Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 589, 157. löggjafarþing 263. mál: endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi (framlenging gildistíma o.fl.).
Lög nr. 105 24. desember 2025.
Ákvörðun nefndar um endurgreiðslur skv. 3. og 5. gr. og framlengingu skv. 4. mgr. 4. gr. er kæranleg til ráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga.
Ráðherra setur á laggirnar starfshóp sem skal endurskoða ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og að lokinni þeirri endurskoðun skila tillögum til breytinga til ráðherra fyrir 1. mars 2026.
Ákvæði til bráðabirgða.
Aðili máls, þar sem beiðni um útborgun endurgreiðslu sem barst á árinu 2024 og 2025 hefur verið hafnað að hluta eða öllu leyti á grundvelli 2. málsl. 3. mgr.
2. gr. laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999, eins og ákvæðið var orðað fyrir gildistöku laga þessara, á rétt á að óska eftir endurupptöku málsins.
Nefnd um endurgreiðslur skal innan 60 daga frá gildistöku laga þessara senda þeim aðilum, sem ákvæði þetta tekur til, tilkynningu um rétt þeirra til að óska eftir endurupptöku. Beiðni um endurupptöku skal berast nefndinni innan 90 daga frá dagsetningu tilkynningar nefndarinnar.
Berist nefndinni beiðni skv. 1. mgr. innan tilskilins frests skal hún taka málið til nýrrar efnismeðferðar að því er varðar þann hluta beiðninnar er lýtur að launa- og verktakakostnaði. Við þá meðferð skal leggja til grundvallar ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi eins og þau hljóða eftir gildistöku laga þessara.
Þingskjal 589, 157. löggjafarþing 263. mál: endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi (framlenging gildistíma o.fl.).
Lög nr. 105 24. desember 2025.
Lög um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging gildistíma o.fl.).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Í stað orðsins „heildarframleiðslukostnaði“ í 2. málsl. 1. mgr. kemur: framleiðslukostnaði.
- 2. málsl. 3. mgr. fellur brott.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- Á eftir 2. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
- Við 1. málsl. 5. mgr. bætist: sbr. þó 4. mgr.
Framlengingu skv. 3. mgr. er heimilt að veita einu sinni og er hún aðeins veitt ef raunhæft þykir að aðalframleiðslutímabil geti hafist innan árs frá beiðni um framlengingu.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. laganna:- Á eftir 2. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
- Á eftir 5. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Með barnaefni er í lögum þessum átt við kvikmynda- og sjónvarpsefni, þ.m.t. leiknar kvikmyndir, hreyfimyndir og heimildarmyndir, sem sérstaklega er ætlað börnum 12 ára og yngri.
Með ungmennaefni er í lögum þessum átt við kvikmynda- og sjónvarpsefni, þ.m.t. leiknar kvikmyndir, hreyfimyndir og heimildarmyndir, sem sérstaklega er ætlað ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára.
4. gr.
Í stað tilvísunarinnar „3. mgr. 5. gr.“ í a-lið 3. mgr. 5. gr. a laganna kemur: 6. mgr. 5. gr.5. gr.
1. mgr. 6. gr. laganna orðast svo:Ákvörðun nefndar um endurgreiðslur skv. 3. og 5. gr. og framlengingu skv. 4. mgr. 4. gr. er kæranleg til ráðuneytisins, sbr. 1. mgr. 26. gr. stjórnsýslulaga.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:- Í stað tilvísunarinnar „6. mgr. 4. gr.“ kemur: 8. mgr. 4. gr.
- Í stað tilvísunarinnar „6. mgr. 5. gr.“ kemur: 9. mgr. 5. gr.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
7. gr.
Í stað ártalsins „2025“ í 9. gr. laganna kemur: 2028.8. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Ráðherra setur á laggirnar starfshóp sem skal endurskoða ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi og að lokinni þeirri endurskoðun skila tillögum til breytinga til ráðherra fyrir 1. mars 2026.
9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi en ákvæði 1.–6. gr. koma til framkvæmda 1. janúar 2026.Nefnd um endurgreiðslur skal innan 60 daga frá gildistöku laga þessara senda þeim aðilum, sem ákvæði þetta tekur til, tilkynningu um rétt þeirra til að óska eftir endurupptöku. Beiðni um endurupptöku skal berast nefndinni innan 90 daga frá dagsetningu tilkynningar nefndarinnar.
Berist nefndinni beiðni skv. 1. mgr. innan tilskilins frests skal hún taka málið til nýrrar efnismeðferðar að því er varðar þann hluta beiðninnar er lýtur að launa- og verktakakostnaði. Við þá meðferð skal leggja til grundvallar ákvæði laga um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi eins og þau hljóða eftir gildistöku laga þessara.
Samþykkt á Alþingi 17. desember 2025.