Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni

2024 nr. 56 5. júlí


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 5. júlí 2024; EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 2022/858.

1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að koma á tilraunaumgjörð um útgáfu fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni og sértækra leyfa til rekstrar innviða sem taka þá til viðskipta eða annast uppgjör slíkra viðskipta, án þess að slegið sé af kröfum um vernd fjárfesta, fjármálastöðugleika og heilleika markaðarins.
2. gr. Lögfesting.
Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 frá 30. maí 2022 um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 600/2014 og (ESB) nr. 909/2014 og tilskipun 2014/65/ESB, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 92 frá 20. desember 2023, bls. 160–192, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2023 frá 5. júlí 2023, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 21. mars 2024, bls. 12–13, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við EES-samninginn, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
Þegar vísað er til laga þessara í lögunum er jafnframt átt við reglugerð ESB samkvæmt þessari grein.
3. gr. Skýring hugtaka.
Eftirfarandi hugtök í reglugerð (ESB) 2022/858 hafa svofellda merkingu:
    1. Aðilar sem tilgreindir eru í 3. mgr. 53. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Aðilar eða þátttakendur skv. 3. mgr. 94. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    2. Fjármálagerningur samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Fjármálagerningur í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga.
    3. Hlutdeildarskírteini í sjóðum um sameiginlega fjárfestingu sem falla undir iv. lið a-liðar 4. mgr. 25. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Hlutdeildarskírteini skv. d-lið 1. tölul. 5. mgr. 45. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    4. Kröfur tilskipunar 2014/65/ESB: Kröfur laga um markaði fyrir fjármálagerninga.
    5. Markaðstorg fjármálagerninga samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Markaðstorg fjármálagerninga í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga.
    6. Ráðstafanir til verndar gegn ógjaldfærni samkvæmt tilskipun 98/26/EB: Ráðstafanir til verndar gegn ógjaldfærni samkvæmt lögum um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum, nr. 90/1999.
    7. Rekstraraðili markaðar samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Rekstraraðili markaðar í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga.
    8. Skipulegur markaður samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Skipulegur markaður í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga.
    9. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
    10. Tilnefning og tilkynning í samræmi við tilskipun 98/26/EB: Viðurkenning og tilkynning samkvæmt lögum um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum.
    11. Tími sem tilgreindur er í 3. mgr. 7. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Tímamörk skv. 2. mgr. 7. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    12. Upplýsingar sem krafist er skv. 7. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Allar nauðsynlegar upplýsingar skv. 7. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    13. Verðbréfafyrirtæki samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Verðbréfafyrirtæki í skilningi laga um markaði fyrir fjármálagerninga.
4. gr. Eftirlit og upplýsingagjöf.
Seðlabanki Íslands er lögbært yfirvald hér á landi í skilningi laga þessara og fer Fjármálaeftirlitið með þau verkefni sem því eru falin.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands og Eftirlitsstofnun EFTA annast eftirlit samkvæmt lögum þessum í samræmi við EES-samninginn, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið og samning milli EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Um eftirlitið fer samkvæmt ákvæðum laga þessara, laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og laga um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
Um eftirlitsheimildir og framkvæmd eftirlits með starfsemi á grundvelli laga þessara fer enn fremur, eftir því sem við á, samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga og lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
Um álitsumleitan og upplýsingagjöf til Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar og, ef við á, annarra viðeigandi yfirvalda fer skv. 8.–11. gr. reglugerðar (ESB) 2022/858.
5. gr. Veiting sértækra leyfa og undanþágna.
Fjármálaeftirlitið veitir og afturkallar sértæk leyfi og undanþágur til að reka innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni á grundvelli laga þessara, sbr. einnig lög um markaði fyrir fjármálagerninga og lög um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.
6. gr. Úrbætur.
Komi í ljós að ákvæðum laga þessara, eða stjórnvaldsfyrirmæla settra með stoð í þeim, sé ekki fylgt getur Fjármálaeftirlitið krafist þess að úr sé bætt innan hæfilegs frests.
7. gr. Stjórnvaldsfyrirmæli.
Seðlabanka Íslands er heimilt að setja reglur um nánari framkvæmd eftirfarandi ákvæða reglugerðar (ESB) 2022/858:
    1. 6. mgr. 3. gr. um viðmiðunarmörk.
    2. C-liðar 1. mgr. 4. gr. og c-liðar 1. mgr. 5. gr. um mótvægisaðgerðir.
    3. 4. mgr. 8. gr., 4. mgr. 9. gr. og 4. mgr. 10. gr. um stöðluð eyðublöð, snið og sniðmát vegna umsókna.
8. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 5. júlí 2024.
9. gr. Breytingar á öðrum lögum. …
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica