Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 679, 151. löggjafarþing 377. mál: ferðagjöf (framlenging gildistíma).
Lög nr. 147 29. desember 2020.

Lög um breytingu á lögum um ferðagjöf, nr. 54/2020 (framlenging gildistíma).


1. gr.

     Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2020“ í 5. mgr. 1. gr. laganna kemur: 31. maí 2021.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 17. desember 2020.