Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 978, 154. löggjafarþing 592. mál: vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (leiðrétting).
Lög nr. 3 7. febrúar 2024.
Þingskjal 978, 154. löggjafarþing 592. mál: vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. (leiðrétting).
Lög nr. 3 7. febrúar 2024.
Lög um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., nr. 29/1993 (leiðrétting).
1. gr.
Í stað orðanna „á árunum 2022–2023“ í 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XVIII í lögunum kemur: frá 1. janúar 2022 til 1. október 2024.2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 31. janúar 2024.