Kvenþingforsetar funda í Genf
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sækir 15. ráðstefnu kvenþingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins sem haldin er í Genf í dag, 28. júlí. Ráðstefnan er haldin í aðdraganda heimsráðstefnu þingforseta sem standa mun næstu þrjá daga í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Genf.
Þema fundar kvenþingforseta er leiðir til friðar, en í ár eru 25 ár frá því að Öryggisráð SÞ samþykkti ályktun nr. 1325 um konur, frið og öryggi. Jafnframt er þess minnst að 30 ár eru frá Peking-sáttmálanum, sem samþykktur var á fjórðu kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, og 10 ár frá samþykkt Heimsmarkmiða SÞ.
Í ávarpi við setningu ráðstefnu lagði forseti Alþingis áherslu á hlutverk þjóðþinga við að sinna eftirliti með framkvæmd stefnu um konur, frið og öryggi, mikilvægi þess að vernda konur og stúlkur fyrir kynbundnu ofbeldi í átökum og síðast en ekki síst að rödd og áhrif kvenna væru forsenda friðar. Þá fordæmdi hún harðlega ólöglega innrás Rússlands í Úkraínu og þjóðernishreinsanir ísraelskra stjórnvalda á Gaza.
Ljósmynd / Svissneska þingið