Alþingi

Valmynd


Hlusta

Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Félagsmálasáttmáli Evrópu

1976 nr. 3 22. janúar


Tók gildi 14. febrúar 1976. Sáttmálinn var endurskoðaður í Strassborg 3. maí 1996 og öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 1. september 2024, sbr. augl. 69/2024.

   Ríkisstjórnir þær, sem hafa undirritað sáttmála þennan og eru aðilar að Evrópuráðinu,
   hafa í huga, að markmið Evrópuráðsins er að efla einingu meðal aðildarríkjanna í því skyni að standa vörð um og stuðla að framgangi þeirra hugsjóna og meginreglna, sem eru sameiginleg arfleifð þeirra og greiða fyrir efnahagslegum og félagslegum framförum, einkum með því að viðhalda og styrkja jafnt mannréttindi sem mannfrelsi,
   hafa í huga, að með Evrópusamningnum um vernd mannréttinda og mannfrelsis, sem undirritaður var í Róm 4. nóvember 1950, og samningsviðaukum við hann, hafa aðildarríki Evrópuráðsins samþykkt að tryggja íbúum sínum þau borgaralegu og stjórnmálalegu réttindi, sem þar er getið,
   hafa í huga, að með félagsmálasáttmála Evrópu, sem lagður var fram til undirritunar í Torino 18. október 1961 og bókunum við hann, hafa aðildarríki Evrópuráðsins samþykkt að tryggja íbúum sínum þau félagslegu réttindi, sem þar er getið, í þeim tilgangi að bæta lífskjör þeirra og velferð,
   minnast þess, að á ráðherraráðstefnunni um mannréttindi, sem haldin var í Róm 5. nóvember 1990, var annars vegar lögð áhersla á að nauðsynlegt væri að varðveita öll mannréttindi sem órjúfanlega heild, hvort heldur þau eru borgaraleg, stjórnmálaleg, efnahagsleg, félagsleg eða menningarleg, og hins vegar að gera nýtt átak til að glæða félagsmálasáttmála Evrópu,
   eru staðráðnar í, eins og ákveðið var á ráðherraráðstefnunni sem haldin var í Torino 21. og 22. október 1991, að uppfæra og aðlaga inntak sáttmálans, einkum með tilliti til þeirra félagslegu grundvallarbreytinga sem orðið hafa frá því að hann var samþykktur,
   gera sér ljósa kosti þess að sameina í endurskoðuðum sáttmála, sem ætlað er að leysa félagsmálasáttmála Evrópu smám saman af hólmi, réttindin sem tryggð eru með sáttmálanum með áorðnum breytingum, réttindin sem tryggð eru með viðbótarbókuninni frá 1988 og ný réttindi, sem nú bætast við,
   og hafa orðið ásáttar um eftirfarandi:
I. hluti.
Samningsaðilar eru sammála um að það sé markmið stefnu þeirra, sem fylgja ber með öllum tiltækum ráðum, bæði á innlendum og alþjóðlegum vettvangi, að skapa þau skilyrði sem þarf til þess að framfylgja megi eftirfarandi réttindum og meginreglum með góðum árangri:
    1. Allir menn skulu eiga þess kost að vinna fyrir sér í starfi, sem þeir hafa ráðið sig til sjálfviljugir.
    2. Allir launþegar eiga rétt á sanngjörnum vinnuskilyrðum.
    3. Allir launþegar eiga rétt á öruggum og heilsusamlegum vinnuskilyrðum.
    4. Allir launþegar eiga rétt á sanngjörnum launum er nægi fyrir sómasamlegum lífskjörum til handa þeim og fjölskyldum þeirra.
    5. Allir launþegar og vinnuveitendur eiga rétt á að gerast aðilar að samtökum, innlendum eða alþjóðlegum, til að vernda efnahagsleg og félagsleg réttindi sín.
    6. Allir launþegar og vinnuveitendur eiga rétt á að gera kjarasamninga sameiginlega.
    7. Börn og ungmenni eiga rétt á sérstakri vernd gegn líkamlegri og siðferðilegri hættu sem að þeim steðjar.
    8. Við barnsburð eiga vinnandi konur rétt á sérstakri vernd.
    9. Allir menn eiga rétt á viðeigandi aðstöðu til að njóta atvinnuráðgjafar með það fyrir augum að auðvelda þeim að velja sér starf sem henti einstaklingsbundinni hæfni þeirra og áhuga.
    10. Allir menn eiga rétt á viðunandi aðstöðu til starfsmenntunar.
    11. Allir menn eiga rétt á að njóta góðs af hvers kyns ráðstöfunum, er miða að því að tryggja sem best heilsu þeirra.
    12. Allir launþegar og þeir sem eru á framfæri þeirra eiga rétt á almannatryggingum.
    13. Hver sá sem ekki hefur næg fjárráð á rétt á félagslegri aðstoð og heilbrigðisþjónustu.
    14. Allir menn eiga að njóta félagslegrar velferðarþjónustu.
    15. Fatlaðir eiga rétt á sjálfstæði, félagslegri aðlögun og þátttöku í samfélaginu.
    16. Fjölskyldan er hornsteinn þjóðfélagsins og á því rétt á viðeigandi félagslegri, lagalegri og efnahagslegri vernd svo að hún fái notið sín til fulls.
    17. Börn og ungmenni eiga rétt á viðunandi félagslegri, lagalegri og efnahagslegri vernd.
    18. Ríkisborgarar sérhvers aðildarríkis eiga rétt á að leggja stund á hvers kyns arðbæra starfsemi á landsvæði annars aðildarríkis og njóta jafnréttis við ríkisborgara þess síðarnefnda, með fyrirvara um takmarkanir sem byggjast á gildum efnahagslegum eða félagslegum ástæðum.
    19. Farandlaunþegar, sem eru ríkisborgarar aðildarríkis, eiga ásamt fjölskyldu sinni rétt á vernd og aðstoð á landsvæði allra annarra aðildarríkja.
    20. Allir launþegar eiga rétt á sömu tækifærum og sömu kjörum hvað varðar starf og atvinnu, án mismununar vegna kynferðis.
    21. Launþegar eiga rétt á upplýsingum og samráði í fyrirtækinu.
    22. Launþegar eiga rétt á að taka þátt í að móta og bæta vinnuskilyrði og vinnuumhverfi í fyrirtækinu.
    23. Allir aldraðir eiga rétt á félagslegri vernd.
    24. Allir launþegar eiga rétt á vernd ef þeir missa starf sitt.
    25. Allir launþegar eiga rétt á að kröfur þeirra séu tryggðar ef vinnuveitandi verður ógjaldfær.
    26. Allir launþegar eiga rétt á að starfa með reisn.
    27. Öllum þeim sem bera ábyrgð á fjölskyldu og hafa eða vilja hafa atvinnu skal vera frjálst að gera það án þess að sæta mismunun og, eftir því sem unnt er, án þess að til árekstra komi milli atvinnu og fjölskylduábyrgðar.
    28. Fulltrúar launþega innan fyrirtækja eiga rétt á vernd fyrir gjörðum sem geta valdið þeim skaða og eiga þeir að hafa viðunandi aðstöðu til að sinna störfum sínum.
    29. Allir launþegar eiga rétt á upplýsingum og samráði við framkvæmd hópuppsagna.
    30. Allir menn eiga rétt á vernd gegn fátækt og félagslegri útskúfun.
    31. Allir menn eiga rétt á húsnæði.

II. hluti.
Eins og kveðið er á um í III. hluta skuldbinda samningsaðilar sig til að álíta sig bundna af þeim skuldbindingum sem um getur í eftirfarandi greinum og málsgreinum.
1. gr. Réttur til vinnu.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til vinnu skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að fallast á það sem eitt af helstu markmiðum sínum og skyldu að koma á og viðhalda eins mikilli og öruggri atvinnu og unnt er með það fyrir augum að fullri atvinnu verði náð;
    2. að standa með skilvirkum hætti vörð um rétt launþegans til þess að vinna fyrir sér í starfi sem hann hefur ráðið sig til sjálfviljugur;
    3. að koma á eða halda uppi ókeypis vinnumiðlun fyrir alla launþega;
    4. að láta í té eða efla viðeigandi atvinnuráðgjöf, starfsmenntun og endurhæfingu.
2. gr. Réttur til sanngjarnra vinnuskilyrða.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til sanngjarnra vinnuskilyrða skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að kveða á um hæfilegan daglegan og vikulegan vinnutíma og skal vinnuvikan stytt smám saman eftir því sem aukin framleiðni og aðrir viðeigandi þættir leyfa;
    2. að kveða á um launaða almenna frídaga;
    3. að kveða á um að minnsta kosti fjögurra vikna árlegt orlof;
    4. að útrýma áhættu við störf, sem eru í eðli sínu hættuleg eða óheilnæm, og sé ekki unnt að útrýma slíkum áhættuþáttum eða draga nægilega úr þeim, að mæla fyrir um annaðhvort styttri vinnutíma eða viðbótarorlof til handa launþegum sem vinna slík störf;
    5. að tryggja vikulegan hvíldartíma sem skal, eftir því sem unnt er, bera upp á þann vikudag sem telst hefðbundinn eða venjubundinn hvíldardagur í hlutaðeigandi landi eða héraði;
    6. að tryggja að launþegar fái, svo fljótt sem auðið er, og aldrei síðar en tveimur mánuðum eftir að þeir hefja störf, skriflegar upplýsingar um helstu atriði starfssamnings eða ráðningarkjara;
    7. að tryggja að launþegar, sem vinna næturvinnu, njóti góðs af aðgerðum sem miðast við sérstöðu slíkra starfa.
3. gr. Réttur til öruggra og heilsusamlegra vinnuskilyrða.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til öruggra og heilsusamlegra vinnuskilyrða skuldbinda samningsaðilar sig til þess, í samráði við samtök vinnuveitenda og launþega:
    1. að skilgreina, hrinda í framkvæmd og endurskoða með reglulegu millibili heilsteypta innanlandsstefnu um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum og í vinnuumhverfi. Helsta markmið þeirrar stefnu skal vera að auka öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum og að koma í veg fyrir slys og heilsutjón sem hlýst af vinnu, tengist vinnu eða verður við vinnu, einkum með því að draga sem mest úr þeim hættum sem eiginlegar eru vinnuumhverfinu;
    2. að gefa út reglur um öryggi og hollustuhætti;
    3. að fylgja eftir framkvæmd slíkra reglna með eftirlitsaðgerðum;
    4. að efla stöðugt þróun heilbrigðisþjónustu atvinnulífsins fyrir alla launþega þar sem lögð er áhersla á forvarnir og ráðgjöf.
4. gr. Réttur til sanngjarnra launa.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til sanngjarnra launa skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að viðurkenna rétt launþega til launa sem veiti þeim og fjölskyldum þeirra sómasamleg lífsskilyrði;
    2. að viðurkenna rétt launþega til hærri launa fyrir yfirvinnu, með fyrirvara um undantekningar í sérstökum tilvikum;
    3. að viðurkenna rétt karla og kvenna til sömu launa fyrir jafngild störf;
    4. að viðurkenna rétt allra launþega til sanngjarns uppsagnarfrests;
    5. að leyfa aðeins frádrátt frá launum með þeim skilyrðum og að því marki sem innlend lög eða reglur segja til um eða ákveðið er með kjarasamningum eða úrskurði gerðardóms.
Þessum rétti skal ná fram með frjálsum kjarasamningum, lögboðnu kerfi til launaákvörðunar eða öðrum úrræðum sem hæfa aðstæðum í landinu.
5. gr. Réttur til að stofna félög.
Í því skyni að tryggja eða auka frelsi launþega og vinnuveitenda til þess að stofna staðbundin samtök, landssamtök eða alþjóðasamtök til að gæta efnahagslegra og félagslegra hagsmuna sinna og ganga í slík samtök heita samningsaðilar því að landslög muni ekki skerða þetta frelsi né heldur skal þeim beitt í þá veru. Ákvarða skal með innlendum lögum eða reglum að hve miklu leyti tryggingarnar, sem þessi grein kveður á um, skuli ná til lögreglumanna. Enn fremur skal ákvarða með innlendum lögum og reglum hver meginreglan um beitingu slíkra trygginga gagnvart hermönnum skuli vera og að hve miklu leyti þær skuli ná til einstaklinga í þeim hópi.
6. gr. Réttur til kjarasamninga.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til kjarasamninga skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að efla samráð launþega og vinnuveitenda;
    2. að efla, eftir þörfum og atvikum, kerfi frjálsra samningsviðræðna milli vinnuveitenda eða samtaka vinnuveitenda annars vegar og launþegasamtaka hins vegar í þeim tilgangi að samræma almenn atvinnuskilyrði með kjarasamningum;
    3. að stuðla að stofnun og notkun hentugs kerfis sáttargerðar og frjálsra gerðardóma til lausnar vinnudeilum;
og viðurkenna,
    4. rétt launþega og vinnuveitenda til hópaðgerða ef til hagsmunaárekstra kemur, þar á meðal verkfallsrétt, með fyrirvara um skuldbindingar sem kunna að leiða af gildandi kjarasamningum.
7. gr. Réttur barna og ungmenna til verndar.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar barna og ungmenna til verndar skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að kveða á um að lágmarksaldur til starfsráðningar skuli vera 15 ár, með fyrirvara um undantekningar vegna barna, sem ráðin eru til tiltekinna léttra starfa sem skaða ekki heilsu þeirra, siðferði eða menntun;
    2. að kveða á um að lágmarksaldur til starfsráðningar skuli vera 18 ár þegar um er að ræða tiltekin störf sem talin eru hættuleg eða heilsuspillandi;
    3. að kveða á um að börn, sem ekki hafa lokið skyldunámi, skuli ekki ráðin til starfa sem gætu hamlað því að þau fái notið skólagöngu sinnar til fulls;
    4. að kveða á um að vinnutími barna og ungmenna yngri en 18 ára skuli takmarkaður í samræmi við þarfir þeirra og þroska, einkum þörf þeirra á starfsmenntun;
    5. að viðurkenna rétt ungra launþega og lærlinga til sanngjarnra launa eða annarra hæfilegra greiðslna;
    6. að kveða á um að sá tími, sem fer til starfsmenntunar ungmenna í venjulegum vinnutíma með samþykki vinnuveitanda, skuli teljast til vinnutíma;
    7. að kveða á um að launþegar yngri en 18 ára skuli eiga rétt á að minnsta kosti fjögurra vikna orlofi á ári;
    8. að kveða á um að börn og ungmenni yngri en 18 ára skuli ekki ráðin til næturvinnu að undanskildum tilteknum störfum sem kveðið er á um í innlendum lögum eða reglum;
    9. að kveða á um að börn og ungmenni yngri en 18 ára, sem ráðin eru til tiltekinna starfa sem mælt er fyrir um í innlendum lögum eða reglum skuli fara reglulega í læknisskoðun;
    10. að tryggja sérstaka vernd gegn líkamlegri og siðferðilegri hættu sem steðjar að börnum og ungmennum, einkum þeirri sem leiðir beint eða óbeint af vinnu þeirra.
8. gr. Réttur vinnandi kvenna til mæðraverndar.
Í því skyni að tryggja, að réttur vinnandi kvenna til verndar sé raunverulega nýttur, skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að kveða á um að vinnandi konur taki sér leyfi fyrir og eftir fæðingu, samtals eigi skemmra en fjórtán vikur, og njóti þær þá orlofs, bóta almannatrygginga eða bóta úr opinberum sjóðum;
    2. að líta svo á, að ólöglegt sé að vinnuveitandi segi konu upp störfum frá því hún tilkynnir vinnuveitanda um þungun sína uns fæðingarorlofi hennar lýkur, eða að hann segi henni upp störfum þannig að uppsagnarfrestur renni út á því tímabili;
    3. að kveða á um að mæður með börn á brjósti skuli eiga rétt á nægum tíma til brjóstagjafar;
    4. að setja reglur um næturvinnu þungaðra kvenna, þeirra sem nýstignar eru af sæng og mæðra með börn á brjósti;
    5. að banna að þungaðar konur, þær sem nýstignar eru af sæng eða mæður með börn á brjósti séu látnar vinna námuvinnu neðanjarðar eða hverja aðra þá vinnu sem er í eðli sínu hættuleg, heilsuspillandi eða erfið, og að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja rétt slíkra kvenna til atvinnu.
9. gr. Réttur til atvinnuráðgjafar.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til atvinnuráðgjafar skuldbinda samningsaðilar sig til að veita þjónustu eða efla hana, eftir þörfum, til þess að aðstoða alla einstaklinga, einnig fatlaða, við að leysa úr málum sem varða starfsval og starfsframvindu, að teknu tilliti til persónueinkenna hlutaðeigandi og þess hvernig þau nýtast á vinnumarkaði; þessi aðstoð skal veitt að kostnaðarlausu börnum og ungmennum, að meðtöldum skólabörnum, sem og fullorðnum.
10. gr. Réttur til starfsmenntunar.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til starfsmenntunar skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að koma á fót eða efla, eftir þörfum, tæknimenntun og starfsmenntun til handa öllum einstaklingum, einnig fötluðum, í samráði við samtök vinnuveitenda og launþega, og að gera þeim kleift að öðlast aðgang að æðri tæknimenntun og háskólamenntun á forsendum sem eingöngu eru byggðar á hæfni einstaklingsins;
    2. að koma á fót eða efla lærlingakerfi og önnur námskerfi til þess að þjálfa pilta og stúlkur til ýmissa starfa;
    3. að koma á fót eða efla, eftir þörfum:
    a. viðeigandi og aðgengilega námsaðstöðu fyrir fullorðna launþega;
    b. sérstaka aðstöðu til endurmenntunar fyrir fullorðna launþega þegar þörf er á slíku vegna tækniþróunar eða nýrrar stefnu í atvinnumálum;
    4. að sjá þeim sem hafa verið atvinnulausir um langt skeið fyrir endurmenntun eða bæta menntun þeirra og möguleika til enduraðlögunar;
    5. að stuðla að því að sú aðstaða sem býðst nýtist til fulls með því að gera eftirfarandi ráðstafanir:
    a. lækka eða fella niður hvers kyns gjöld;
    b. veita fjárhagsaðstoð þar sem við á;
    c. fella þann tíma, sem launþegi ver til viðbótarnáms að beiðni vinnuveitanda meðan á ráðningu stendur, inn í venjulegan vinnutíma;
    d. tryggja með hæfilegu eftirliti, í samráði við samtök vinnuveitenda og launþega, skilvirkni lærlingakerfis og annarra námskerfa fyrir unga launþega svo og almenna vernd ungra launþega.
11. gr. Réttur til heilsuverndar.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til heilsuverndar skuldbinda samningsaðilar sig til þess að gera viðeigandi ráðstafanir, annaðhvort beint eða í samvinnu við opinberar stofnanir eða einkasamtök, sem miða meðal annars að því:
    1. að útrýma orsökum vanheilsu eins og framast er unnt;
    2. að láta í té ráðgjafar og fræðsluþjónustu til heilsueflingar, enn fremur að stuðla að aukinni ábyrgðartilfinningu einstaklinga í heilbrigðismálum;
    3. að koma eins og framast er unnt í veg fyrir farsóttir, landlæga sjúkdóma og aðra sjúkdóma.
12. gr. Réttur til almannatrygginga.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til almannatrygginga skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að koma á fót eða viðhalda almannatryggingakerfi;
    2. að halda uppi almannatryggingakerfi á viðunandi stigi og jafnist það að minnsta kosti á við það sem er forsenda fullgildingar Evrópureglna um félagslegt öryggi;
    3. að leitast við að koma almannatryggingakerfi smám saman á hærra stig;
    4. að gera, með viðeigandi tvíhliða og marghliða samningum eða eftir öðrum leiðum og með fyrirvara um skilyrðin sem sett eru í slíkum samningum, ráðstafanir til þess að tryggja:
    a. jafnræði milli eigin ríkisborgara og ríkisborgara annarra samningsaðila hvað varðar rétt til almannatrygginga, þar á meðal bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar, hvernig sem þeir sem njóta verndar færa sig á landsvæði samningsaðilanna;
    b. að réttur til almannatrygginga fáist, að honum sé haldið og hann endurheimtur, til dæmis með því að leggja saman trygginga eða starfstímabil sem lokið er samkvæmt löggjöf hvers samningsaðila.
13. gr. Réttur til félagslegrar aðstoðar og heilbrigðisþjónustu
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til félagslegrar aðstoðar og heilbrigðisþjónustu skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að tryggja nægilega aðstoð til handa hverjum þeim sem hefur ónóg fjárráð og getur ekki aflað sér fjár af eigin rammleik eða eftir öðrum leiðum, einkum með því að fá greiðslur úr bótakerfi almannatrygginga, og sé um veikindi að ræða, að tryggja honum þá umönnun sem nauðsynleg er vegna ástands hans;
    2. að tryggja að stjórnmálaleg eða félagsleg réttindi þeirra sem slíkrar aðstoðar njóta skerðist ekki af þeim sökum;
    3. að sjá til þess að allir geti notið ráðgjafar og persónulegrar aðstoðar eftir þörfum hjá viðeigandi opinberri eða einkarekinni þjónustu svo að koma megi í veg fyrir skort, draga úr honum eða útrýma, hvort sem í hlut eiga einstaklingar eða fjölskyldur þeirra;
    4. að beita ákvæðunum, sem um getur í 1., 2. og 3. mgr. þessarar greinar, í þágu ríkisborgara annarra samningsaðila, sem dvelja löglega á landsvæði þeirra, eins og um væri að ræða heimamenn, í samræmi við samþykkt Evrópuríkja um framfærslu og læknishjálp sem undirrituð var í París 11. desember 1953.
14. gr. Réttur til að njóta félagslegrar velferðarþjónustu.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til félagslegrar velferðarþjónustu skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að efla eða láta í té þjónustu, sem byggist á þeim aðferðum sem tíðkast í samfélagsþjónustu og stuðlar að velferð og þroska einstaklinga jafnt sem þjóðfélagshópa og að aðlögun þeirra að félagslegu umhverfi;
    2. að hvetja til þátttöku einstaklinga og samtaka sjálfboðaliða eða annarra við að koma á fót og halda úti slíkri þjónustu.
15. gr. Réttur fatlaðra til sjálfstæðis, félagslegrar aðlögunar og þátttöku í samfélaginu.
Í því skyni að tryggja fötluðum, án tillits til aldurs þeirra eða eðlis og orsaka fötlunarinnar, skilvirka beitingu réttarins til sjálfstæðis, félagslegrar aðlögunar og þátttöku í samfélaginu, skuldbinda samningsaðilar sig sérstaklega til:
    1. að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að láta fötluðum í té ráðgjöf, fræðslu og starfsmenntun innan ramma hins almenna kerfis, eftir því sem unnt er, en sé það ekki unnt, fyrir milligöngu sérhæfðra stofnana, opinberra eða einkarekinna;
    2. að auðvelda fötluðum aðgang að atvinnu með öllum ráðum sem miða að því að hvetja vinnuveitendur til þess að ráða fatlaða og hafa þá í vinnu í venjulegu vinnuumhverfi og laga vinnuumhverfið að þörfum fatlaðra eða, sé þess ekki kostur vegna eðlis fötlunarinnar, að beita sér fyrir eða skapa vernduð störf með hliðsjón af því hvað fötlunin er mikil. Í sumum tilvikum er nauðsynlegt að leita til sérhæfðra atvinnumiðlana og stuðningsþjónustu;
    3. að stuðla að fullri félagslegri aðlögun og þátttöku fatlaðra í samfélaginu, með ýmsum ráðum, með því meðal annars að láta þeim í té stoðtæki í því skyni að sigrast á hindrunum við tjáskipti og hreyfingu og greiða fyrir aðgangi að samgöngutækjum, húsnæði, menningarstarfi og tómstundaiðju.
16. gr. Réttur fjölskyldunnar til félagslegrar, lagalegrar og efnahagslegrar verndar.
Í því skyni að tryggja þau skilyrði sem nauðsynleg eru fullum þroska fjölskyldunnar, en hún er hornsteinn samfélagsins, skuldbinda samningsaðilar sig til að efla efnahagslega, lagalega og félagslega vernd fjölskyldulífsins með ráðum á borð við félagslegar bætur og fjölskyldubætur, skattareglur, byggingu hentugs fjölskylduhúsnæðis, aðstoð við þá sem hafa nýlega stofnað heimili og með öðrum tiltækum ráðum.
17. gr. Réttur barna og ungmenna til félagslegrar, lagalegrar og efnahagslegrar verndar.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar barna og ungmenna til þess að vaxa úr grasi í umhverfi, sem stuðlar að fullum þroska þeirra, líkamlegum og vitsmunalegum, skuldbinda samningsaðilar sig til að gera allar viðeigandi og nauðsynlegar ráðstafanir, annaðhvort með beinum hætti eða í samvinnu við opinber og einkarekin samtök, til þess:
    1.
    a. að tryggja, með hliðsjón af réttindum og skyldum foreldra, að börn og ungmenni njóti þeirrar umönnunar, aðstoðar, fræðslu og menntunar sem þau þarfnast, einkum með því að sjá um að koma á fót eða viðhalda stofnunum og þjónustu sem þjóna þessum tilgangi með fullnægjandi hætti;
    b. að vernda börn og ungmenni gegn vanrækslu, ofbeldi og misnotkun;
    c. að veita börnum og ungmennum, sem eru tímabundið eða varanlega svipt stuðningi fjölskyldu sinnar, vernd og sérstaka ríkisaðstoð;
    2. að láta börnum og ungmennum í té ókeypis grunnskóla og framhaldsskólafræðslu og hvetja þau jafnframt til reglulegrar skólasóknar.
18. gr. Réttur til að stunda launað starf á landsvæði annarra samningsaðila.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til að stunda launað starf á landsvæði annarra samningsaðila skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að beita gildandi reglum af víðsýni;
    2. að einfalda gildandi formsatriði og draga úr eða fella niður stimpilgjöld og önnur gjöld sem erlendum launþegum eða vinnuveitendum þeirra er gert að greiða;
    3. að slaka hver um sig eða sameiginlega á reglum um ráðningu erlendra launþega;
og viðurkenna:
    4. rétt ríkisborgara sinna til þess að fara úr landi í því skyni að stunda launað starf á landsvæði annarra samningsaðila.
19. gr. Réttur farandlaunþega og fjölskyldna þeirra á vernd og aðstoð.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar farandlaunþega og fjölskyldna þeirra á vernd og aðstoð á landsvæði annars samningsaðila skuldbinda samningsaðilar sig til:
    1. að viðhalda, eða ganga úr skugga um að viðhaldið sé, hæfilegri og ókeypis þjónustu til að aðstoða slíka launþega, einkum við að afla réttra upplýsinga, og að beita öllum tiltækum ráðum, eftir því sem innlend lög og reglur heimila, til að koma í veg fyrir villandi áróður varðandi búferlaflutninga milli landa;
    2. að gera viðeigandi ráðstafanir í lögsagnarumdæmi sínu til að greiða fyrir brottför, ferð og móttöku þessara launþega og fjölskyldna þeirra, og tryggja þeim viðeigandi heilbrigðisþjónustu, læknisaðstoð og góða hollustuhætti í lögsagnarumdæmi sínu á meðan á ferðinni stendur;
    3. að efla eftir atvikum samvinnu félagslegra þjónustustofnana, opinberra eða einkarekinna, bæði í landinu sem flutt er frá og því sem flutt er til;
    4. að tryggja slíkum launþegum, sem dvelja löglega á landsvæði þeirra, kjör sem ekki eru lakari en kjör eigin ríkisborgara hvað varðar eftirtalin atriði, að því marki sem lög og reglur fjalla um slík mál eða eru háð eftirliti stjórnsýsluyfirvalda:
    a. laun og önnur ráðningarkjör og vinnuskilyrði;
    b. aðild að stéttarfélögum og ávinning af kjarasamningum;
    c. húsnæði;
    5. að tryggja slíkum launþegum, sem dvelja löglega á landsvæði þeirra, jafngóð kjör og eigin ríkisborgurum hvað varðar skatta, skyldur og gjöld sem lögð eru á vegna launþegans;
    6. að greiða eftir fremsta megni fyrir því að fjölskylda erlends launþega, sem hefur verið heimiluð búseta á landsvæðinu, geti sameinast;
    7. að tryggja að slíkir launþegar, sem dvelja löglega á landsvæði þeirra, fái sams konar meðferð og eigin ríkisborgarar við málarekstur vegna atriða sem um getur í þessari grein;
    8. að tryggja að slíkum launþegum, sem dvelja löglega á landsvæði þeirra, sé ekki vísað úr landi nema þeir stofni þjóðaröryggi í hættu eða brjóti gegn almannahagsmunum eða siðgæði;
    9. að heimila að slíkir launþegar millifæri innan löglegra marka þann hluta af tekjum sínum og sparifé sem þeir kjósa;
    10. að láta þá vernd og aðstoð, sem kveðið er á um í þessari grein, einnig ná til farandlaunþega sem stunda sjálfstæða starfsemi, að því marki sem slíkar ráðstafanir eiga við;
    11. að stuðla að og greiða fyrir því að farandlaunþegum og fjölskyldum þeirra sé kennd þjóðtunga viðtökuríkisins, eða ein þeirra, séu þær fleiri en ein;
    12. að stuðla að og greiða fyrir því eftir fremsta megni að börn farandlaunþegans fái kennslu í móðurmáli hans.
20. gr. Réttur til sömu tækifæra og jafnræðis hvað varðar starf og atvinnu án mismununar vegna kynferðis.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til sömu tækifæra og jafnræðis hvað varðar starf og atvinnu án mismununar vegna kynferðis skuldbinda samningsaðilar sig til að viðurkenna þann rétt og að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja eða efla framkvæmd hans á þeim sviðum sem hér eru talin upp:
    a. aðgangur að atvinnu, starfsöryggi og enduraðlögun að atvinnulífi;
    b. atvinnuráðgjöf, menntun, endurmenntun og endurhæfing;
    c. starfskjör og starfsskilyrði, þar með talin launakjör;
    d. framvinda starfsferils, þar með talin stöðuhækkun.
21. gr. Réttur til upplýsinga og samráðs.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar launþega til upplýsinga og samráðs í fyrirtækinu skuldbinda samningsaðilar sig til að beita sér fyrir eða hvetja til ráðstafana sem geri launþegum eða fulltrúum þeirra kleift, í samræmi við lög og venjur í landinu:
    a. að fá reglulega eða þegar það hentar auðskildar upplýsingar um efnahagslega og fjárhagslega stöðu fyrirtækisins sem þeir starfa hjá, þó með þeim fyrirvara að tilteknar upplýsingar sem gætu skaðað fyrirtækið séu háðar trúnaði eða verði ekki veittar; og
    b. að hafa tímanlega samráð um ákvarðanir sem verið er að taka og gætu verið afdrifaríkar fyrir hagsmuni launþega, einkum þær ákvarðanir sem gætu haft mikil áhrif á starfsmannahald fyrirtækisins.
22. gr. Réttur til að taka þátt í að móta og bæta vinnuskilyrði og vinnuumhverfi í fyrirtækinu.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar launþega til að taka þátt í að móta og bæta vinnuskilyrði og vinnuumhverfi í fyrirtækinu skuldbinda samningsaðilar sig til þess að samþykkja eða stuðla að aðgerðum sem gera launþegum eða fulltrúum þeirra kleift, í samræmi við lög og venjur í landinu, að taka þátt í:
    a. að móta og bæta vinnuskilyrði, vinnuskipulag og vinnuumhverfi;
    b. heilsuvernd og öryggismálum í fyrirtækinu;
    c. skipulagi félagslegrar og félagsmenningarlegrar þjónustu og aðstöðu í fyrirtækinu;
    d. eftirliti með því að farið sé eftir reglum á þessum sviðum.
23. gr. Réttur aldraðra til félagslegrar verndar.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar aldraðra til félagslegrar verndar skuldbinda samningsaðilar sig til að samþykkja eða stuðla að viðeigandi aðgerðum, hvort heldur með beinum hætti eða í samvinnu við opinber eða einkarekin samtök, sem miða einkum að því:
   – að gera öldruðum kleift að vera þátttakendur í samfélaginu eins lengi og unnt er, með eftirtöldum ráðum:
    a. tekjum sem nægja þeim til að lifa með reisn og taka virkan þátt í opinberu lífi, félagslífi og menningarlífi;
    b. að veita þeim upplýsingar um þjónustu og aðstöðu sem öldruðum stendur til boða og möguleika þeirra til þess að færa sér slíkt í nyt;
   – að gera öldruðum kleift að velja sér lífsstíl og lifa sjálfstæðu lífi í eigin umhverfi eins lengi og þeir hafa vilja og getu til, með eftirtöldum ráðum:
    a. að útvega þeim húsnæði sem samræmist þörfum þeirra og heilsufari eða viðeigandi aðstoð til þess að gera lagfæringar á eigin húsnæði;
    b. að sjá þeim fyrir heilsugæslu og þjónustu í samræmi við heilsufar;
   – að tryggja öldruðum sem dvelja á stofnunum stuðning við hæfi, þó með virðingu fyrir einkalífi þeirra og þátttöku í ákvörðunum sem varða lífsskilyrði á stofnuninni.
24. gr. Réttur launþega til verndar ef þeir missa starf sitt.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar launþega til verndar ef þeir missa starf sitt skuldbinda samningsaðilar sig til að viðurkenna:
    a. rétt allra launþega til þess að þeim sé ekki sagt upp störfum án þess að fyrir því liggi gildar ástæður sem varða getu þeirra eða hátterni eða helgast af rekstrarþörfum fyrirtækisins, starfsstöðvarinnar eða stofnunarinnar;
    b. rétt þeirra launþega, sem sagt er upp störfum án gildrar ástæðu, til sanngjarna bóta eða annarra viðunandi úrbóta.
Í því augnamiði skuldbinda samningsaðilar sig að tryggja, að launþegi, sem telur að sér hafi verið sagt upp án gildrar ástæðu, eigi rétt til þess að áfrýja máli sínu til hlutlauss aðila.
25. gr. Réttur launþega til þess að eiga tryggðar kröfur ef vinnuveitandi verður ógjaldfær.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar launþega til þess að eiga tryggðar kröfur ef vinnuveitandi verður ógjaldfær skuldbinda samningsaðilar sig til að kveða á um að kröfur launþega vegna starfssamninga eða vinnuréttarsambands séu tryggðar af þar til bærri stofnun eða með öðrum skilvirkum verndarúrræðum.
26. gr. Réttur til að starfa með reisn.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar allra launþega til þess að sjá ekki sjálfsvirðingu sinni misboðið í starfi skuldbinda samningsaðilar sig, í samráði við samtök vinnuveitenda og launþega, til þess:
    1. að efla vitund og upplýsingar um og forvarnir gegn kynferðislegri áreitni á vinnustað eða í tengslum við starfið og að neyta allra tiltækra ráða til þess að verja launþega gegn slíku hátterni;
    2. að efla vitund og upplýsingar um og forvarnir gegn þrálátum og ámælisverðum eða augljóslega neikvæðum og meiðandi athöfnum, sem beinast að tilteknum launþegum á vinnustað eða í tengslum við starfið, og að neyta allra tiltækra ráða til þess að verja launþega gegn slíku hátterni.
27. gr. Réttur launþega, sem bera ábyrgð á fjölskyldu, til sömu tækifæra og jafnræðis.
Í því skyni að tryggja beitingu réttar launþega af báðum kynjum, sem bera ábyrgð á fjölskyldu, til sömu tækifæra og jafnræðis, og að þeir njóti slíks til jafns við aðra launþega skuldbinda samningsaðilar sig til þess:
    1. að gera viðeigandi ráðstafanir til þess:
    a. að gera launþegum, sem bera ábyrgð á fjölskyldu, kleift að hefja störf og halda þeim áfram, og enn fremur að hefja störf að nýju eftir fjarveru vegna þeirrar ábyrgðar, og einnig að gera ráðstafanir sem varða atvinnuráðgjöf og starfsmenntun;
    b. að taka mið af þörfum þeirra varðandi starfsskilyrði og almannatryggingar;
    c. að koma á fót eða auka þjónustu, opinbera eða einkarekna, einkum dagvistun barna og barnagæslu;
    2. að sjá til þess að annað hvort foreldranna eigi þess kost, að loknu fæðingarorlofi, að taka sér foreldraleyfi til þess að annast barnið og skal lengd slíks leyfis og skilyrði þess ráðast af landslögum, kjarasamningum eða venju;
    3. að tryggja að fjölskylduábyrgð verði ekki ein sér talin gild ástæða til uppsagnar.
28. gr. Réttur fulltrúa launþega til verndar í fyrirtækinu og aðstaða sem þeim skal látin í té.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar fulltrúa launþega til þess að sinna störfum sínum skuldbinda samningsaðilar sig til að tryggja að í fyrirtækinu:
    a. njóti þeir skilvirkrar verndar gegn athöfnum sem valda þeim tjóni, meðal annars uppsögn sem rekja má til stöðu þeirra og starfa sem fulltrúar launþega í fyrirtækinu;
    b. sé þeim látin í té sú aðstaða sem þeir þurfa á að halda til að geta sinnt störfum sínum fljótt og vel, að teknu tilliti til vinnumarkaðarins í viðkomandi landi og þarfa viðkomandi fyrirtækis, stærðar þess og umsvifa.
29. gr. Réttur til upplýsinga og samráðs við framkvæmd hópuppsagna.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttar launþega til upplýsinga og samráðs þegar kemur til hópuppsagna skuldbinda samningsaðilar sig til að tryggja að vinnuveitendur upplýsi og hafi samráð við fulltrúa launþega, með góðum fyrirvara áður en til slíkra hópuppsagna kemur, um leiðir til þess að koma í veg fyrir hópuppsagnir eða draga úr fjölda þeirra og milda afleiðingarnar, meðal annars með því að beita jafnframt félagslegum úrræðum sem miða einkum að aðstoð við endurráðningu eða endurmenntun viðkomandi launþega.
30. gr. Réttur til verndar gegn fátækt og félagslegri útskúfun.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til verndar gegn fátækt og félagslegri útskúfun skuldbinda samningsaðilar sig til:
    a. að gera ráðstafanir innan ramma samræmdrar heildarstefnu til þess að stuðla að því að þeir sem búa við félagslega útskúfun eða fátækt eða eiga það á hættu svo og fjölskyldur þeirra fái greiðan aðgang meðal annars að atvinnu, húsnæði, menntun, fræðslu, menningu, félagslegri aðstoð og heilbrigðisþjónustu;
    b. að endurskoða þessar ráðstafanir í því skyni að aðlaga þær ef þörf krefur.
31. gr. Réttur til húsnæðis.
Í því skyni að tryggja skilvirka beitingu réttarins til húsnæðis skuldbinda samningsaðilar sig til að gera ráðstafanir sem miða að því:
    1. að stuðla að aðgangi að viðunandi húsnæði;
    2. að koma í veg fyrir og draga úr húsnæðisleysi í því skyni að útrýma því smám saman;
    3. að gera húsnæðisverð viðráðanlegt fyrir þá sem hafa ónóg fjárráð.

III. hluti.
Grein A. Skuldbindingar.
1. Með fyrirvara um ákvæði greinar B hér á eftir skuldbindur sérhver samningsaðili sig til:
    a. að líta á I. hluta þessa sáttmála sem yfirlýsingu um þau markmið sem hann muni stefna að með öllum tiltækum ráðum, eins og segir í inngangsorðum þess hluta;
    b. að líta svo á að hann sé bundinn af að minnsta kosti sex af eftirtöldum níu greinum í II. hluta þessa sáttmála: 1., 5., 6., 7., 12., 13., 16., 19. og 20.;
    c. að líta svo á að til viðbótar sé hann bundinn af tilteknum fjölda greina eða tölusettra málsgreina í II. hluta sáttmálans að eigin vali, svo fremi að heildarfjöldi greina eða tölusettra málsgreina, sem hann er bundinn af, sé ekki minni en sextán greinar eða sextíu og þrjár tölusettar málsgreinar.
2. Greinarnar eða tölusettu málsgreinarnar, sem valdar eru samkvæmt b- og c-lið þessarar greinar, skulu tilkynntar framkvæmdastjóra Evrópuráðsins við afhendingu skjals til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis.
3. Hver samningsaðili getur síðar lýst yfir með tilkynningu til framkvæmdastjóra Evrópuráðsins að hann líti svo á að hann sé bundinn af þeim greinum og tölusettu málsgreinum II. hluta sáttmálans, sem enn hafa ekki verið samþykktar í samræmi við 1. mgr. þessarar greinar. Síðari skuldbindingar teljast óaðskiljanlegur hluti fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis og skulu hafa sama gildi frá og með fyrsta degi næsta mánaðar eftir að liðinn er einn mánuður frá dagsetningu tilkynningar.
4. Sérhver samningsaðili skal halda úti vinnueftirlitskerfi sem hæfir aðstæðum í landinu.
Grein B. Tengsl við félagsmálasáttmála Evrópu og viðbótarbókun frá 1988.
1. Enginn aðili að félagsmálasáttmála Evrópu eða viðbótarbókuninni frá 5. maí 1988 má fullgilda, viðurkenna eða samþykkja þennan sáttmála nema hann telji sig að minnsta kosti bundinn af þeim ákvæðum, sem svara til ákvæða félagsmálasáttmála Evrópu, og, þar sem við á, þeirrar viðbótarbókunar sem hann var bundinn af.
2. Viðurkenning skuldbindinga samkvæmt einhverju ákvæða þessa sáttmála skal frá gildistökudegi slíkra skuldbindinga gagnvart hlutaðeigandi aðila leiða til þess að samsvarandi ákvæði félagsmálasáttmála Evrópu og, þar sem við á, ákvæði viðbótarbókunar frá 1988 falla úr gildi gagnvart hlutaðeigandi aðila ef sá aðili er bundinn af fyrrnefnda skjalinu eða báðum skjölunum.

IV. hluti.
Grein C. Eftirlit með framkvæmd þeirra skuldbindinga sem felast í þessum sáttmála.
Framkvæmd lögbundinna skuldbindinga, sem felast í þessum sáttmála, skal vera háð sama eftirliti og félagsmálasáttmáli Evrópu.
Grein D. Kærur hópa.
1. Ákvæði þessarar viðbótarbókunar við félagsmálasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um kerfi fyrir kærur hópa, skulu gilda um skuldbindingarnar sem þessi sáttmáli tekur til og eiga við ríkin sem hafa fullgilt téða bókun.
2. Sérhvert ríki, sem ekki er bundið af þeirri viðbótarbókun við félagsmálasáttmála Evrópu, þar sem kveðið er á um kerfi fyrir kærur hópa, getur, við afhendingu skjals til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis vegna þessa sáttmála eða hvenær sem er síðar, lýst yfir með tilkynningu til framkvæmdastjóra Evrópuráðsins að það samþykki eftirlit með skuldbindingum sínum samkvæmt þessum sáttmála í samræmi við þá málsmeðferð sem kveðið er á um í téðri bókun.

V. hluti.
Grein E. Jafnræði.
Þau réttindi, sem um getur í þessum sáttmála, skulu tryggð án mismununar af neinu tagi svo sem á grundvelli kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungumáls, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðernis eða þjóðfélagsstöðu, heilsufars, tengsla við minnihlutahóp, uppruna eða annarrar stöðu.
Grein F. Undanþágur vegna styrjaldar eða neyðarástands.
1. Á tímum styrjaldar eða annars neyðarástands, sem ógnar tilveru þjóðar, er sérhverjum samningsaðila heimilt að grípa til ráðstafana, sem víkja frá skuldbindingum hans samkvæmt þessum sáttmála, að því marki sem brýn nauðsyn krefur, enda stangist slíkar ráðstafanir ekki á við aðrar skuldbindingar hans að þjóðarétti.
2. Sérhver samningsaðili, sem hefur nýtt sér þennan rétt til undanþágu, skal innan hæfilegs frests gera framkvæmdastjóra Evrópuráðsins fulla grein fyrir þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið, og ástæðunum sem liggja að baki þeim. Enn fremur skal hann tilkynna framkvæmdastjóranum um það þegar slíkar ráðstafanir falla úr gildi og þau ákvæði sáttmálans, sem hann hefur samþykkt, koma aftur til framkvæmda að fullu.
Grein G. Takmarkanir
1. Þegar réttindi og meginreglur, sem um getur í I. hluta, hafa verið framkvæmdar að fullu skulu þær og skilvirk beiting þeirra samkvæmt því sem kveðið er á um í II. hluta, ekki háðar neinum takmörkunum eða hömlum öðrum en þeim, sem tilgreindar eru í fyrrnefndum hlutum, að frátöldum þeim, sem eru lögboðnar og nauðsynlegar í lýðræðisþjóðfélagi til verndar réttindum og frelsi annarra, eða til verndar almannahagsmunum, þjóðaröryggi, almannaheilbrigði eða siðferði.
2. Þeim takmörkunum sem heimilt er samkvæmt þessum sáttmála að setja réttindum þeim og skuldbindingum sem hann tekur til má ekki beita í neinum tilgangi öðrum en þeim sem mælt er fyrir um.
Grein H. Tengsl milli sáttmálans og landslaga eða milliríkjasamninga.
Ákvæði þessa sáttmála hafa ekki áhrif á þau ákvæði í landslögum eða tvíhliða og marghliða samningum sem þegar eru í gildi eða kunna að öðlast gildi og hagstæðari eru þeim sem verndarinnar njóta.
Grein I. Framkvæmd skuldbindinga.
1. Með fyrirvara um þær framkvæmdaraðferðir, sem mælt er fyrir um í 1. til 31. gr. í II. hluta þessa sáttmála, skulu viðeigandi ákvæði þeirra koma til framkvæmda með:
    a. lögum eða reglum;
    b. samningum vinnuveitenda eða samtaka vinnuveitenda við samtök launþega;
    c. samþættingu beggja ofangreindra aðferða;
    d. öðrum tiltækum ráðum.
2. Framkvæmd skuldbindinga, sem kveðið er á um í 2. gr. (1., 2., 3., 4., 5. og 7. mgr.), 7. gr. (4., 6. og 7. mgr.), 10. gr. (1., 2., 3. og 5. mgr.) og 21. og 22. gr. í II. hluta þessa sáttmála, skal teljast fullnægjandi ef ákvæðunum er beitt í samræmi við 1. mgr. þessarar greinar að því er varðar mikinn meirihluta hlutaðeigandi launþega.
Grein J. Breytingar.
1. Allar breytingar á I. og II. hluta þessa sáttmála í þeim tilgangi að rýmka réttindin sem tryggð eru með þessum sáttmála, og allar breytingar á III. og IV. hluta, sem samningsaðili eða stjórnarnefndin leggur fram, skulu sendar framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, og kemur framkvæmdastjórinn þeim áleiðis til samningsaðila þessa sáttmála.
2. Stjórnarnefndin skal taka til athugunar allar breytingar, sem lagðar eru til í samræmi við ákvæði málsgreinarinnar hér að framan, og leggja samþykktan texta fyrir ráðherranefndina til staðfestingar að höfðu samráði við þingið. Þegar ráðherranefndin hefur staðfest textann er honum komið áleiðis til samningsaðilanna til viðurkenningar.
3. Allar breytingar á I. og II. hluta þessa sáttmála öðlast gildi, gagnvart þeim aðilum sem hafa viðurkennt þær fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er einn mánuður frá því, að þrír aðilar hafa tilkynnt framkvæmdastjóranum að þeir hafi viðurkennt þær. Hún öðlast gildi gagnvart þeim aðilum, sem viðurkenna breytinguna síðar, fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er mánuður frá því, að hlutaðeigandi aðili hefur tilkynnt framkvæmdastjóranum að hann hafi viðurkennt hana.
4. Allar breytingar á III. til VI. hluta þessa sáttmála öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er mánuður frá því að allir aðilar hafa tilkynnt framkvæmdastjóranum að þeir hafi viðurkennt þær.

VI. hluti.
Grein K. Undirritun, fullgilding og gildistaka.
1. Sáttmáli þessi skal lagður fram til undirritunar fyrir aðildarríki Evrópuráðsins með fyrirvara um fullgildingu, viðurkenningu eða samþykki. Skjöl til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis skulu afhent framkvæmdastjóra Evrópuráðsins til vörslu.
2. Sáttmáli þessi öðlast gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er einn mánuður frá því að þrjú aðildarríki Evrópuráðsins lýsa sig samþykk því að vera bundin af sáttmála þessum í samræmi við ákvæði undanfarandi málsgreinar.
3. Sáttmáli þessi öðlast gildi gagnvart hverju aðildarríki, sem síðar lýsir sig samþykkt því að vera bundið af honum, fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er einn mánuður frá því að skjal til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis er afhent til vörslu.
Grein L. Landsvæði er sáttmálinn tekur til.
1. Sáttmáli þessi skal taka til heimalandsvæðis hvers samningsaðila um sig. Hver undirritunaraðila getur við undirritun eða þegar skjal hans til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis er afhent til vörslu, tilgreint í yfirlýsingu til framkvæmdastjóra Evrópuráðsins hvaða landsvæði skuli teljast heimalandsvæði hans í þessu tilliti.
2. Hver undirritunaraðili getur við undirritun eða þegar skjal hans til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis er afhent til vörslu, eða hvenær sem er síðar, lýst því yfir með tilkynningu til framkvæmdastjóra Evrópuráðsins að sáttmálinn skuli að öllu leyti eða að hluta taka til landsvæðis eða landsvæða utan heimalandsvæðis sem tilgreind eru í téðri yfirlýsingu, enda fari undirritunaraðilinn með utanríkismál fyrir það eða þau eða beri ábyrgð á þeim. Undirritunaraðili skal tilgreina í yfirlýsingunni hvaða greinar eða málsgreinar í II. hluta sáttmála þessa það samþykki að skuli vera bindandi að því er varðar þau landsvæði sem nefnd eru í yfirlýsingunni.
3. Sáttmáli þessi skal öðlast gildi að því er varðar landsvæðið eða landsvæðin, sem um getur í áðurnefndri yfirlýsingu, fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er einn mánuður frá því að framkvæmdastjóranum berst tilkynning um slíka yfirlýsingu.
4. Hver aðili getur lýst því yfir síðar með tilkynningu til framkvæmdastjóra Evrópuráðsins að hann samþykki, að því er varðar eitt eða fleiri landsvæði sem sáttmáli þessi hefur verið látinn ná til samkvæmt 2. mgr. þessarar greinar, að þær greinar eða þær tölusettu málsgreinar, sem hann hefur ekki þegar samþykkt fyrir það eða þau landsvæði, skuli vera bindandi. Slíkar skuldbindingar, sem síðar er stofnað til, skulu teljast óaðskiljanlegur hluti upprunalegrar yfirlýsingar að því er viðkomandi landsvæði varðar og skulu hafa sama gildi fyrsta dag næsta mánaðar eftir að liðinn er einn mánuður frá því að framkvæmdastjóranum berst tilkynning um slíka yfirlýsingu.
Grein M. Uppsögn.
1. Hver samningsaðili getur einungis sagt upp sáttmála þessum að liðnum fimm árum frá gildistöku sáttmálans að því er hann varðar eða í lok hvers tveggja ára tímabils eftir það og í hverju tilviki eftir að hafa tilkynnt framkvæmdastjóra Evrópuráðsins það með sex mánaða fyrirvara og skal hann tilkynna það hinum samningsaðilunum.
2. Hver samningsaðili getur, í samræmi við ákvæði undanfarandi málsgreinar, sagt upp sérhverri grein eða málsgrein í II. hluta þessa sáttmála sem hann hefur samþykkt, að því tilskildu að greinarnar eða málsgreinarnar, sem viðkomandi samningsaðili er bundinn af, séu aldrei færri en sextán í fyrra tilvikinu og sextíu og þrjár í síðara tilvikinu og að því tilskildu að í þessum fjölda greina eða málsgreina séu áfram þær greinar sem samningsaðilinn valdi úr þeim sem vitnað er sérstaklega til í b-lið 1. mgr. greinar A.
3. Hver samningsaðili getur sagt upp sáttmála þessum eða sérhverri grein eða málsgrein í II. hluta sáttmálans, samkvæmt þeim skilmálum sem tilgreindir eru í 1. mgr. þessarar greinar, að því er varðar hvert það landsvæði sem téður sáttmáli tekur til, samkvæmt yfirlýsingu sem gefin hefur verið í samræmi við 2. mgr. greinar L.
Grein N. Viðauki.
Viðbætirinn við sáttmála þennan skal vera óaðskiljanlegur hluti hans.
Grein O. Tilkynningar.
Framkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal tilkynna aðildarríkjum Evrópuráðsins og aðalframkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um:
    a. hverja undirritun,
    b. afhendingu hvers skjals til fullgildingar, viðurkenningar eða samþykkis,
    c. hvern gildistökudag sáttmála þessa í samræmi við grein K,
    d. hverja yfirlýsingu sem gefin er við beitingu greinar A (2. og 3. mgr.), greinar D (1. og 2. mgr.), greinar F (2. mgr.) og greinar L (1., 2., 3. og 4. mgr.),
    e. hverja breytingu í samræmi við grein J,
    f. hverja uppsögn í samræmi við grein M,
    g. hverja aðra gerð, tilkynningu eða orðsendingu varðandi sáttmála þennan.
   
   Þessu til staðfestu hafa undirritaðir, sem til þess hafa fullt umboð, undirritað þessa endurskoðuðu útgáfu sáttmálans.
   Gjört í Strassborg 3. maí 1996 í einu eintaki á ensku og frönsku sem verður afhent til vörslu í skjalasafni Evrópuráðsins og eru báðir textarnir jafngildir. Framkvæmdastjóri Evrópuráðsins skal láta hverju aðildarríki Evrópuráðsins og aðalframkvæmdastjóra Alþjóðavinnumálastofnunarinnar í té staðfest endurrit.

Viðauki við endurskoðaða útgáfu félagsmálasáttmála Evrópu.
Gildissvið endurskoðaðrar útgáfu félagsmálasáttmála Evrópu gagnvart þeim sem hann verndar.
1. Með fyrirvara um 4. mgr. 12. gr. og 4. mgr. 13. gr. gilda 1. til 17. gr. og 20. til 31. gr. ekki um útlendinga, nema þeir séu ríkisborgarar annarra samningsaðila með löglega búsetu eða í fastri vinnu á landsvæði viðkomandi samningsaðila, þó þannig að þessar greinar ber að túlka með tilliti til ákvæða 18. og 19. gr. sáttmálans.
Slík túlkun kemur ekki í veg fyrir að hvaða samningsaðili sem er geti rýmkað hliðstæð réttindi svo að þau nái til annarra einstaklinga.
2. Sérhver samningsaðili skal veita flóttamönnum, eins og þeir eru skilgreindir í samningnum um réttarstöðu flóttamanna, sem undirritaður var í Genf 28. júlí 1951, og í bókuninni frá 31. janúar 1967, sem dvelja löglega á landsvæði hans, eins góð kjör og unnt er, og aldrei lakari en kveðið er á um í skuldbindingum sem samningsaðilinn hefur samþykkt með samningnum frá 1951 og öðrum alþjóðasamningum sem gilda um flóttamenn.
3. Sérhver samningsaðili skal veita ríkisfangslausum mönnum, samkvæmt skilgreiningu New York-sáttmálans frá 28. september 1954 um réttarstöðu ríkisfangslausra manna, sem dvelja löglega á landsvæði hans, eins góð kjör og unnt er, og aldrei lakari en kveðið er á um í skuldbindingum sem samningsaðilinn hefur samþykkt með téðu skjali og öðrum alþjóðasamningum sem gilda um ríkisfangslausa menn.
18. mgr. I. hluta og 1. mgr. 18. gr. II. hluta.
Litið er svo á að þessi ákvæði varði ekki komu til landsvæðis samningsaðilanna og hafi ekki áhrif á ákvæði Evrópusamningsins um staðfestu sem undirritaður var í París 13. desember 1955.
II. hluti.
2. mgr. 1. gr.
Þetta ákvæði ber hvorki að túlka sem bann við öryggisákvæði eða venju stéttarfélaga né viðurkenningu á slíkum ákvæðum eða venjum.
6. mgr. 2. gr.
Aðilar geta ákveðið að þetta ákvæði skuli ekki gilda:
    a. um launþega með samning eða vinnuréttarsamband sem gildir alls í einn mánuð eða skemur og/eða með átta stunda vinnuviku eða skemmri;
    b. þegar samningurinn eða vinnuréttarsambandið er í eðli sínu óformlegt og/eða sértækt, að því tilskildu, þegar svo háttar til, að hlutlæg rök séu fyrir því að ákvæðinu sé ekki beitt.

4. mgr. 3. gr.
Litið er svo á að hlutverk, skipulag og rekstrarskilyrði slíkrar þjónustu skuli, hvað þetta ákvæði varðar, ákveðin með innlendum lögum eða reglum, kjarasamningum eða öðrum þeim leiðum sem henta þykja í hverju landi.
4. mgr. 4. gr.
Þetta ákvæði ber að skilja svo að með því sé ekki lagt bann við tafarlausum brottrekstri vegna alvarlegs brots.
5. mgr. 4. gr.
Litið er svo á að samningsaðili geti tekið á sig skuldbindingarnar sem tilgreindar eru í þessari málsgrein ef hann bannar með lögum, kjarasamningum eða með dómsúrskurði að frádráttur á launum alls þorra launþega sé bannaður, að frátöldum þeim einum sem falla ekki undir slíkar gerðir.
4. mgr. 6. gr.
Litið er svo á að samningsaðilar geti hver fyrir sig sett lög um neytingu verkfallsréttar að því tilskildu að takmarkanir sem þar kunna að vera settar þeim rétti megi réttlæta með hliðsjón af grein G.
2. mgr. 7. gr.
Þetta ákvæði hindrar ekki að samningsaðilar kveði á um það í lögum sínum að börn og ungmenni sem ekki hafa náð lágmarksaldri megi vinna, enda sé slík vinna alveg nauðsynleg vegna starfsmenntunar þeirra og innt af hendi í samræmi við fyrirmæli lögbærra yfirvalda og ráðstafanir gerðar til þess að vernda heilsu og öryggi barnanna og ungmennanna.
8. mgr. 7. gr.
Litið er svo á að samningsaðili hafi gengist undir skuldbindingarnar sem tilgreindar eru í þessari málsgrein ef hann setur í anda þeirra skuldbindinga lagaákvæði þess efnis að allur þorri barna og ungmenna undir átján ára aldri skuli ekki ráðinn til þess að vinna næturvinnu.
2. mgr. 8. gr.
Þetta ákvæði ber ekki að túlka sem algilt bann. Til dæmis má gera undantekningar frá því í eftirtöldum tilvikum:
    a. ef hin vinnandi kona hefur brotið svo af sér að réttlætanlegt er að rjúfa vinnuréttarsambandið;
    b. ef rekstri viðkomandi fyrirtækis er hætt;
    c. ef ráðningartíminn, sem tilgreindur er í starfssamningi, er liðinn.

4. mgr. 12. gr.
Orðin „og með fyrirvara um skilyrðin sem sett eru í slíkum samningum“ í inngangi málsgreinarinnar vísa meðal annars til þess, að hvað varðar bætur sem eru óháðar öllum tryggingaiðgjöldum geti samningsaðili farið fram á að slíkar bætur séu ekki greiddar ríkisborgurum annarra samningsaðila fyrr en að loknum tilteknum búsetutíma.
4. mgr. 13. gr.
Ríkisstjórnir, sem eiga ekki aðild að samþykkt Evrópuríkja um framfærslu og læknishjálp, geta fullgilt sáttmálann hvað varðar þessa málsgrein, að því tilskildu að þeir veiti ríkisborgurum annarra samningsaðila réttindi í samræmi við ákvæði téðs sáttmála.
16. gr.
Litið er svo á að verndin, sem veitt er með þessu ákvæði, nái einnig til fjölskyldna einstæðra foreldra.
17. gr.
Litið er svo á að þetta ákvæði nái til einstaklinga yngri en átján ára, nema því aðeins að gildandi lög kveði á um lægri lögræðisaldur, með fyrirvara þó um önnur sértæk ákvæði sáttmálans, einkum 7. gr.
Þessu ákvæði fylgir ekki kvöð um að tryggja skyldunám fram að fyrrgreindum aldri.
6. mgr. 19. gr.
Hvað varðar beitingu þessa ákvæðis nær orðasambandið „fjölskylda erlends launþega“ að minnsta kosti til maka launþegans og ógiftra barna, að því tilskildu að hin síðarnefndu teljist ólögráða í viðtökuríkinu og að þau séu á framfæri erlenda launþegans.
20. gr.
1. Litið er svo að á heimilt sé að undanskilja frá gildissviði þessarar greinar almannatryggingamál og önnur ákvæði sem varða atvinnuleysisbætur, ellilífeyri og eftirlifendabætur.
2. Ákvæði um vernd kvenna, einkum með tilliti til meðgöngu, barnsburðar og umönnunar nýbura, teljast ekki til mismununar samkvæmt þessari grein.
3. Þrátt fyrir þessa grein er heimilt að samþykkja sérstakar ráðstafanir í því skyni að ryðja úr vegi raunverulegu misrétti.
4. Heimilt er að undanskilja frá gildissviði þessarar greinar eða tiltekinna ákvæða hennar störf, sem eðlis síns vegna eða aðstæðna er aðeins hægt að fela einstaklingum af tilteknu kyni. Þetta ákvæði ber ekki að túlka svo að samningsaðilar skuli tíunda í lögum og reglum þau störf sem eðlis síns vegna eða aðstæðna er aðeins hægt að fela einstaklingum af tilteknu kyni.
21. og 22. gr.
1. Hvað varðar beitingu þessara greina merkir hugtakið „fulltrúar launþega“ einstaklinga sem eru viðurkenndir sem slíkir að lögum eða venjum í landinu.
2. Auk laga og reglna nær hugtakið „lög eða venjur í landinu“, eftir því sem við á, til kjarasamninga, annarra samninga vinnuveitenda og fulltrúa launþega, hefða og viðeigandi fordæmisréttar.
3. Hvað varðar beitingu þessara greina er með hugtakinu „fyrirtæki“ átt við safn áþreifanlegra og óáþreifanlegra þátta, hvort sem það er lögaðili eður ei, sem er ætlað að framleiða vöru eða veita þjónustu í ábataskyni, og hefur sjálfsákvörðunarvald hvað varðar eigin markaðsstefnu.
4. Litið er svo á að heimilt sé að undanskilja trúarsamfélög og stofnanir þeirra frá beitingu þessara greina, jafnvel þótt slíkar stofnanir séu „fyrirtæki“ í skilningi 3. mgr. Stofnanir, sem fást við starfsemi sem sprottin er af tiltekinni hugsjón eða tilteknum siðferðilegum gildum, hugsjónum og gildum sem landslög standa vörð um, er heimilt að undanskilja frá beitingu þessara greina að því leyti sem nauðsynlegt er til þess að vernda stefnu fyrirtækisins.
5. Litið er svo á að þegar réttindin sem kveðið er á um í þessum greinum eru virt í öllum deildum fyrirtækisins í tilteknu ríki skuli samningsaðilinn, sem á hlut að máli, teljast standa við skuldbindingarnar sem felast í téðum ákvæðum.
6. Aðilum er heimilt að undanskilja frá gildissviði þessara greina þau fyrirtæki sem hafa færri starfsmenn en sem nemur tilteknu lágmarki og ræðst það af lögum og venju í landinu.
22. gr.
1. Þetta ákvæði hefur hvorki áhrif á völd né skyldur ríkjanna hvað varðar samþykkt reglna um hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, né heldur á völd og ábyrgð þeirra stofnana sem hafa á hendi eftirlit með því að þeim sé framfylgt.
2. Með hugtökunum „félagsleg og félagsmenningarleg þjónusta“ er átt við félagslega og/eða menningarlega aðstöðu sem sum fyrirtæki bjóða launþegum, þar á meðal félagslega aðstoð, íþróttaaðstöðu, aðstöðu til brjóstagjafar, bókasöfn, sumarbúðir o.s.frv.
1. mgr. 23. gr.
Við beitingu þessarar málsgreinar vísar orðalagið „eins lengi og unnt er“ til líkamlegrar, sálrænnar og vitsmunalegrar getu hinna öldruðu.
24. gr.
1. Litið er svo á að í þessari grein merki hugtökin „að segja upp störfum“ og „að missa starf sitt“ starfslok launþega að frumkvæði vinnuveitandans.
2. Litið er svo á að þessi grein nái til allra launþega en að samningsaðili geti undanskilið frá vernd hennar að nokkru leyti eða öllu eftirtalda flokka starfsmanna:
    a. launþega sem eru ráðnir samkvæmt starfssamningi til tiltekins tíma eða tiltekins verks;
    b. launþega sem eru á reynslutíma eða hafa ekki náð tilskildum starfsaldri, enda sé sá tími fyrir fram afmarkaður og lengd hans sanngjörn;
    c. launþega sem eru ráðnir til bráðabirgða í skamman tíma.
3. Í þessari grein teljast eftirtalin atriði ekki næg ástæða til þess að segja launþega upp störfum:
    a. aðild að stéttarfélagi eða þátttaka í starfsemi stéttarfélags utan vinnutíma eða, með samþykki vinnuveitandans, á meðan á vinnutíma stendur;
    b. það að sækjast eftir, gegna eða hafa gegnt stöðu fulltrúa launþega;
    c. kæra á hendur vinnuveitanda eða aðild að málssókn gegn honum, vegna meintra brota á lögum eða reglum eða áfrýjun til lögbærra stjórnsýsluyfirvalda;
    d. kynþáttur, litarháttur, kynferði, hjúskaparstétt, fjölskylduábyrgð, þungun, trúarbrögð, stjórnmálaskoðun, þjóðerni eða þjóðfélagsstaða;
    e. barnsburður eða foreldraleyfi;
    f. tímabundin fjarvera frá störfum vegna veikinda eða meiðsla.
4. Litið er svo á að bætur eða annars konar aðstoð eða greiðslur vegna uppsagnar launþega án gildrar ástæðu skuli bundnar í innlendum lögum eða reglum, kjarasamningum eða öðrum leiðum sem hæfa aðstæðum í viðkomandi landi.
25. gr.
1. Litið er svo á að lögbærum yfirvöldum innanlands sé heimilt, í undantekningartilvikum og að höfðu samráði við samtök vinnuveitenda og launþega, að láta þá vernd, sem felst í þessu ákvæði, ekki ná til tiltekinna flokka launþega vegna sérstaks eðlis vinnuréttarsambands þeirra.
2. Litið er svo á, að skilgreining á hugtakinu „ógjaldfær“ sé bundin lögum og venju í landinu.
3. Kröfur launþega samkvæmt þessu ákvæði geta meðal annars verið:
    a. kröfur launþega til launa fyrir tiltekið tímabil, eigi skemmra en þrír mánuðir í forgangskröfukerfi eða átta vikur í ábyrgðarkerfi, fram að greiðsluþroti eða uppsögn;
    b. kröfur launþega til útistandandi orlofsgreiðslna vegna starfa á greiðsluþrots eða uppsagnarárinu;
    c. kröfur launþega til útistandandi greiðslna vegna annarra launaðra frídaga á tilteknu tímabili, sem skal eigi vera skemmra en þrír mánuðir í forgangskröfukerfi eða átta vikur í ábyrgðarkerfi, fram að gjaldþroti eða uppsögn.
4. Með innlendum lögum eða reglum er heimilt að takmarka vernd krafna launþega við tiltekna fjárhæð er telst mannsæmandi.
26. gr.
Litið er svo á að þessi grein krefjist þess ekki að samningsaðilar setji sérstök lög.
Litið er svo á að 2. mgr. gildi ekki um kynferðislega áreitni.
27. gr.
Litið er svo á að þessi grein nái til launþega af báðum kynjum sem bera fjölskylduábyrgð gagnvart börnum á framfæri sínu og einnig gagnvart öðrum nánum ættingjum sínum sem þurfa greinilega á umönnun þeirra eða aðstoð að halda, þegar slík ábyrgð rýrir möguleika þeirra á að búa sig undir atvinnustarfsemi, hefja slíka starfsemi, taka þátt í henni eða komast áfram þar. Hugtökin „börn á framfæri“ og „aðrir nánustu ættingjar sem þurfa greinilega á umönnun þeirra eða aðstoð að halda“ ber að skilja eins og þau eru skilgreind í landslögum samningsaðilanna.
28. og 29. gr.
Við beitingu þessara greina merkir „fulltrúar launþega“ þá einstaklinga sem eru viðurkenndir sem slíkir samkvæmt lögum og venjum í landinu.
III. hluti.
Litið er svo á að sáttmálinn feli í sér lagalegar skuldbindingar sem eru alþjóðlegar í eðli sínu, og að beiting þeirra sæti aðeins því eftirliti sem kveðið er á um í IV. hluta hans.
1. mgr. greinar A.
Litið er svo á að tölusettar málsgreinar geti verið greinar sem eru aðeins ein málsgrein.
2. mgr. greinar B.
Hvað varðar 2. mgr. greinar B svara ákvæði hins endurskoðaða sáttmála til þeirra ákvæða sáttmálans sem bera sömu málsgreinar og/eða greinarnúmer, með eftirtöldum undantekningum:
    a. 2. mgr. 3. gr. hins endurskoðaða sáttmála svarar til 1. og 3. mgr. 3. gr. sáttmálans;
    b. 3. mgr. 3. gr. hins endurskoðaða sáttmála svarar til 2. og 3. mgr. 3. gr. sáttmálans;
    c. 5. mgr. 10. gr. hins endurskoðaða sáttmála svarar til 4. mgr. 10. gr. sáttmálans;
    d. 1. mgr. 17. gr. hins endurskoðaða sáttmála svarar til 17. gr. sáttmálans.

V. hluti.
Grein E.
Mismunun sem er byggð á hlutlægri og sanngjarnri ástæðu skal ekki teljast til mismununar.
Grein F.
Hugtökin „á tímum styrjaldar eða annars neyðarástands“ ber að skilja svo að þau nái einnig til hættu á styrjöld.
Grein I.
Litið er svo á að launþegar, sem eru undanskildir samkvæmt viðauka við 21. og 22. gr., skuli ekki taldir með þegar fjöldi hlutaðeigandi launþega er ákvarðaður.
Grein J.
Hugtakið „breyting“ skal rýmkað svo að það taki einnig til nýrra greina, sem bætt er við sáttmálann.

Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica