Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 590, 157. löggjafarþing 192. mál: viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir (ETS-kerfið).
Lög nr. 106 24. desember 2025.
I. KAFLI
Breyting á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, nr. 96/2023.
Með lögum þessum er ríkisstjórninni heimilað að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2025 frá 11. júlí 2025.
II. KAFLI
Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Þingskjal 590, 157. löggjafarþing 192. mál: viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir (ETS-kerfið).
Lög nr. 106 24. desember 2025.
Lög um breytingu á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (ETS-kerfið).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- 4. tölul. orðast svo: Losun: Losun gróðurhúsalofttegunda frá upptökum í stöð eða losun frá loftfari í flugstarfsemi, sem tilgreind er í I. viðauka, eða frá skipum sem stunda sjóflutningastarfsemi, sem tilgreind er í I. viðauka, á lofttegundum sem eru tilgreindar í tengslum við viðkomandi starfsemi.
- Orðin „hefur starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir og“ í 6. tölul. falla brott.
2. gr.
Í stað orðsins „Umhverfisstofnun“ í 1. málsl. 3. gr. laganna og sama orðs hvarvetna annars staðar í lögunum kemur, í viðeigandi beygingarmynd: Umhverfis- og orkustofnun.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. mgr. 10. gr. laganna:- Á eftir orðunum „um úthlutun losunarheimilda“ kemur: og takmarkanir þar á.
- Á eftir orðinu „orkuúttekt“ kemur: eða gert sambærilegar ráðstafanir.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í reglugerðinni skal jafnframt kveðið á um form og efni kolefnishlutleysisáætlunar og hvenær skerða skal úthlutun ef skilyrði er varða kolefnishlutleysisáætlun eru ekki uppfyllt.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:- Í stað orðanna „er heimilt að“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skal.
- Á eftir orðunum „framkvæmd orkuúttektar“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: eða sambærilegra ráðstafana.
- Á eftir orðunum „skv. I. viðauka, einnig“ í 1. málsl. 4. mgr. kemur: áætlun um losun ef upplýsingar skortir, sem og.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:- Orðin „samkvæmt nánari reglum í reglugerð sem ráðherra setur skv. 4. mgr. 11. gr.“ í 2. mgr. falla brott.
- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er þó heimilt að kveða á um það í reglugerð að víkja megi frá skyldu til að skila losunarheimildum að öllu leyti eða að hluta ef um er að ræða losun frá skipi í ísflokki eða frá skipi í tengslum við siglingu milli hafnar innan EES og hafnar utan EES, milli hafnar í EES-ríki og eyju eða ysta svæðis innan sama ríkis, eða milli landa þegar siglingin er liður í opinberri þjónustu.
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Orðin „og um heimild skipa með ísflokk til að standa skil á færri losunarheimildum“ í 6. mgr. falla brott.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 26. gr. laganna:- Í stað orðanna „flugrekenda og skipafélaga“ í 10. tölul. kemur: og flugrekenda.
- Á eftir 15. tölul. koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Samþykkt vöktunaráætlana vegna losunar frá starfsemi rekstraraðila, sbr. 1. mgr. 11. gr.
- Yfirferð og umsýslu vegna úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda til rekstraraðila.
7. gr.
Á eftir orðunum „upphæð stjórnvaldssekta“ í 1. málsl. 8. mgr. 30. gr. laganna kemur: skv. 5. mgr.8. gr.
Við 33. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Með lögum þessum er ríkisstjórninni heimilað að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2025 frá 11. júlí 2025.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða II í lögunum:- 1. málsl. 4. mgr. orðast svo: Viðbótarúthlutun endurgjaldslausra losunarheimilda til flugrekenda skv. 2. mgr. er háð skilyrði um skil flugrekenda á kolefnishlutleysisáætlun í samræmi við reglugerð ESB um efnisinnihald og uppsetningu kolefnishlutleysisáætlunar sem þörf er á vegna úthlutunar endurgjaldslausra losunarheimilda, sbr. 7. mgr. 10. gr., til Umhverfis- og orkustofnunar.
- Í stað orðsins „skýrslu“ í 6. mgr. kemur: áætlunar.
- Við 7. mgr. bætist: og ákvæði er varða kolefnishlutleysisáætlun skv. 4. mgr.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á töflu í I. viðauka laganna:- Í stað tilvísunarinnar „12. gr.“ í 2. mgr. kemur: 11. gr.
- 2. mgr. undir starfseminni „Flug“ flyst og verður 3. mgr.
- Í stað tilvísunarinnar „l-lið“ í 2. málsl. j-liðar og k-lið 3. mgr. undir starfseminni „Flug“ kemur: l- og m-lið.
11. gr.
Í stað orðsins „loftslagsmál“ í 3. mgr. 33. gr. f laganna kemur: viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.12. gr.
Í stað orðsins „loftslagsmál“ í 1., 2. og 4. mgr. 37. gr. laganna kemur: viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir.13. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 17. desember 2025.