Lagasafn. Íslensk lög 15. apríl 2023. Útgáfa 153b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um framkvæmd samnings um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra
2000 nr. 17 14. apríl
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 28. apríl 2000. Breytt með: L. 164/2002 (tóku gildi 1. jan. 2003). L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eða
umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
1. gr.
Efnavopn.

Í lögum þessum merkir efnavopn:
a. eiturefni og forstigsefni þeirra, nema þau séu ætluð til nota sem ekki eru bönnuð samkvæmt samningi um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra frá 13. janúar 1993, enda samræmist gerð og magn efnanna slíkum notum;
b. skotfæri og tæki sem sérstaklega eru gerð til að valda bana eða öðrum skaða með eituráhrifum eiturefna skv. a-lið er leysast mundu úr læðingi við beitingu slíkra skotfæra eða tækja;
c. hvern þann búnað sem sérstaklega er gerður til að nota í beinum tengslum við beitingu skotfæra eða tækja skv. b-lið.
2. gr.
Bann við meðferð efnavopna.

Enginn má þróa, framleiða, afla, safna, nota eða hafa í vörslu sinni efnavopn né afhenda slík vopn þannig að það stríði gegn samningnum um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra.
3. gr.
Innlent eftirlit.

[[Ráðherra]
1) fer með framkvæmd mála samkvæmt lögum þessum í samstarfi við [þá ráðherra er fara með málefni almannaöryggis og málefni varnarsvæða].
1)]
2)

[Umhverfisstofnun fer með eftirlit með framkvæmd laganna og samningsins um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra. Ríkislögreglustjóri annast framkvæmd samningsins að því er varðar viðbúnað fyrir almenning.]
2)

[Umhverfisstofnun]
2) getur krafist allra upplýsinga og annarra gagna sem nauðsynleg þykja við athugun einstakra mála.

[Umhverfisstofnun]
2) getur að undangengnum dómsúrskurði gert nauðsynlegar athuganir á starfsstað og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum. Við framkvæmd athugunar skal lögregla veita [Umhverfisstofnun]
2) nauðsynlega aðstoð.

Á varnarsvæðum fer [hlutaðeigandi ráðherra]
1) með lögsögu samkvæmt lögum um yfirstjórn mála á varnarsvæðum. Getur hann samið við hæfa aðila að mati [Umhverfisstofnunar]
2) um framkvæmd eftirlitsins, sbr. lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.
1)L. 126/2011, 297. gr. 2)L. 164/2002, 11. gr.
4. gr.
Alþjóðlegt eftirlit.

Eftirlitsmönnum sem starfa á grundvelli samningsins um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra er heimilt að framkvæma hérlendis skoðanir sem kveðið er á um í samningnum í þeim tilgangi að fylgjast með því hvort Ísland framfylgir skyldum sínum samkvæmt samningnum. Fulltrúar [þess ráðuneytis er fer með málefni varnarsvæða]
1) og [Umhverfisstofnunar]
2) skulu vera viðstaddir slíkar skoðanir.

Eftirlitsmenn sem starfa á grundvelli samningsins um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra skulu njóta friðhelgi og forréttinda hér á landi eins og kveðið er á um í samningnum.
1)L. 126/2011, 297. gr. 2)L. 164/2002, 12. gr.
5. gr.
Reglugerðarheimild.

Ráðherra sem í hlut á getur í reglugerð sett nánari ákvæði um framkvæmd laganna.
6. gr.
Refsiákvæði.

Brot gegn lögum þessum varða sektum eða fangelsi allt að fjórum árum. Nú er brotið ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið fangelsi allt að sex árum.

Tilraun eða hlutdeild í brotum samkvæmt lögum þessum er refsiverð skv. III. kafla almennra hegningarlaga.
7. gr.
Gildistaka.

Lög þessi öðlast þegar gildi.