Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 799, 156. löggjafarþing 215. mál: fæðingar- og foreldraorlof (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).
Lög nr. 37 30. júní 2025.

Lög um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 144/2020 (fjölburaforeldrar og veikindi á meðgöngu).


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
  1. Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
  2. Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.


2. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. laganna:
  1. Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
    1. Á eftir orðunum „í tengslum við“ kemur: meðgönguna eða.
    2. Á eftir orðunum „veikindin rakin til“ kemur: meðgöngunnar eða.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.


3. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 34. gr. laganna:
  1. Í stað orðsins „þrjá“ í 1. mgr. kemur: sex.
  2. Í stað orðsins „þrjá“ í 2. mgr. kemur: sex.


4. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 35. gr. laganna:
  1. Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr.:
    1. Á eftir orðunum „í tengslum við“ kemur: meðgöngu eða.
    2. Á eftir orðunum „veikindin rakin til“ kemur: meðgöngunnar eða.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Veikindi foreldris í tengslum við meðgöngu eða fæðingu barns.


5. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 54. gr. laganna:
  1. Í stað orðanna „um hver áramót“ í 2. mgr. kemur: svo sem.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurskoðun fjárhæða.


6. gr.

     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2025 og eiga við um foreldra sem rétt eiga til greiðslna samkvæmt lögum þessum.

7. gr.

     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á 33. gr. laga um sorgarleyfi, nr. 77/2022:
  1. Í stað orðanna „um hver áramót“ í 2. mgr. kemur: svo sem.
  2. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Endurskoðun fjárhæða.


Samþykkt á Alþingi 30. júní 2025.