Lagasafn. Íslensk lög í janúar 2002. Útgáfa 127a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.
2001 nr. 75 31. maí
1. gr.
Heimild til sölu.

Heimilt er að selja allt hlutafé ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf.
2. gr.
Skuldbindingar.

Um skuldbindingar og starfsemi Landssíma Íslands hf. á sviði fjarskipta fer samkvæmt leyfisbréfi útgefnu af Póst- og fjarskiptastofnun og reglugerð um alþjónustu.
3. gr.
Gildistaka.

Lög þessi taka þegar gildi.

…
Ákvæði til bráðabirgða. Þrátt fyrir ákvæði til bráðabirgða II í
lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, skal hlutabréf ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf., útgefið 23. janúar 1998, vera ógilt við útgáfu á rafbréfum í félaginu í verðbréfamiðstöð án undangenginnar innköllunar.

Ákvæði 1. mgr. 20. gr. laga um hlutafélög gildir ekki um Landssíma Íslands hf. á meðan hlutafé er að fullu í eigu ríkissjóðs.

Samgönguráðherra fer með eignarhlutdeild ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf.