Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 828, 156. löggjafarþing 130. mál: raforkulög (raforkuöryggi).
Lög nr. 47 14. júlí 2025.
Viðmið um fullnægjandi raforkuöryggi.
Mat á raforkuöryggi skal byggt á eftirfarandi viðmiðum til lengri og skemmri tíma:
Umhverfis- og orkustofnun skal leggja mat á raforkuöryggi skv. 1. mgr. í samvinnu við flutningsfyrirtækið út frá áætlaðri þróun á framleiðslugetu og eftirspurn. Umhverfis- og orkustofnun skal ársfjórðungslega birta mat á stöðu raforkuöryggis.
Nánari reglur um framkvæmd mats á raforkuöryggi skulu settar í reglugerð. Í reglugerð skal m.a. nánar kveðið á um framkvæmd matsins, birtingu og hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar og flutningsfyrirtækisins auk skila á gögnum, tegundar þeirra, gæða og skilafrests. Þá skal í reglugerð kveðið á um útfærslu viðmiða skv. 1. mgr. og skilgreiningu öryggismarka. Í reglugerð skal einnig skilgreina grunnkröfur sem gerðar eru til raforku- og aflspáa sem liggja matinu til grundvallar.
Ef ófyrirséð og/eða óviðráðanleg atvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn á dreifiveitusvæði og önnur úrræði duga ekki til ber viðkomandi dreifiveitu að grípa til skömmtunar raforku til notenda. Við skömmtun skulu njóta forgangs heimilisnotendur og mikilvægir samfélagsinnviðir. Við skömmtun skal að öðru leyti gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skulu útfærð í reglugerð.
Þingskjal 828, 156. löggjafarþing 130. mál: raforkulög (raforkuöryggi).
Lög nr. 47 14. júlí 2025.
Lög um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 (raforkuöryggi).
1. gr.
Á eftir 1. gr. laganna kemur ný grein, 1. gr. a, sem orðast svo, ásamt fyrirsögn:.- Langtímaframboði orkukosta.
- Að framleiðslu- og flutningsgeta fullnægi áætlaðri aukinni eftirspurn til næstu tveggja til fimm ára.
- Framleiðsluöryggi til eins árs.
- Rauntímaöryggi, þ.e. að sú framleiðslu- og flutningsgeta sem er þegar til staðar nýtist ávallt til að anna rauntímaeftirspurn.
Umhverfis- og orkustofnun skal leggja mat á raforkuöryggi skv. 1. mgr. í samvinnu við flutningsfyrirtækið út frá áætlaðri þróun á framleiðslugetu og eftirspurn. Umhverfis- og orkustofnun skal ársfjórðungslega birta mat á stöðu raforkuöryggis.
Nánari reglur um framkvæmd mats á raforkuöryggi skulu settar í reglugerð. Í reglugerð skal m.a. nánar kveðið á um framkvæmd matsins, birtingu og hlutverk Umhverfis- og orkustofnunar og flutningsfyrirtækisins auk skila á gögnum, tegundar þeirra, gæða og skilafrests. Þá skal í reglugerð kveðið á um útfærslu viðmiða skv. 1. mgr. og skilgreiningu öryggismarka. Í reglugerð skal einnig skilgreina grunnkröfur sem gerðar eru til raforku- og aflspáa sem liggja matinu til grundvallar.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Á eftir 8. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi: Markaðsaðili: Hver sá einstaklingur eða lögaðili sem stundar viðskipti með heildsöluorkuafurð í atvinnuskyni eða annast slík viðskipti í umboði annars.
- Á eftir orðinu „raforku“ í 18. tölul. kemur: á viðráðanlegu verði.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Í stað orðsins „vinnslufyrirtæki“ í 1. tölul. 4. mgr. kemur: markaðsaðila.
- Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- 9. mgr. orðast svo:
4. gr.
7. mgr. 16. gr. laganna orðast svo:Ef ófyrirséð og/eða óviðráðanleg atvik valda því að framboð raforku fullnægir ekki eftirspurn á dreifiveitusvæði og önnur úrræði duga ekki til ber viðkomandi dreifiveitu að grípa til skömmtunar raforku til notenda. Við skömmtun skulu njóta forgangs heimilisnotendur og mikilvægir samfélagsinnviðir. Við skömmtun skal að öðru leyti gæta jafnræðis og byggja á málefnalegum sjónarmiðum sem nánar skulu útfærð í reglugerð.
5. gr.
Í stað tilvísunarinnar „19. tölul.“ í 18. gr. b laganna kemur: 20. tölul.6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 5. júlí 2025.