Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um aðild Íslands að alþjóðasamningi um ræðissamband
1978 nr. 4 24. febrúar
1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að gerast aðili fyrir Íslands hönd að alþjóðasamningi um ræðissamband sem gerður var í Vínarborg 24. apríl 1963 og prentaður er sem fylgiskjal með lögum þessum, 1) svo og að viðbótarbókunum varðandi ríkisborgararétt og skyldubundna lausn deilumála.
Ákvæði samningsins skulu hafa lagagildi á Íslandi.
1)Um fylgiskjal, sjá Stjtíð. A 1978, bls. 7–49.
2. gr. Ráðherra getur sett nánari reglur um framkvæmd laga þessara.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. …