4.9.2026

Heimsókn breskra þingmanna

Sendinefnd breskra þingmanna heimsótti Alþingi í morgun. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók á móti gestunum. Þingmennirnir eiga sæti í vinahópi Íslands á breska þinginu, sem hefur það hlutverk að efla tengsl þjóðþinganna.

Síðar í dag heimsækir sendinefndin Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, á Bessastöðum og fundar með Þorgerði K. Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og fulltrúum utanríkismálanefndar Alþingis.

Bresku þingmennirnir funda einnig með fulltrúum Seðlabanka Íslands og heimsækja Brim til að kynna sér stöðu efnahagsmála og sjávarútvegs. Þá hittir hópurinn fulltrúa bresk-íslenska viðskiptaráðsins.

Pro-3SbJL61S