í skýrslu ráðherra skal meðal annars koma fram mat á stöðu og árangri verkefna í gildandi þingsályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda á hverjum tíma, sbr. 7. gr., auk umfjöllunar um stöðu og þróun í málefnum innflytjenda á helstu sviðum samfélagsins í samræmi við markmið laganna.

III. KAFLI
Önnur ákvæði.

9. gr.

Reglugerðarheimild.
     Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara, svo sem um starfsemi Fjölmenningarseturs og innflytjendaráðs.

10. gr.

Gildistaka.
     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.
     Ráðherra er heimilt að skipa núverandi framkvæmdastjóra Fjölmenningarseturs í embætti forstöðumanns Fjölmenningarseturs til loka árs 2013. Frá þeim tíma skal embættið auglýst laust til umsóknar í samræmi við ákvæði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
     Þeir starfsmenn velferðarráðuneytis sem starfa hjá Fjölmenningarsetri og eru í starfi við gildistöku laganna verða starfsmenn hjá hinni nýju stofnun með sömu starfskjörum og áður giltu. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, eiga ekki við um flutning starfsmanna samkvæmt þessu ákvæði.

II.
     Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal ráðherra skipa nýtt innflytjendaráð, sbr. 4. gr.

III
     Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal ráðherra innan árs leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, sbr. 7. gr.

IV.
     Þegar lög þessi hafa öðlast gildi skal ráðherra innan sex mánaða leggja fram á Alþingi skýrslu um stöðu og þróun í málefnum innflytjenda, sbr. 8. gr.

Samþykkt á Alþingi 13. nóvember 2012.