forseti Íslands setur þingið.
Ég býð alla hv. alþingismenn sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 28. október 2017 velkomna til starfa á Alþingi. Sérstaklega býð ég velkomna nýkjörna alþingismenn sem ekki áttu hér fast sæti þegar Alþingi lauk störfum. Nú eru nokkuð sérstakir tímar hér í þinginu annað árið í röð, tími knappur en verkefnin brýn. Það hefur sýnt sig að með góðum vilja og samstarfi má vinna mikið verk. Ég vil láta í ljósi þá von að störf þessa nýkjörna þings verði landi og þjóð til heilla.
Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga gott samstarf við það eins og endranær.