Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1377, 152. löggjafarþing 458. mál: Slysavarnarskóli sjómanna (skipan og hlutverk skólanefndar, aðskildar fjárreiður).
Lög nr. 81 28. júní 2022.

Lög um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991 (skipan og hlutverk skólanefndar, aðskildar fjárreiður).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „Slysavarnafélag Íslands“ í 1. mgr. kemur: Slysavarnafélagið Landsbjörg.
  2. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
  3.      Slysavarnafélagið Landsbjörg skal halda fjárreiðum skólans aðskildum frá öðrum rekstri og starfsemi félagsins og er í þeim tilgangi heimilt að hafa rekstur skólans í sérstöku félagi.


2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands“ og „Slysavarnafélagi Íslands“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Félagi skipstjórnarmanna; og: Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
  2. Í stað orðanna „Slysavarnafélags Íslands“ í 3. málsl. 1. mgr. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
  3. Í stað orðanna „fjalla um“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: vera ráðgefandi um fagleg.
  4. Orðin „einkum varðandi tækjakaup og búnað hans, viðhald, framkvæmdir og áframhaldandi uppbyggingu“ í 1. málsl. 2. mgr. falla brott.


3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:
  1. Í stað orðsins „Skólanefnd“ kemur: Slysavarnafélagið Landsbjörg.
  2. Á eftir orðinu „sjómanna“ kemur: að fenginni umsögn skólanefndar.
  3. Í stað orðanna „Slysavarnafélags Íslands“ kemur: félagsins.


4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:
  1. Við 1. málsl. bætist: samkvæmt þjónustusamningi.
  2. 2. málsl. fellur brott.


5. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 15. júní 2022.