Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2013. Útgáfa 142. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um fjárhagslegar tryggingarráðstafanir
2005 nr. 46 13. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. maí 2005. EES-samningurinn: XII. viðauki tilskipun 2002/47/EB.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við innanríkisráðherra eða innanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. Opinber stjórnvöld, þ.m.t. stjórnvöld sem eru ábyrg fyrir eða taka þátt í umsjón með opinberri skuldbindingu eða færa reikninga fyrir viðskiptamenn, að undanskildum fyrirtækjum með ríkisábyrgð sem ekki falla undir 2.–6. tölul.
2. Seðlabankar, Seðlabanki Evrópu, Alþjóðagreiðslubankinn, Alþjóðabankinn, Alþjóðalánastofnunin, Þróunarbanki Ameríkuríkja, Þróunarbanki Asíu, Þróunarbanki Afríku, Viðreisnarsjóður Evrópuráðsins, Norræni fjárfestingarbankinn, Þróunarbanki Mið- Ameríkuríkja, Endurreisnar- og þróunarbanki Evrópu, Fjárfestingarsjóður Evrópu, Fjárfestingarlánastofnun Ameríkuríkja, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Fjárfestingarbanki Evrópu.
3. Eftirfarandi starfsleyfisskyldar stofnanir sem háðar eru opinberu eftirliti:
a. fjármálafyrirtæki, sbr. 4. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki,
b. vátryggingafélög og líftryggingafélög, sbr. lög nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi,
c. verðbréfasjóðir, sbr. 1. tölul. 2. gr. laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði,
d. lánastofnanir, fjárfestingarfyrirtæki, fjármálastofnanir, vátryggingafélög, líftryggingafélög, fyrirtæki um sameiginlega fjárfestingu í framseljanlegum verðbréfum og rekstrarfélög verðbréfasjóða sem hafa staðfestu og starfsleyfi í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu.
4. Milligönguaðili, uppgjörsaðili og greiðslujöfnunarstöð, sbr. 2. gr. laga nr. 90/1999, um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum, sambærilegar stofnanir sem starfa samkvæmt landslögum í tengslum við markaði með staðlaða framvirka samninga, valrétti og afleiður, og sambærilegar erlendar stofnanir sem hafa staðfestu og starfsleyfi í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu.
5. Lögaðili sem starfar við eignaumsýslu eða í umboði annars eða annarra, þ.m.t. kröfuhafa eða stofnana skv. 1.–5. tölul.
6. Lögaðili, sem ekki fellur undir 1.–5. tölul., ef gagnaðili samningsins er stofnun eða lögaðili sem fellur undir 1.–5. tölul.
1. Fjármálagerningur: Verðbréf, afleiður, hlutdeildarskírteini, peningamarkaðsskjöl og framseljanleg veðréttindi í fasteignum og lausafé, sbr. 2. tölul. 2. gr. laga nr. 33/2003, um verðbréfaviðskipti, að undanskildum eigin hlutabréfum tryggingarveitanda, hlutabréfum hans í móðurfélagi eða dótturfélagi og óskráðum hlutabréfum hans í félögum sem eingöngu er ætlað að eiga fasteignir.
2. Fjárskuldbindingar: Skuldbindingar sem tilgreint er í samningi um fjárhagslega tryggingarráðstöfun að beri að efna að viðlögðum vanefndaúrræðum sem felast í rétti til að ganga að fjárhagslegri tryggingu.
3. Reiðufé: Innstæða á reikningi hjá lánastofnun eða seðlabanka og sambærilegar kröfur um endurgreiðslu peninga í hvaða gjaldmiðli sem er, þ.m.t. peningamarkaðsinnstæða, sem heimilt er að setja sem fjárhagslega tryggingu.
4. Sambærileg trygging: Ef fjárhagslega tryggingin er reiðufé er með sambærilegri tryggingu átt við greiðslu sömu fjárhæðar í sama gjaldmiðli. Ef fjárhagslega tryggingin er fjármálagerningur er með sambærilegri tryggingu átt við fjármálagerninga af sömu útgáfu eða flokki að sama nafnverði, í sama gjaldmiðli og að öðru leyti sama eðlis og tryggingin, eða aðrar eignir ef samningurinn veitir rétt til að leggja þær fram vegna atburðar sem hefur áhrif á fjármálagerningana sem veðsettir voru.
5. Samningur um fjárhagslega tryggingarráðstöfun: Samningur tryggingarveitanda og tryggingarhafa sem tilgreindir eru í 1. gr. um framsal eignarréttinda yfir fjárhagslegri tryggingu eða samningur þessara aðila um veðsetningu á fjárhagslegri tryggingu.
6. Samningur um framsal eignarréttinda yfir fjárhagslegri tryggingu: Samningur, þ.m.t. endurkaupasamningur, um að eigandi fjárhagslegrar tryggingar framselji öll eignarréttindi sín yfir tryggingunni til framsalshafa til tryggingar á efndum á fjárhagslegum skuldbindingum.
7. Samningur um veðsetningu á fjárhagslegri tryggingu: Samningur um veðsetningu á fjárhagslegri tryggingu þar sem veðþoli veitir veðhafa veðréttindi til tryggingar á efndum á fjárhagslegum skuldbindingum án þess að framselja hinn beina eignarrétt yfir tryggingunni.
8. Skuldajöfnuður til uppgjörs: Lokauppgjör fjárskuldbindinga sem kveðið er á um í samningi um fjárhagslega tryggingarráðstöfun og felst í því að við nánar tilgreindan atburð, t.d. vanefnd, greiðslustöðvun, nauðasamning eða gjaldþrotaskipti, eru skuldbindingar aðilanna gjaldfelldar, metnar til peningalegs verðs með umsömdum hætti og breytt í peningakröfur, sem síðan eru jafnaðar þannig að eftir standi ein peningakrafa, sem skuldari kröfunnar gerir upp gagnvart kröfuhafanum.
9. Staðgöngutrygging: Fjárhagsleg trygging sem kemur í stað upphaflegrar tryggingar samkvæmt ákvæðum samnings um fjárhagslega tryggingarráðstöfun og felur í sér aðra jafngilda tryggingu.
10. Tryggingarhafi: Sá sem öðlast full eignarréttindi yfir eða veðréttindi í fjárhagslegri tryggingu.
11. Tryggingarveitandi: Sá sem framselur eða veðsetur fjárhagslega tryggingu.
12. Viðbótartrygging: Fjárhagsleg trygging sem látin er í té samkvæmt ákvæðum samnings um fjárhagslega tryggingarráðstöfun til samræmis við breytingar á verðgildi upphaflegrar tryggingar eða á fjárhæð tryggðra skuldbindinga.
1. þær hafi verið látnar í té sama dag en áður en kveðinn er upp úrskurður um heimild til greiðslustöðvunar eða nauðasamningsumleitana eða um gjaldþrotaskipti,
2. viðkomandi fjárskuldbindingar hafi stofnast áður en tryggingin, viðbótartryggingin eða staðgöngutryggingin var látin í té.
1. verðgildi reiðufjár sé jafnað á móti fjárskuldbindingunum og gert upp,
2. fjármálagerningar séu seldir,
3. tryggingarhafi taki fjármálagerninga til eignar, enda sé samið um aðferð við verðmat á fjármálagerningunum í samningnum.