Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila

2026 nr. 20 18. mars


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 26. mars 2026; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 12. gr.; EES-samningurinn: XI. viðauki tilskipun 2016/2102.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Markmið, gildissvið og orðskýringar.
1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.
2. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila.
Lögin gilda ekki um:
    1. Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum útvarpsrekenda í almannaþágu.
    2. Vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka nema þau veiti þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks.
3. gr. Orðskýringar.
Í lögum þessum hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem hér segir:
    1. Opinber aðili: Ríki, sveitarfélög, stofnanir þeirra og samtök og aðrir opinberir aðilar.
    2. Smáforrit fyrir fartæki: Notkunarhugbúnaður sem er hannaður og þróaður af eða fyrir hönd opinberra aðila, til notkunar fyrir almenning á fartækjum eins og snjallsímum eða spjaldtölvum.
    3. Vöktunaraðili: Sá aðili sem ráðherra felur með reglugerð að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar samkvæmt lögum þessum.

II. kafli. Kröfur og skyldur.
4. gr. Aðgengiskröfur.
Opinberir aðilar skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera vefsetur sín og smáforrit fyrir fartæki aðgengileg með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.
5. gr. Óhófleg byrði.
Opinberir aðilar skulu uppfylla aðgengiskröfur skv. 4. gr. að því marki sem þær verða þeim ekki óhófleg byrði.
Við mat á því hvort um óhóflega byrði sé að ræða skv. 1. mgr. skal tekið tillit til stærðar, bolmagns og eðlis viðkomandi opinbers aðila, ásamt áætluðum kostnaði og ávinningi fyrir aðilann í tengslum við áætlaðan ávinning fyrir fatlað fólk.
6. gr. Aðgengisyfirlýsing og endurgjöf.
Opinberir aðilar skulu birta og uppfæra reglulega yfirlýsingu um aðgengi á vefsetrum sínum og í smáforritum fyrir fartæki.
Opinberir aðilar skulu koma á fót aðgengilegri leið fyrir notendur til að veita endurgjöf, tilkynna um vanefndir á aðgengiskröfum og biðja um upplýsingar sem eru undanskildar.

III. kafli. Eftirlit og framfylgd.
7. gr. Reglubundið eftirlit og skýrslugjöf.
Vöktunaraðili skal árlega gera úttekt á úrtaki vefsetra og smáforrita opinberra aðila.
Niðurstöður hverrar úttektar skulu birtar opinberlega. Vöktunaraðili skal á þriggja ára fresti taka saman skýrslu um niðurstöður eftirlits og skila til Eftirlitsstofnunar EFTA.
Vöktunaraðili skal, til að styðja við framkvæmd laga þessara, gefa út almennar leiðbeiningar um framkvæmd tæknilegra krafna, útbúa og birta fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu skv. 6. gr. og stuðla að þjálfun og vitundarvakningu um stafrænt aðgengi hjá opinberum aðilum.
8. gr. Kvartanir og úrbætur.
Hver sá sem telur að opinber aðili uppfylli ekki kröfur laga þessara getur beint ábendingu til viðkomandi aðila.
Ef ekki er brugðist við ábendingu skv. 1. mgr. á fullnægjandi hátt innan hæfilegs frests er unnt að beina formlegri kvörtun til þess stjórnvalds sem fer með kærumál samkvæmt lögum þessum. Stjórnvaldið getur beint bindandi fyrirmælum til opinbers aðila um að gera úrbætur innan hæfilegs frests.
9. gr. Dagsektir.
Sinni opinber aðili ekki fyrirmælum stjórnvalds skv. 8. gr. innan tilsetts frests getur stjórnvaldið lagt dagsektir á viðkomandi aðila.
Dagsektir renna í ríkissjóð og falla niður þegar úrbætur hafa verið gerðar að mati stjórnvalds.

IV. kafli. Gildistaka o.fl.
10. gr. Innleiðing.
Lög þessi eru sett til innleiðingar á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102 frá 26. október 2016 um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021 frá 5. febrúar 2021.
11. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt í reglugerð að setja nánari ákvæði um framkvæmd laga þessara, þar á meðal um:
    1. Nánari afmörkun á undanþágum frá gildissviði laganna skv. 2. mgr. 2. gr.
    2. Tæknilegar kröfur og staðla um aðgengi skv. 4. gr.
    3. Skilyrði og formlegt ferli fyrir mat á óhóflegri byrði skv. 5. gr.
    4. Form, lágmarksefni, birtingu og fyrirmynd að aðgengisyfirlýsingu, svo og fyrirkomulag endurgjafar skv. 6. og 7. gr.
    5. Hlutverk og tilnefningu eftirlitsaðila annars vegar og framfylgdaraðila hins vegar, þar á meðal að:
    a. fela sérstakri starfseiningu eða ríkisaðila sem starfar á ábyrgð ráðherra hlutverk vöktunaraðila til að annast tæknilega vöktun og leiðbeiningar skv. 7. gr.,
    b. fela stjórnvaldi það hlutverk að annast meðferð kærumála og úrskurða um brot skv. 8. gr.
    6. Aðferðafræði fyrir eftirlit og skýrslugjöf skv. 7. gr.
    7. Málsmeðferð og fresti vegna kvartana og úrbóta skv. 8. gr.
    8. Viðbótarráðstafanir ríkisins til að stuðla að þjálfun og aukinni vitund um aðgengismál skv. 3. mgr. 7. gr.
    9. Fjárhæð, útreikning, álagningu og innheimtu dagsekta skv. 9. gr.
12. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. koma ákvæði 4.–9. gr. til framkvæmda sem hér segir:
    1. 1. janúar 2027 fyrir vefsetur opinberra aðila sem voru fyrst gerð almenningi aðgengileg eftir 1. janúar 2015.
    2. 1. júlí 2027 fyrir önnur vefsetur opinberra aðila.
    3. 1. janúar 2028 fyrir smáforrit opinberra aðila fyrir fartæki.

Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica