Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 542, 156. löggjafarþing 176. mál: svæðisbundin flutningsjöfnun (leiðrétting, framlenging gildistíma).
Lög nr. 26 28. maí 2025.

Lög um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (leiðrétting, framlenging gildistíma).


1. gr.

     3. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:
     Heildarfjárhæð flutningsjöfnunarstyrkja skal ákveðin með reglugerð sem ráðherra setur. Flutningsjöfnunarstyrkir til hvers framleiðanda mega ekki fara fram úr fjárhæð þeirri í gjaldmiðli Evrópusambandsins á þriggja ára tímabili sem Evrópusambandið tilgreinir sem minniháttaraðstoð Eftirlitsstofnunar EFTA og er þar af leiðandi ekki tilkynningarskyld til Eftirlitsstofnunar EFTA. Við umreikning í íslenskar krónur skal miða við gengi samkvæmt reglum sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur. Við útreikning hámarksfjárhæðar skal reikna með aðra styrki sem framleiðandi hefur fengið frá opinberum aðilum. Í þessu sambandi eru þó undanskildir sérstakir styrkir sem aðili hefur fengið samkvæmt styrkjareglum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur samþykkt.

2. gr.

     Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2025“ í 1. málsl. 12. gr. laganna kemur: 31. desember 2030.

3. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 22. maí 2025.