Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2009. Útgáfa 137. Prenta í tveimur dálkum.
Forsetaúrskurður um sendiráð, fastanefndir hjá alþjóðastofnunum og sendiræðisskrifstofur
2007 nr. 90 28. mars
Tók gildi 26. apríl 2007.
Samkvæmt tillögu utanríkisráðherra og með vísan til 4. gr. laga nr. 39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands eru hér með sett eftirfarandi ákvæði:
1. a. Sendiráð skulu vera í Berlín, Brussel, Colombo, Helsinki, Kampala, Kaupmannahöfn, Lilongwe, London, Managua, Mapútó, Moskvu, Nýju-Delhi, Ottawa, Ósló, París, Peking, Pretoríu, Stokkhólmi, Tókýó, Washington og Windhoek. Sendiráðin í London og París skulu jafnframt gegna hlutverki fastanefnda gagnvart nánar tilteknum alþjóðastofnunum.
b. Fastanefndir skulu vera í Brussel, Genf, New York, Róm, Strassborg og Vín. Fastanefndirnar skulu jafnframt gegna hlutverki sendiráðs gagnvart nánar tilteknum ríkjum.
c. Aðalræðisskrifstofur skulu vera í New York, Winnipeg og Þórshöfn.
2. Umdæmi sendiráða skulu vera sem hér segir:
a. Berlín. Auk Þýskalands skal umdæmi sendiráðsins vera Búlgaría, Króatía og Pólland.
b. Brussel. Auk Belgíu skal umdæmi sendiráðsins vera Lúxemborg og Sviss. Forstöðumaður sendiráðsins skal vera sendiherra Íslands hjá Evrópusambandinu (ESB/EU).
c. Colombo. Umdæmi sendiráðsins skal vera Srí Lanka. Sendiherra Íslands gagnvart Srí Lanka skal sitja í Nýju-Delhi.
d. Helsinki. Auk Finnlands skal umdæmi sendiráðsins vera Eistland, Lettland, Litháen og Úkraína.
e. Kampala. Umdæmi sendiráðsins skal vera Úganda. Sendiherra Íslands gagnvart Úganda skal sitja í Pretoríu.
f. Kaupmannahöfn. Auk Danmerkur skal umdæmi sendiráðsins vera Ísrael, Rúmenía, Slóvenía og Tyrkland.
g. Lilongwe. Umdæmi sendiráðsins skal vera Malaví. Sendiherra Íslands gagnvart Malaví skal sitja í Pretoríu.
h. London. Auk Bretlands skal umdæmi sendiráðsins vera Holland, Írland, Jórdanía, Katar, Líbanon, Makedónía (fyrrum Sambandslýðveldi Júgóslavíu), Malta og Nígería. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni.
i. Managua. Umdæmi sendiráðsins skal vera Níkaragva. Sendiherra Íslands gagnvart Níkaragva skal sitja í Ottawa.
j. Mapútó. Umdæmi sendiráðsins skal vera Mósambík. Sendiherra Íslands gagnvart Mósambík skal sitja í Pretoríu.
k. Moskva. Auk Rússlands skal umdæmi sendiráðsins vera Armenía, Aserbaídsjan, Georgía, Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kirgisía, Moldóva, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.
l. Nýja-Delhi. Auk Indlands skal umdæmi sendiráðsins vera Bangladess, Indónesía, Malasía, Maldíveyjar, Máritíus, Nepal, Seychelleseyjar og Singapúr. Sendiherra Íslands í Nýju-Delhi skal einnig vera sendiherra gagnvart Srí Lanka.
m. Ottawa. Auk Kanada skal umdæmi sendiráðsins vera Belís, Bólivía, Ekvador, Hondúras, Kostaríka, Kólumbía, Panama, Perú, Úrúgvæ og Venesúela. Sendiherra Íslands í Ottawa skal einnig vera sendiherra gagnvart Níkaragva.
n. Ósló. Auk Noregs skal umdæmi sendiráðsins vera Barein, Egyptaland, Grikkland, Íran, Jemen, Líbía, Óman, Pakistan, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Súdan.
o. París. Auk Frakklands skal umdæmi sendiráðsins vera Alsír, Andorra, Marokkó, Portúgal, San Marínó, Spánn og Túnis. Sendiráðið skal gegna hlutverki fastanefndar gagnvart Efnahagssamvinnu- og þróunarstofnuninni (OECD) og Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Sendiherra Íslands í París skal einnig vera sendiherra gagnvart Ítalíu.
p. Peking. Auk Kína skal umdæmi sendiráðsins vera Ástralía, Kambódía, Laos, Mongólía, Norður-Kórea (Alþýðulýðveldið Kórea), Nýja-Sjáland, Suður-Kórea (Lýðveldið Kórea) og Víetnam.
r. Pretoría. Auk Suður-Afríku skal umdæmi sendiráðsins vera Angóla, Benín, Botsvana, Eþíópía, Gana, Kenía, Lesótó, Malí, Sambía, Senegal, Svasíland og Tansanía. Sendiherra Íslands í Pretoríu skal einnig vera sendiherra gagnvart Malaví, Mósambík, Namibíu og Úganda.
s. Stokkhólmur. Auk Svíþjóðar skal umdæmi sendiráðsins vera Albanía, Írak, Kúveit, Kýpur, Sádi-Arabía, Serbía og Sýrland.
t. Tókýó. Auk Japans skal umdæmi sendiráðsins vera Austur-Tímor, Brúnei Darússalam, Filippseyjar, Papúa Nýja-Gínea og Taíland.
u. Washington. Auk Bandaríkjanna skal umdæmi sendiráðsins vera Argentína, Brasilía, Chile, El Salvador, Gvatemala og Mexíkó.
v. Windhoek. Umdæmi sendiráðsins skal vera Namibía. Sendiherra Íslands gagnvart Namibíu skal sitja í Pretoríu.
3. Fyrirsvar fastanefnda skal vera sem hér segir:
a. Brussel. Auk Atlantshafsbandalagsins (NATO) og stofnana tengdum því skal fastanefndin fara með fyrirsvar gagnvart Vestur-Evrópusambandinu (VES/WEU) og Stofnuninni um bann við efnavopnum (OPCW) í Haag í Hollandi. Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Afganistan.
b. Genf. Auk Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) skal fastanefndin fara með fyrirsvar gagnvart skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf, Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO), Alþjóðafjarskiptasambandinu (ITU), Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO), Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) og Alþjóðavinnumálastofnuninni (ILO). Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Liechtenstein.
c. New York. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York. Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Bahamaeyjum, Barbadoseyjum, Dóminíska lýðveldinu, Grenada, Gvæana, Jamaíka og Kúbu.
d. Róm. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart stofnunum Sameinuðu þjóðanna í Róm: Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) og Alþjóðasjóði um þróun landbúnaðar (IFAD). Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Ítalíu, en sendiherra Íslands gagnvart Ítalíu skal sitja í París.
e. Strassborg. Auk þess að fara með fyrirsvar gagnvart Evrópuráðinu skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Páfagarði.
f. Vín. Fastanefndin skal fara með fyrirsvar gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE/OSCE), skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV), Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) og skrifstofu undirbúningsnefndar samningsins um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (CTBTO). Jafnframt skal fastanefndin gegna hlutverki sendiráðs gagnvart Austurríki, Bosníu og Hersegóvínu, Slóvakíu, Svartfjallalandi, Tékklandi og Ungverjalandi.
4. Umdæmi aðalræðisskrifstofa skal vera sem hér segir:
a. New York. Auk New York fylkis skal umdæmi aðalræðisskrifstofunnar vera fylkin Connecticut, New Jersey og Rhode Island.
b. Winnipeg. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera héraðið Manitoba, fylkið Saskatchewan, að undanskilinni borginni Regina, og fylkið Alberta, að undanskildum borgunum Calgary og Edmonton.
c. Þórshöfn. Umdæmi aðalræðisskrifstofunnar skal vera Færeyjar.
5. Utanríkisráðuneytið fer með fyrirsvar gagnvart öðrum ríkjum sem Ísland hefur stjórnmálasamband við, m.a. með skipun sendiherra með búsetu í Reykjavík eftir því sem ástæða er til:
a. Ameríka: Antígva og Barbúda, Dóminíka, Haiti, Paragvæ, Sankti Kristófer og Nevis, Sankti Lúsía, Sankti Vinsent og Grenadíneyjar, og Súrinam.
b. Afríka: Búrkína Fasó, Búrúndí, Djíbútí, Erítrea, Fílabeinsströndin, Gabon, Gambía, Gínea, Gínea-Bissá, Grænhöfðaeyjar, Lýðveldið Kongó (Brazzaville), Kómoraeyjar, Líbería, Madagaskar, Máritanía, Miðbaugs-Gínea, Níger, Rúanda, Síerra Leóne, Sómalía, Tógó og Tsjad.
c. Kyrrahafsríki: Kíribatí, Marshalleyjar, Míkrónesía, Narú, Palá, Samóa, Túvalú og Vanúatú.
Úrskurður þessi öðlast þegar gildi. …