Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 1998. Útgáfa 122b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um sölu notaðra ökutækja1)
1994 nr. 69 11. maí
1)Falla úr gildi 1. janúar 1999 skv. l. 28/1998, 26. gr.
I. kafli. Heimild til að hafa með höndum sölu á notuðum ökutækjum.
1. gr. [Lög þessi taka til sölu notaðra skráningarskyldra ökutækja sem fram fer með eftirgreindum hætti:
1. Milliganga um sölu notaðra skráningarskyldra ökutækja þegar slík viðskipti eru þáttur í atvinnustarfsemi milligönguaðilans.
2. Sala á notuðum skráningarskyldum ökutækjum í eigu seljandans þegar slík viðskipti eru þáttur í atvinnustarfsemi hans.
Lögin taka ekki til nauðungarsölu notaðra ökutækja.] 1)
1)L. 20/1997, 1. gr.
2. gr. [Hver sá sem vill reka verslun eða umboðssölu með notuð ökutæki skal hafa til þess sérstakt leyfi viðskiptaráðherra.
Viðskiptaráðuneytið skal halda skrá yfir þá sem leyfi hafa til starfsemi samkvæmt lögum þessum.
Heimilt er bifreiðasala að leggja inn til ráðuneytisins starfsleyfi sitt. Óheimilt er honum að segja upp starfsábyrgðartryggingu sinni fyrr en að fenginni staðfestingu ráðuneytisins á innlögn leyfisins.] 1)
1)L. 20/1997, 2. gr.
3. gr. Leyfi skv. 2. gr. skal veitt til fimm ára í senn og verður einungis veitt einstaklingum eða lögaðilum sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
1. Eru búsettir á Íslandi.
2. Hafa náð tuttugu ára aldri.
3. [Eru lögráða og mega ekki á síðustu þremur árum hafa í tengslum við atvinnurekstur hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða opinber gjöld, svo og lögum um sölu notaðra ökutækja.] 1)
4. [Hafa forræði á búi sínu.] 1)
5. [Hafa lagt fram skírteini því til sönnunar að þeir hafi tekið ábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu vátryggingafélagi, aflað sér bankatryggingar eða lagt fram aðrar tryggingar sem ráðherra metur gildar og bæta viðskiptamönnum tjón er þeir kunna að baka þeim með störfum sínum sem bifreiðasalar. Nánari ákvæði um ábyrgðartrygginguna, m.a. um lágmarksfjárhæð og vátryggingaskilmála, skulu ákveðin með reglugerð. 2)] 1)
[6.] 1) Hafa sótt námskeið og lokið þar prófi samkvæmt prófkröfum sem settar eru í reglugerð 3) sem ráðherra ákveður. Kostnað vegna námskeiða og prófa skal greiða með kennslu- og prófgjöldum er viðskiptaráðuneytið ákveður. Ráðherra er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði mæli sérstakar ástæður með því.
[Meiri hluti stjórnarmanna lögaðila skal fullnægja skilyrðum 1.–4. tölul. 1. mgr.] 1) Þó eru stjórnarmenn, sem búsettir eru í aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins, undanþegnir búsetuskilyrðum 1. tölul. Ráðherra getur veitt ríkisborgurum annarra ríkja sömu undanþágu. [Framkvæmdastjóri fyrirtækisins eða yfirmaður viðkomandi starfsemi innan þess skal fullnægja skilyrðum 1.–4. og 6. tölul. 1. mgr.] 1)
[Aðili sem sviptur hefur verið leyfi skv. 9. gr. skal sitja námskeið og standast prófkröfur, sbr. 6. tölul., áður en honum er veitt starfsleyfi á ný.] 1)
1)L. 20/1997, 3. gr. 2)Rg. 84/1998. 3)Rg. 407/1994.
4. gr. Bifreiðasali skal afla upplýsinga, sem staðfestar skulu skriflega af seljanda, um akstur og ástand skráningarskylds ökutækis, svo og annarra þeirra upplýsinga sem kaupanda eru nauðsynlegar vegna kaupanna. [Gögn þessi skulu fylgja afsali og skal bifreiðasali jafnframt varðveita þau í eitt ár frá söludegi viðkomandi ökutækis.] 1)
Þá skal fylgja vottorð úr ökutækjaskrá sem sýnir ótvírætt að seljandi sé eigandi þess ökutækis sem selt er eða hafi umboð til sölunnar. Bifreiðasali skal staðfesta að fullnægjandi ástandslýsing, sbr. 1. mgr., fylgi ökutæki og einnig skal hann staðreyna upplýsingar um eiganda ökutækis og hvort veðbönd hvíli á ökutækinu.
Ráðherra er heimilt með reglugerð 2) að mæla fyrir um þær lágmarksupplýsingar sem lagðar skulu fram við sölu notaðra ökutækja og fram eiga að koma í kaupsamningi og afsali vegna sölu notaðra ökutækja. [Þar á meðal er ráðherra heimilt að kveða á um sérstaka skrá þar sem fram komi fyrri eigendur og tjónaferill viðkomandi ökutækis.] 1)
1)L. 20/1997, 4. gr. 2)Rg. 654/1997.
II. kafli. Réttindi og skyldur bifreiðasala.
5. gr. Bifreiðasali skal í hvívetna leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hann skal gæta þess að viðskiptamenn hans njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir skilmálar í samningum. Bifreiðasali ber ábyrgð á verkum starfsmanna sinna við sölu ökutækja sem hefði hann sjálfur framkvæmt þau. Bifreiðasali skal, áður en gengið er frá afsali notaðs ökutækis, greina kaupanda með sannanlegum hætti frá þeim rétti hans að láta óháðan aðila meta ástand ökutækis, svo sem faggilta skoðunarstofu eða faggilt skoðunarverkstæði. Slíkt mat skal gert á kostnað kaupanda nema um annað verði samið.
[Bifreiðasali skal með áberandi hætti vekja athygli á gjaldskrá fyrir söluþóknun, þar á meðal þegar um skipti á bifreiðum er að ræða. Einnig er skylt að leyfisbréf vegna starfseminnar liggi frammi á starfsstöð.] 1)
Hafi bifreiðasali ástæðu til að ætla að ástandi ökutækis sé ábótavant ber honum að vekja athygli kaupanda á þeim annmarka.
1)L. 20/1997, 5. gr.
6. gr. Bifreiðasali skal annast um að endanlega sé gengið frá kaupsamningi, afsali og öðrum skjölum vegna viðskipta á hans vegum og skal geta þess í skjölunum, þar á meðal í kauptilboðum, kaupsamningum, afsölum og skuldabréfum, hver samið hafi og greina nafn hans svo að eigi verði um villst.
Bifreiðasali skal ábyrgjast að tilkynning um eigendaskipti sé send ökutækjaskrá án tafar.
7. gr. Hyggist bifreiðasali, fyrirtæki er hann starfar við eða aðrir starfsmenn við sölu notaðs ökutækis selja eigið ökutæki eða kaupa ökutæki sem þessum aðila hefur verið falið að annast sölu á og skal þá viðskiptamanni kynnt það sérstaklega og þess jafnframt getið í kaupsamningi. Sama gildir um maka og náin skyldmenni bifreiðasala eða starfsmanna við söluna.
8. gr. Þeim einum er rétt að nefna sig bifreiðasala sem fengið hefur leyfi til sölu notaðra ökutækja samkvæmt lögum þessum.
III. kafli. [Eftirlit.]1)
1)L. 20/1997, 6. gr.
9. gr. [Eftirlit með starfsemi bifreiðasala er í höndum lögreglustjóra í því umdæmi þar sem starfsstöð bifreiðasala er.
Nú fylgir bifreiðasali ekki lögum og reglum sem um starfsemi þessa gilda þrátt fyrir tilmæli lögreglustjóra eða fullnægir ekki lengur skilyrðum laganna, og skal þá lögreglustjóri tilkynna það viðskiptaráðherra sem sviptir viðkomandi starfsleyfi.
Nú rekur aðili starfsemi sem leyfi þarf til samkvæmt lögum þessum án tilskilinna réttinda, og skal þá lögreglustjóri þegar í stað stöðva þá starfsemi, þar á meðal með lokun starfsstöðvar.] 1)
1)L. 20/1997, 7. gr.
IV. kafli. Viðurlög og gildistaka.
10. gr. Brot gegn lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim varðar sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
[11. gr. Viðskiptaráðherra fer með framkvæmd laga þessara. Honum er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þeirra með reglugerð.] 1)
1)L. 20/1997, 8. gr.
[12. gr.]1) Lög þessi öðlast þegar gildi.
1)L. 20/1997, 8. gr.
Ákvæði til bráðabirgða. …