20.6.2025

NATO-þingið 70 ára

Bryndís Haraldsdóttir, 1. varaforseti Alþingis, og Dagur B. Eggertsson, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, sækja leiðtogafund NATO-þingsins sem haldinn er í Brussel í dag. Til fundarins er boðið forsetum þjóðþinga aðildarríkja og formönnum landsdeilda, en í ár fagnar NATO-þingið 70 ára afmæli. Ísland var stofnaðili að Norður-Atlantshafsbandalaginu, NATO, og Alþingi hefur frá upphafi átt fulltrúa á NATO-þinginu, sem var við stofnun í París 1955 nefnt „ráðstefna þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna“.

54601041112_5d5615b79b_o

Ljósmynd / NATO-þingið


Í ávarpi sínu lagði Bryndís áherslu á hlut kvenna í umræðum og ákvörðunum um öryggis- og varnarmál og nefndi sértaklega ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi, þar sem m.a. er lögð áhersla á að berjast gegn skipulögðu kynbundnu ofbeldi í átökum. Þá benti hún á breytta stöðu Íslands og mikilvægi norðurslóða í þeim öryggisáskorunum sem Evrópa og Atlantshafsbandalagið standa frammi fyrir. Einnig undirstrikaði Bryndís mikilvægi góðs samstarfs þvert á Atlantsála.