störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í þessum töluðu orðum fer fram vígsluhátíð á nýbyggingu hjá félagasamtökunum Samhjálp. Samhjálp er alltaf tilbúin að hjálpa bræðrum sínum og systrum í erfiðleikum, hjálpa fólki að komast aftur á réttan kjöl eftir að hafa farið út af sporinu og ég vil óska þeim til hamingju með þessa nýbyggingu og velfarnaðar áfram í starfi.
Það eru svona félög sem eru okkur sem samfélagi svo gríðarlega mikilvæg. Þau gefa svo mikið. Þetta er sjálfsprottið frumkvæði að því að hjálpa fólki og hafa úrræði til boða sem geta hjálpað þeim til að eiga betra líf. Það er ómetanlegt þetta mikla frumkvæði og mikla trú á starfinu sem félagasamtök sinna, þriðji geirinn eins og ég kalla hann oft í þessum ræðustól, hversu dýrmætt þetta er fyrir okkur og hve mikill ávinningur er af því. Við getum ímyndað okkur hvað það hefði kostað okkur ef þetta úrræði og nýbyggingin væri öll unnin á vegum hins opinbera, hvaða verkferla, lög og reglur og greiningar og viðtöl og annað sem fólkið þyrfti bara til þess að koma nýbyggingunni af stað, til að fá fjármagnið í hana og svo til þess að fá að njóta þjónustunnar sem þar er. Þarna fáum við á hagkvæman hátt lausnir sem henta oftast þeim sem þurfa á lausnunum halda mun betur en það sem er inni í okkar fasta ríkisramma. Þarna er meira svigrúm og þetta auðveldar aðgengi, opnar aðgengi fyrir mun minni fjármuni og gengur miklu hraðar og þjónustar miklu fleiri. Fyrir það skulum við þakka.