Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2116, 150. löggjafarþing 970. mál: ríkisábyrgðir.
Lög nr. 109 10. september 2020.
Ákvæði laga þessara gilda ekki um þær ábyrgðarskuldbindingar sem ríkissjóði er heimilt að undirgangast gagnvart Icelandair Group hf., sem er kerfislega mikilvægt fyrirtæki, vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Afla skal heimilda í fjáraukalögum fyrir árið 2020 vegna þessara ábyrgðarskuldbindinga.
Þingskjal 2116, 150. löggjafarþing 970. mál: ríkisábyrgðir.
Lög nr. 109 10. september 2020.
Lög um breytingu á lögum um ríkisábyrgðir, nr. 121/1997.
1. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Ákvæði laga þessara gilda ekki um þær ábyrgðarskuldbindingar sem ríkissjóði er heimilt að undirgangast gagnvart Icelandair Group hf., sem er kerfislega mikilvægt fyrirtæki, vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Afla skal heimilda í fjáraukalögum fyrir árið 2020 vegna þessara ábyrgðarskuldbindinga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 4. september 2020.