Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1988, 154. löggjafarþing 880. mál: skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða).
Lög nr. 71 1. júlí 2024.
Þingskjal 1988, 154. löggjafarþing 880. mál: skyldutryggingar lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða).
Lög nr. 71 1. júlí 2024.
Lög um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða).
1. gr.
Á eftir 1. málsl. 3. mgr. 36. gr. b laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þá er lífeyrissjóði heimilt að binda allt að 5% heildareigna í hlutabréfum og skuldabréfum, sem ekki eru skráð á skipulegum markaði, útgefnum af félögum þar sem meginstarfsemin er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis til einstaklinga. Undir 2. málsl. falla jafnframt hlutir eða hlutdeildarskírteini sjóða um sameiginlega fjárfestingu, sem fjárfesta eingöngu í hlutabréfum og skuldabréfum útgefnum af slíkum félögum, og skuldabréf sem sjóðir um sameiginlega fjárfestingu gefa út til að fjármagna slík félög.2. gr.
Við 8. mgr. 36. gr. c laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Einnig er lífeyrissjóði heimilt að eiga stærri hluta en 20% í félagi þar sem meginstarfsemin er langtímaleiga íbúðarhúsnæðis til einstaklinga eða í hlutum eða hlutdeildarskírteinum sjóða um sameiginlega fjárfestingu, sem fjárfesta eingöngu í hlutabréfum og skuldabréfum útgefnum af slíkum félögum. Hlutur lífeyrissjóðs skv. 2. málsl. má þó ekki vera stærri en 50% í slíku félagi eða sjóði um sameiginlega fjárfestingu.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 21. júní 2024.