Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 678, 151. löggjafarþing 336. mál: jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku (verðlagshækkun).
Lög nr. 146 29. desember 2020.

Lög um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (verðlagshækkun).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. a laganna:
  1. Í stað fjárhæðarinnar „0,30 kr.“ í 1. málsl. kemur: 0,34 kr.
  2. Í stað fjárhæðarinnar „0,10 kr.“ í 2. málsl. kemur: 0,11 kr.


2. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2021.

Samþykkt á Alþingi 17. desember 2020.