Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 412, 155. löggjafarþing 323. mál: þingsköp Alþingis (undirbúningsnefnd og framtíðarnefnd).
Lög nr. 128 28. nóvember 2024.
Eigi síðar en þegar landskjörstjórn hefur lagt fyrir Alþingi rökstudda umsögn um alþingiskosningar skv. 2. mgr. 132. gr. kosningalaga og áður en Alþingi kemur saman skal starfandi forseti, sbr. 3. mgr. 6. gr., kveðja saman nefnd níu kjörinna alþingismanna til að undirbúa þá rannsókn sem fer fram á þingsetningarfundi skv. 2. mgr. Við val í nefndina skal fylgja hlutfallsreglu 82. gr. Þingflokkar sem þannig fá ekki fulltrúa í nefndina mega tilnefna áheyrnarfulltrúa. Undirbúningsnefndin skal haga málsmeðferð sinni í samræmi við meginreglur um óhlutdrægni og málefnaleg sjónarmið. Við rannsóknina er undirbúningsnefndinni m.a. heimilt að kalla eftir upplýsingum frá stjórnvöldum, óska eftir að þau taki saman upplýsingar og boða þau á fund sinn, enn fremur að boða aðra aðila á sinn fund, leita sér sérfræðiaðstoðar, fara í vettvangsrannsóknir, rannsaka kjörgögn til að sannreyna úrslit kosninga, þ.m.t. telja atkvæði, eða óska eftir að kjörstjórnir geri það. Forseti skal setja undirbúningsnefndinni reglur þar sem m.a. skal kveðið á um val þingmanna í nefndina, málsmeðferð og rannsóknir nefndar, meðferð kosningakæra, rétt kærenda til að koma á framfæri sjónarmiðum sínum, tímafresti, fyrirkomulag funda og aðgengi að gögnum nefndarinnar.
Þingskjal 412, 155. löggjafarþing 323. mál: þingsköp Alþingis (undirbúningsnefnd og framtíðarnefnd).
Lög nr. 128 28. nóvember 2024.
Lög um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991 (undirbúningsnefnd og framtíðarnefnd).
1. gr.
3. mgr. 1. gr. laganna orðast svo:Eigi síðar en þegar landskjörstjórn hefur lagt fyrir Alþingi rökstudda umsögn um alþingiskosningar skv. 2. mgr. 132. gr. kosningalaga og áður en Alþingi kemur saman skal starfandi forseti, sbr. 3. mgr. 6. gr., kveðja saman nefnd níu kjörinna alþingismanna til að undirbúa þá rannsókn sem fer fram á þingsetningarfundi skv. 2. mgr. Við val í nefndina skal fylgja hlutfallsreglu 82. gr. Þingflokkar sem þannig fá ekki fulltrúa í nefndina mega tilnefna áheyrnarfulltrúa. Undirbúningsnefndin skal haga málsmeðferð sinni í samræmi við meginreglur um óhlutdrægni og málefnaleg sjónarmið. Við rannsóknina er undirbúningsnefndinni m.a. heimilt að kalla eftir upplýsingum frá stjórnvöldum, óska eftir að þau taki saman upplýsingar og boða þau á fund sinn, enn fremur að boða aðra aðila á sinn fund, leita sér sérfræðiaðstoðar, fara í vettvangsrannsóknir, rannsaka kjörgögn til að sannreyna úrslit kosninga, þ.m.t. telja atkvæði, eða óska eftir að kjörstjórnir geri það. Forseti skal setja undirbúningsnefndinni reglur þar sem m.a. skal kveðið á um val þingmanna í nefndina, málsmeðferð og rannsóknir nefndar, meðferð kosningakæra, rétt kærenda til að koma á framfæri sjónarmiðum sínum, tímafresti, fyrirkomulag funda og aðgengi að gögnum nefndarinnar.
2. gr.
1. málsl. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögunum orðast svo: Að loknum alþingiskosningum 30. nóvember 2024 skal kjósa framtíðarnefnd sem starfar til 31. desember 2025.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 18. nóvember 2024.