Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2026. Útgáfa 157c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um verðbréfun
2025 nr. 71 1. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 12. nóvember 2025. EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 2017/2402.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.
1. Aðili sem hefur starfsleyfi til að annast daglega virka eignasafnsstýringu sem verðbréfun felur í sér í samræmi við tilskipun 2009/65/EB, tilskipun 2011/61/ESB eða tilskipun 2014/65/ESB: Lánastofnun samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, verðbréfafyrirtæki samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða eða rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum um verðbréfasjóði.
2. Aðilar sem lúta eftirliti í samræmi við tilskipanir 2003/41/EB, 2009/138/EB, 2009/65/EB, 2011/61/ESB og 2013/36/ESB: Aðilar sem falla undir gildissvið laga um starfstengda eftirlaunasjóði, laga um vátryggingastarfsemi, laga um verðbréfasjóði, laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og laga um fjármálafyrirtæki.
3. Almennur fjárfestir samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Almennur fjárfestir samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
4. Áhættusamt þriðja land með annmarka í regluverki sínu um baráttu gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverkastarfsemi, í samræmi við 9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849: Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
5. Blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi samkvæmt tilskipun 2002/87/EB: Blandað eignarhaldsfélag í fjármálastarfsemi samkvæmt lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
6. Eftirlitsskyldur aðili skv. 4. lið 2. gr. tilskipunar 2002/87/EB: Eftirlitsskyldur aðili samkvæmt lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
7. Endurtryggingafélag samkvæmt tilskipun 2009/138/EB: Endurtryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.
8. Framseljanleg verðbréf skv. 44. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Verðbréf samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
9. Kröfurnar sem settar eru fram í tilskipun 2008/48/EB: Kröfur til lánshæfismats samkvæmt lögum um neytendalán.
10. Kröfurnar sem settar eru fram í tilskipun 2014/17/ESB: Kröfur til lánshæfismats samkvæmt lögum um fasteignalán til neytenda.
11. Kröfur sem settar eru fram í 79. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2013/36/ESB: Skilyrði sem uppfylla skal vegna útlána- og mótaðilaáhættu skv. 78. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
12. Lánastofnun sem lýtur eftirliti samkvæmt tilskipun 2013/36/ESB: Lánastofnun samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.
13. Lýsing í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/71/EB: Lýsing samkvæmt lögum um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði.
14. Mat á hæfi viðskiptavinar skv. 2. mgr. 25. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Mat á hæfi skv. 44. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
15. Rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt tilskipun 2011/61/ESB: Rekstraraðili samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
16. Rekstrarfélag verðbréfasjóðs (UCITS) samkvæmt tilskipun 2009/65/EB: Rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum um verðbréfasjóði.
17. Skilavald samkvæmt tilskipun 2014/59/ESB: Skilastjórnvald samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
18. Stofnun um starfstengdan lífeyri samkvæmt tilskipun (ESB) 2016/2341: Starfstengdur eftirlaunasjóður samkvæmt lögum um starfstengda eftirlaunasjóði.
19. Samstæða skv. c-lið 1. mgr. 212. gr. tilskipunar 2009/138/EB: Samstæða samkvæmt lögum um vátryggingasamstæður.
20. Samstæðureikningur í samræmi við tilskipun 2013/34/ESB: Samstæðureikningur samkvæmt lögum um viðbótareftirlit með fjármálasamsteypum.
21. Úttekt og mat skv. 3. mgr. 97. gr. tilskipunar 2013/36/ESB: Könnunar- og matsferli og álagspróf Fjármálaeftirlitsins skv. 80. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
22. Vátryggingafélag samkvæmt tilskipun 2009/138/EB: Vátryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.
23. Verðbréfafyrirtæki skv. 1. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Verðbréfafyrirtæki samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
1. upphafsaðili, umsjónaraðili eða upphaflegur lánveitandi hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 6. gr., um eftirhald áhættu,
2. upphafsaðili, umsjónaraðili eða sérstakur verðbréfunaraðili hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 7. gr., um gagnsæiskröfur,
3. upphafsaðili, umsjónaraðili eða upphaflegur lánveitandi hefur ekki uppfyllt viðmiðin sem mælt er fyrir um í 9. gr., um viðmið lánveitinga,
4. upphafsaðili, umsjónaraðili eða sérstakur verðbréfunaraðili hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 18. gr., um notkun STS-auðkenningarinnar, þ.e. einfaldrar, gagnsærrar og staðlaðrar verðbréfunar,
5. verðbréfun er auðkennd sem STS og upphafsaðili, umsjónaraðili eða sérstakur verðbréfunaraðili þeirrar verðbréfunar hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 19.–22. gr., um kröfur fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun án hefðbundinna eignatryggðra skammtímaskuldabréfa,
6. verðbréfun er auðkennd sem STS og upphafsaðili, umsjónaraðili eða sérstakur verðbréfunaraðili þeirrar verðbréfunar hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 23.–26. gr., um kröfur fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun eignatryggðra skammtímaskuldabréfa,
7. verðbréfun er auðkennd sem STS og upphafsaðili, umsjónaraðili eða sérstakur verðbréfunaraðili þeirrar verðbréfunar hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 26. gr. a – 26. gr. e, um kröfur fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun á efnahagsreikningi,
8. upphafsaðili eða umsjónaraðili leggur fram misvísandi tilkynningu skv. 1. mgr. 27. gr., um STS-tilkynningu,
9. upphafsaðili eða umsjónaraðili hefur ekki uppfyllt kröfurnar sem mælt er fyrir um í 4. mgr. 27. gr., um tilkynningarskyldu þegar verðbréfun uppfyllir ekki lengur STS-viðmið skv. 19. gr. – 26. gr. e, eða
10. þriðji aðili með starfsleyfi skv. 28. gr. hefur ekki tilkynnt um verulegar breytingar á upplýsingum sem veittar voru í samræmi við 1. mgr. 28. gr., um sannprófun þriðja aðila á að STS-viðmið séu uppfyllt, eða aðrar breytingar sem ástæða er til að ætla að geti haft áhrif á mat lögbærs yfirvalds.
a. alvarleika og tímalengdar brotsins,
b. ábyrgðar hins brotlega einstaklings eða lögaðila,
c. fjárhagsstöðu hins brotlega,
d. þýðingar ávinnings eða taps sem forðað var með broti fyrir hinn brotlega, að því marki sem unnt er að ákvarða það,
e. þess tjóns sem brotið veldur þriðja aðila, að því marki sem unnt er að ákvarða það,
f. samstarfsvilja hins brotlega,
g. fyrri brota hins brotlega og hvort um ítrekað brot er að ræða.
1. 7. mgr. 6. gr. um kröfuna um eftirhald áhættu.
2. 3. mgr. 7. gr. um upplýsingar sem upphafsaðila, umsjónaraðila og sérstökum verðbréfunaraðila ber að veita til að uppfylla skyldur sínar skv. 1. mgr. 7. gr.
3. 4. mgr. 7. gr. um framsetningu upplýsinga sem upphafsaðila, umsjónaraðila og sérstökum verðbréfunaraðila ber að veita til að uppfylla skyldur sínar skv. 1. mgr. 7. gr.
4. 5. mgr. 8. gr. um lista yfir lögmætan tilgang endurverðbréfunar skv. 3. mgr. 8. gr.
5. 7. mgr. 10. gr. um umsókn um skráningu sem verðbréfunarskrá og verklagsreglur sem verðbréfunarskrár skulu beita til að sannreyna heilleika og samkvæmni upplýsinga sem þeim eru gerðar tiltækar.
6. 8. mgr. 10. gr. um framsetningu umsóknar um skráningu verðbréfunarskrár.
7. 2. mgr. 17. gr. um upplýsingagjöf upphafsaðila, umsjónaraðila og sérstaks verðbréfunaraðila og tiltækileika gagna í vörslu verðbréfunarskrár.
8. 3. mgr. 17. gr. um stöðluð sniðmát sem upphafsaðilinn, umsjónaraðilinn eða sérstaki verðbréfunaraðilinn skulu nota til að veita upplýsingar skv. 1. mgr. 17. gr.
9. 14. mgr. 20. gr. um hvaða undirliggjandi áhættuskuldbindingar skv. 8. mgr. 20. gr. teljast einsleitar.
10. 6. mgr. 22. gr. um efni, aðferðir og framsetningu upplýsinga skv. 4. mgr. 22. gr., að því er varðar sjálfbærnivísa í tengslum við skaðleg áhrif á loftslagið og önnur skaðleg umhverfis-, félags- og stjórnunartengd áhrif.
11. 21. mgr. 24. gr. um hvaða undirliggjandi áhættuskuldbindingar skv. 15. mgr. 24. gr. teljast einsleitar.
12. 13. mgr. 26. gr. b um hvaða undirliggjandi áhættuskuldbindingar skv. 8. mgr. 26. gr. b teljast einsleitar.
13. 5. mgr. 26. gr. c um lýsingu og, ef við á, kvörðun afkomutengdra virkjandi atburða.
14. 6. mgr. 26. gr. d um efni, aðferðir og framsetningu upplýsinga skv. 4. mgr. 26. gr. d, að því er varðar sjálfbærnivísa í tengslum við skaðleg áhrif á loftslagið og önnur skaðleg umhverfis-, félags- og stjórnunartengd áhrif.
15. 6. og 7. mgr. 27. gr. um upplýsingar sem veita ber í STS-tilkynningum og sniðmát sem nota skal við STS-tilkynningar.
16. 4. mgr. 28. gr. um upplýsingar sem veita á Fjármálaeftirlitinu í umsókn um starfsleyfi þriðja aðila.
17. 8. mgr. 36. gr. um almenna samstarfsskyldu, upplýsingaskipti og tilkynningarskyldu að því er viðkemur Fjármálaeftirlitinu, Eftirlitsstofnun EFTA og evrópsku eftirlitskerfi á fjármálamarkaði.
1)Rg. 1250/2025. 2)Rg. 480/2026.