Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um launasjóð stórmeistara í skák
1990 nr. 58 16. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 1991. Breytt með: L. 83/1997 (tóku gildi 6. júní 1997). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við mennta- og barnamálaráðherra eða mennta- og barnamálaráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr.
Stofna skal Launasjóð íslenskra stórmeistara í skák. Fjárveiting til sjóðsins skal veitt í fyrsta sinn í fjárlögum fyrir árið 1991 og samsvara árslaunum fimm háskólakennara (lektora).
Tilgangur sjóðsins er að skapa íslenskum stórmeisturum í skák fjárhagslegan grundvöll til að helga sig skáklistinni standi hugur þeirra til þess, sbr. og ákvæði 2. mgr. 3. gr.
Þeir, sem njóta launa úr sjóðnum, hafa kennslu- og fræðsluskyldu að gegna við Skákskóla Íslands sem nánar er kveðið á um í reglugerð.
2. gr.
Í fjárlögum ár hvert skal sjóðnum áætluð fjárveiting er jafngildi launum háskólakennara (lektora) til þeirra er njóta skulu launa úr sjóðnum, sbr. 1. og 2. mgr. 3. gr.
Fjárhæðin skal endurskoðuð ár hvert við undirbúning fjárlaga með tilliti til breytinga á launum háskólakennara.
Fjárveiting skv. 1. gr. skal í fyrsta sinn veitt í fjárlögum fyrir árið 1991.
3. gr.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa þeir íslenskir skákmeistarar sem öðlast hafa alþjóðlegan titil stórmeistara og sýna skákstyrk sinn með því að ná stórmeistaraárangri a.m.k. einu sinni á þriggja ára tímabili.
Ef ekki er kona í hópi stórmeistara skal veita laun hverju sinni a.m.k. einni konu er náð hefur afburðaárangri í skák ef slík umsókn um laun liggur fyrir.
Þeir, sem greiðslu hljóta úr sjóðnum, skulu settir eða ráðnir til a.m.k. eins árs í senn eða ráðnir með þriggja mánaða uppsagnarfresti.
4. gr.
Skákmeistarar, sem njóta launa úr sjóði þessum, skulu:
a. sinna skákkennslu við Skákskóla Íslands eða fræðslu á vegum skólans, sbr. lög um Skákskóla Íslands,
b. sinna rannsóknum á sviði skáklistar,
c. tefla fyrir Íslands hönd á skákmótum heima og erlendis.
5. gr.
Skákmeistarar, er þiggja laun samkvæmt lögum þessum, teljast opinberir starfsmenn með þeim réttindum og skyldum sem því fylgir, sbr. lög … 1) um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þar með talin réttindi til aðildar að lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, enda uppfylli þeir að öðru leyti ákvæði 3. gr. laga nr. 29/1963, 2) með síðari breytingum.
1)L. 83/1997, 122. gr. 2)Nú l. 1/1997.
6. gr.
Stjórn launasjóðsins skal skipuð þremur mönnum sem tilnefndir eru til þriggja ára í senn. [Ráðherra] 1) skipar tvo, og er annar þeirra formaður, en Skáksamband Íslands einn.
1)L. 126/2011, 143. gr.
7. gr.
[Ráðherra] 1) setur reglugerð 2) um framkvæmd laga þessara þar sem m.a. skal kveðið á um vörslu sjóðsins og úthlutanir úr honum.
1)L. 126/2011, 143. gr. 2)Rg. 600/2011, sbr. 1002/2017.
8. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.