31.3.2026

Forseti Alþingis sækir minningarathöfn og ráðstefnu í Bútsja í Úkraínu

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sótti í dag ráðstefnu í bænum Bútsja í Úkraínu þar sem þess var minnst að fjögur ár eru liðin frá því að Úkraínuher hrakti Rússlandsher frá bænum. Ruslan Stefanchuk, forseti úkraínska þingsins, bauð af þessu tilefni þingforsetum og fulltrúum evrópskra þjóðþinga til Bútsja. Er þetta í annað sinn sem ráðstefnan er haldin.

Áður en ráðstefnan hófst sóttu gestir minningarstund í kirkju heilags Andrésar um fórnarlömb voðaverka rússneska hersins. Þá áttu forsetar þjóðþinganna fund með Volodomír Selenskí, forseta Úkraínu.

Í ávarpi sínu sagði forseti Alþingis blendnar tilfinningar að snúa aftur til Bútsja. Bæði sorg yfir stöðu mála í Úkraínu og þeirri staðreynd að ólögleg allsherjarinnrás Rússa hefur nú staðið yfir á fimmta ár, en líka aðdáun á hugrekki og baráttuvilja úkraínsku þjóðarinnar. Lýsti hún áframhaldandi fullum stuðningi Íslands við málstað Úkraínu.

IMG_7323

IMG_7330