Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1474, 157. löggjafarþing 688. mál: skráning, merki og mat fasteigna (matsverð fasteigna í Grindavíkurbæ).
Lög nr. 69 28. júní 2026.

Lög um breytingu á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001 (matsverð fasteigna í Grindavíkurbæ).


1. gr.

     Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
     Þrátt fyrir ákvæði 27. gr. skal matsverð fasteigna í sveitarfélaginu Grindavíkurbæ vegna ársins 2027 miðast við sama verð og fasteignamat ársins 2024, þ.e. gangvirði eigna í febrúar 2023.

2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 19. júní 2026.