Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2026. Útgáfa 157c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaðar
2025 nr. 78 24. nóvember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. jan. 2026. EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 2022/2554.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.
1. Aðilar á fjármálamarkaði sem eru tilgreindir sem nauðsynlegar eða mikilvægar rekstrareiningar samkvæmt landslögum sem lögleiða 3. gr. tilskipunar (ESB) 2022/2555: Rekstraraðilar nauðsynlegrar þjónustu á sviði bankastarfsemi og innviða fjármálamarkaða samkvæmt lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða sem jafnframt teljast til aðila á fjármálamarkaði samkvæmt lögum þessum.
2. Aðilar sem um getur í 4.–23. lið 5. mgr. 2. gr. tilskipunar 2013/36/ESB: Aðilar sem um getur í 1. og 3. málsl. 2. mgr. 1. gr. a laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
3. Dótturfélag í skilningi 10. liðar 2. gr. og 22. gr. tilskipunar 2013/34/ESB: Dótturfélag samkvæmt lögum um ársreikninga.
4. Einstaklingar eða lögaðilar sem njóta undanþágu skv. 2. og 3. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Einstaklingar eða lögaðilar sem njóta undanþágu skv. 1. mgr. 2. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
5. Endurtryggingafélag skv. 4. lið 13. gr. tilskipunar 2009/138/EB: Endurtryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.
6. Endurtryggingamiðlari skv. 5. lið 1. mgr. 2. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97: Vátryggingamiðlari í skilningi laga um dreifingu vátrygginga.
7. Greiðslustofnun skv. 4. lið 4. gr. tilskipunar (ESB) 2015/2366: Greiðslustofnun samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
8. Greiðslustofnun sem er undanþegin samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Greiðslustofnun með takmarkað starfsleyfi skv. 34. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021.
9. Móðurfyrirtæki í skilningi 9. liðar 2. gr. og 22. gr. tilskipunar 2013/34/ESB: Móðurfélag samkvæmt lögum um ársreikninga.
10. Nauðsynleg eða mikilvæg rekstrareining sem fellur undir tilskipun (ESB) 2022/2555: Mikilvægir innviðir í skilningi laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða sem jafnframt teljast til aðila á fjármálamarkaði samkvæmt lögum þessum.
11. Nauðsynlegir starfsþættir í skilningi 35. liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2014/59/ESB: Nauðsynleg starfsemi samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
12. Net- og upplýsingakerfi skv. 1. lið 6. gr. tilskipunar (ESB) 2022/2555: Net- og upplýsingakerfi samkvæmt lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
13. Rafeyrisfyrirtæki skv. 1. lið 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/110/EB: Rafeyrisfyrirtæki samkvæmt lögum um útgáfu og meðferð rafeyris.
14. Rafeyrisfyrirtæki sem njóta undanþágu samkvæmt tilskipun 2009/110/EB: Aðilar með takmarkað starfsleyfi skv. 16. gr. laga um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013.
15. Reikningsupplýsingaþjónustuveitandi skv. 1. mgr. 33. gr. tilskipunar (ESB) 2015/2366: Reikningsupplýsingaþjónustuveitandi samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
16. Rekstraraðili sérhæfðra sjóða eins og um getur í 2. mgr. 3. gr. tilskipunar 2011/61/ESB: Rekstraraðilar sérhæfðra sjóða sem falla ekki undir 1. mgr. 6. gr. laga um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020.
17. Rekstraraðili skv. b-lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2011/61/ESB: Rekstraraðili samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
18. Rekstrarfélag skv. b-lið 1. mgr. 2. gr. tilskipunar 2009/65/EB: Rekstrarfélag verðbréfasjóða samkvæmt lögum um verðbréfasjóði.
19. Sameiginlegur tengiliður sem er tilnefndur eða komið á fót í samræmi við tilskipun (ESB) 2022/2555: Fjarskiptastofa samkvæmt lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
20. Samstæða í skilningi 11. liðar 2. gr. tilskipunar 2013/34/ESB: Samstæða samkvæmt lögum um ársreikninga.
21. Skilastjórnvald skv. 3. gr. tilskipunar 2014/59/ESB: Skilastjórnvald samkvæmt lögum um skilameðferð lánastofnana og verðbréfafyrirtækja.
22. Stjórn og/eða framkvæmdastjórn í skilningi 36. liðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB, 7. liðar 1. mgr. 3. gr. tilskipunar 2013/36/ESB og s-liðar 1. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2009/65/EB: Stjórn og/eða framkvæmdastjórn.
23. Stofnun um starfstengdan lífeyri skv. 1. lið 6. gr. tilskipunar (ESB) 2016/2341: Starfstengdur eftirlaunasjóður samkvæmt lögum um starfstengda eftirlaunasjóði.
24. Vátrygginga- og endurtryggingafélög eins og um getur í 4. gr. tilskipunar 2009/138/EB: Vátryggingafélag sem eru undanþegin gildissviði vegna stærðar skv. 3. mgr. 3. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.
25. Vátryggingafélag skv. 1. lið 13. gr. tilskipunar 2009/138/EB: Vátryggingafélag samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.
26. Vátryggingamiðlari í hliðarstarfsemi skv. 4. lið 1. mgr. 2. gr. tilskipunar (ESB) 2016/97: Aðili sem dreifir vátryggingu sem aukaafurð samkvæmt lögum um dreifingu vátrygginga.
27. Verðbréfafyrirtæki skv. 1. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Verðbréfafyrirtæki samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
28. Viðbragðsteymi vegna váatvika er varða tölvuöryggi sem er tilnefnt eða komið á fót í samræmi við tilskipun (ESB) 2022/2555: Netöryggissveit samkvæmt varnarmálalögum.
29. Viðskiptavettvangur skv. 24. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Viðskiptavettvangur samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
30. Öryggi net- og upplýsingakerfa skv. 2. lið 6. gr. tilskipunar (ESB) 2022/2555: Öryggi net- og upplýsingakerfa samkvæmt lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
1. 5.–14. gr. um kröfur um stýringu upplýsinga- og fjarskiptatækniáhættu,
2. 16. gr. um kröfur um einfaldaðan áhættustýringarramma fyrir upplýsinga- og fjarskiptatækni,
3. 17. gr. um kröfur um atvikastjórnunarferli sem tengist upplýsinga- og fjarskiptatækni, eftir atvikum, sbr. 23. gr.,
4. 1. og 2. mgr. 18. gr. um skyldu til að flokka atvik sem tengjast upplýsinga- og fjarskiptatækni og netógnum, eftir atvikum, sbr. 23. gr.,
5. 1., 3. og 4. mgr. 19. gr. um skyldu til að tilkynna alvarleg atvik sem tengjast upplýsinga- og fjarskiptatækni, eftir atvikum, sbr. 23. gr.,
6. 24. gr. um almennar kröfur um framkvæmd prófunar á stafrænum viðnámsþrótti,
7. 25. gr. um prófun á upplýsinga- og fjarskiptatæknibúnaði og -kerfum,
8. 26. gr. um kröfur um auknar prófanir á upplýsinga- og fjarskiptatæknibúnaði, tilheyrandi kerfum og ferlum sem byggjast á ógnamiðaðri innbrotsprófun,
9. 27. gr. um kröfur fyrir prófunaraðila til að framkvæma ógnamiðaða innbrotsprófun,
10. 28. og 29. gr. um kröfur um stýringu upplýsinga- og fjarskiptatækniáhættu vegna þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu,
11. 1.–3. mgr. 30. gr. um kröfur varðandi samninga við þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu,
12. 12. mgr. 31. gr. um kröfur sem gerðar eru varðandi nýtingu þjónustu mikilvægs þriðja aðila með staðfestu í þriðja ríki,
13. 3. og 6. mgr. 42. gr. um skyldu aðila á fjármálamarkaði til að taka tillit til áhættu sem tilgreind er í tilmælum aðaleftirlitsaðila til mikilvægra þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptaþjónustu og, ef við á, um skyldu til að hlíta ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um notkun eða nýtingu þjónustu slíkra aðila.
1. alvarleika brots og hvað það hefur staðið lengi,
2. ábyrgðar hins brotlega einstaklings eða lögaðila,
3. fjárhagsstöðu hins brotlega, sér í lagi með hliðsjón af ársveltu lögaðila eða árstekjum og eignum einstaklings,
4. þýðingar ávinnings eða taps sem forðað var með broti fyrir hinn brotlega,
5. hvort brot hafi leitt til tjóns þriðja aðila,
6. samstarfsvilja hins brotlega,
7. fyrri brota hins brotlega og hvort um ítrekað brot er að ræða.
1. 6. mgr. 31. gr. um viðmiðanir til grundvallar útnefningu mikilvægra þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu.
2. 2. mgr. 43. gr. um gjöld sem Eftirlitsstofnun EFTA leggur á mikilvæga þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu.
1. 15. gr. um frekari samhæfingu búnaðar, aðferða, ferla og stefna til stýringar á upplýsinga- og fjarskiptatækniáhættu.
2. 3. mgr. 16. gr. um einfaldaðan áhættustýringarramma fyrir upplýsinga- og fjarskiptatækni.
3. 3. og 4. mgr. 18. gr. um flokkun á atvikum sem tengjast upplýsinga- og fjarskiptatækni og netógnum.
4. 20. gr. um samræmingu á efni og sniðmátum tilkynninga.
5. 11. mgr. 26. gr. um auknar prófanir á upplýsinga- og fjarskiptatæknibúnaði og samsvarandi kerfum og ferlum sem byggjast á ógnamiðaðri innbrotsprófun.
6. 9. og 10. mgr. 28. gr. um almennar meginreglur um trausta stýringu upplýsinga- og fjarskiptatækniáhættu vegna þriðju aðila.
7. 5. mgr. 30. gr. um helstu samningsákvæði.
8. 2. mgr. 41. gr. um samræmingu skilyrða vegna eftirlitsramma mikilvægra þriðju aðila sem veita upplýsinga- og fjarskiptatækniþjónustu.
1) Rgl. 310/2026.