Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2026. Útgáfa 157c. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands]1)
1990 nr. 10 26. febrúar
1)L. 41/2026, 6. gr.
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 28. febrúar 1990. Breytt með: L. 84/2000 (tóku gildi 1. ágúst 2000). L. 141/2003 (tóku gildi 30. des. 2003). L. 47/2006 (tóku gildi 1. júlí 2006). L. 79/2019 (tóku gildi 6. júlí 2019; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í brbákv.). L. 52/2023 (tóku gildi 28. júní 2023). L. 60/2024 (tóku gildi 28. júní 2024). L. 41/2026 (tóku gildi 16. maí 2026). L. 60/2026 (tóku gildi 27. júní 2026; koma til framkvæmda skv. fyrirmælum í 19. gr.; sjá einnig brbákv.).
1. gr.

[Laun forseta Íslands nema 2.985.000 kr. á mánuði. [Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt þessari grein. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.]
1)]
2)
1)L. 60/2026, 1. gr. 2)L. 79/2019, 1. gr., sbr. einnig brbákv. í s.l.
2. gr.

Forseti hefur ókeypis bústað, ljós og hita …
1)

…
1)
1)L. 84/2000, 1. gr.
3. gr.

Allan útlagðan kostnað forseta vegna rekstrar embættisins ber að greiða sérstaklega úr ríkissjóði.
4. gr.

Sá sem kjörinn hefur verið til og gegnt hefur embætti forseta Íslands á rétt til launa skv. 1. gr. í fyrstu sex mánuði eftir að látið er af embætti. Taki fyrrverandi forseti stöðu í þjónustu ríkisins fellur þessi launagreiðsla niður ef stöðunni fylgja jafnhá eða hærri laun, ella greiðist launamismunurinn til loka sex mánaða tímans.
5. gr.

[Forsetaritari stýrir skrifstofu embættisins, ræður annað starfslið, er ábyrgur fyrir rekstri embættisins og skipuleggur starfsemi þess. Forseti skipar forsetaritara til fimm ára í senn.

Laun forsetaritara nema 1.800.037 kr. á mánuði og þar af skal greiðsla fyrir yfirvinnu og álag sem starfinu fylgir nema 473.962 kr. á mánuði. [Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt þessari grein. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.]
1)]
2)
1)L. 60/2026, 2. gr. 2)L. 41/2026, 1. gr.
6. gr.

[Heimilt er að ráða til starfa aðstoðarmann forseta sem gegni störfum svo lengi sem forseti ákveður en þó ekki lengur en forseti sjálfur. Ákvæði um auglýsingaskyldu í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins eiga ekki við um ráðningu aðstoðarmanns. Forsetaritari ræður aðstoðarmann í samráði við forseta og tilkynnir honum um starfslok þegar við á.

Meginhlutverk aðstoðarmanns forseta er að vinna að áherslumálum forseta undir yfirstjórn forseta og í samvinnu við forsetaritara. Forsetaritari setur aðstoðarmanni erindisbréf í samráði við forseta þar sem m.a. skal kveðið nánar á um starfssvið og starfsskyldur.

Laun aðstoðarmanns forseta á mánuði nema sem svarar til sjötíu og fimm hundraðshluta af launum forsetaritara og hlutfall greiðslu fyrir yfirvinnu og álag þar af er hið sama og hjá forsetaritara.

Aðstoðarmaður forseta á rétt á biðlaunum í þrjá mánuði eftir að hann lætur af starfi. Hafi aðstoðarmaður áður verið ríkisstarfsmaður á hann í tvö ár frá ráðningu rétt á að hverfa aftur til fyrra starfs síns eða annars starfs eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins. Þiggi fyrrverandi aðstoðarmaður forseta laun vegna annarra starfa á því tímabili sem hann á rétt á biðlaunum skerðast biðlaunin sem þeim launum nemur.]
1)
1)L. 41/2026, 2. gr.
7. gr.

[Þóknun handhafa forsetavalds, sbr.
8. gr. stjórnarskrárinnar, nemur 300.000 kr. samanlagt á ári og skiptist jafnt þeirra á milli.]
1)
1)L. 41/2026, 3. gr.
[7. gr. a.

Um öryggismál embættisins fer samkvæmt reglum sem forsætisráðherra setur, í samráði við forsetaritara, ráðherra sem fer með málefni lögreglu og löggæslu og önnur hlutaðeigandi stjórnvöld, sbr. 3. mgr.
27. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.]
1)
1)L. 41/2026, 4. gr.
8. gr.
…
9. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.
[Ákvæði til bráðabirgða.
I. …
1)]
2)
1)L. 41/2026, 5. gr. 2)L. 84/2000, 2. gr.
[II. …
1)]
2)
1)L. 41/2026, 5. gr. 2)L. 52/2023, 1. gr.
[III.

Laun forseta Íslands og forsetaritara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og 3,5% 1. júlí 2027.

Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. og 2. mgr. 5. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki meiri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.]
1)
1)L. 60/2026, 3. gr.