154. löggjafarþing — 9. fundur,  26. sept. 2023.

efling Samkeppniseftirlitsins.

[13:34]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Nýlega kom fram í máli Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, að stofnunin gæti vegna skorts á mannafla einungis varið um 10% af tíma sínum í að rannsaka misnotkun fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu á Íslandi. Páll Gunnar benti réttilega á að þessi staða væri óásættanleg í því fákeppnisumhverfi sem við búum við á Íslandi og að réttara væri að stofnunin hefði bolmagn til að eyða hið minnsta 40% af tíma sínum í slíkar rannsóknir.

Mikilvægi þess að Samkeppniseftirlitið geti sinnt frumkvæðisathugunum af þessu tagi kristallast í nýlegri ákvörðun stofnunarinnar um að Samskip hafi brotið með alvarlegum hætti gegn samkeppnislögum og ákvæðum EES-samningsins með ólögmætu samráði við Eimskip. Samkeppniseftirlitið ákvað við rannsókn málsins að leggja 4,2 milljarða kr. stjórnvaldssekt á Samskip vegna þessara brota og annarra. Áður hafði Eimskip viðurkennt brot í sama máli og greitt stjórnvaldssekt að fjárhæð 1,5 milljarðar kr. Þetta er stærsta samkeppnismál sögunnar hvað umfang og áhrif málsins varðar. Umfang skaðans vegna þessa samráðs á reyndar enn eftir að koma fyllilega í ljós. Þó er ljóst að það hafði áhrif á allt efnahagskerfi landsins, allt frá vöruverði á nauðsynjavörum til hækkandi afborgana fólks á húsnæðislánum.

Forseti. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar má finna fyrirætlanir um að sameina samkeppniseftirlitið og Neytendastofu með möguleika á að sameina jafnvel fleiri stofnanir undir sama hatt. Ég er stórlega efins um að slík sameining verði til þess að efla Samkeppniseftirlitið enda hafa þau sem finna Samkeppniseftirlitinu flest til foráttu verið helstu talsmenn þess að leggja stofnunina niður í núverandi mynd. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort ekki væri réttara að styrkja Samkeppniseftirlitið verulega í sinni núverandi mynd í stað þess að leggja það niður.