Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1195, 152. löggjafarþing 414. mál: landlæknir og lýðheilsa (skimunarskrá).
Lög nr. 43 22. júní 2022.
Landlæknir skal í samræmi við lög þessi og reglugerð sem ráðherra setur skipuleggja og halda miðlæga meðferðartengda heilbrigðisskrá á landsvísu í tengslum við krabbameinsskimanir sem nefnist skimunarskrá. Tilgangur skrárinnar er að stuðla að samræmdri og markvissri framkvæmd og eftirfylgni krabbameinsskimana og auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Ráðherra er heimilt, í reglugerð, að kveða nánar á um þær persónugreinanlegu upplýsingar sem heimilt er að safna og varðveita, öryggisráðstafanir og réttindi hinna skráðu einstaklinga.
Þingskjal 1195, 152. löggjafarþing 414. mál: landlæknir og lýðheilsa (skimunarskrá).
Lög nr. 43 22. júní 2022.
Lög um breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007 (skimunarskrá).
1. gr.
Við 8. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Landlæknir skal í samræmi við lög þessi og reglugerð sem ráðherra setur skipuleggja og halda miðlæga meðferðartengda heilbrigðisskrá á landsvísu í tengslum við krabbameinsskimanir sem nefnist skimunarskrá. Tilgangur skrárinnar er að stuðla að samræmdri og markvissri framkvæmd og eftirfylgni krabbameinsskimana og auka gæði og öryggi í heilbrigðisþjónustu. Ráðherra er heimilt, í reglugerð, að kveða nánar á um þær persónugreinanlegu upplýsingar sem heimilt er að safna og varðveita, öryggisráðstafanir og réttindi hinna skráðu einstaklinga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. júní 2022.