153. löggjafarþing — 10. fundur,  29. sept. 2022.

búvörulög.

120. mál
[14:25]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og staðan er núna, og við förum eftir almennum samkeppnislögum, þá tryggjum við aðkomu Samkeppniseftirlitsins. Eins og ég skil þetta mál þá er í raun verið að sniðganga samkeppnisreglur og um leið Samkeppniseftirlitið ef það á að heimila samruna. Ég óttast það.

Fyrirkomulag og ákveðnar leikreglur — alla vega er það þannig að það fyrirkomulag sem við höfum í mjólkuriðnaði, þær leikreglur sem við settum þar, leiddu engu að síður til þess að Hæstiréttur staðfesti 480 millj. kr. sekt á Mjólkursamsöluna vegna alvarlegra brota á samkeppnislögum. Það er það fyrirkomulag sem var nýtt og það var háttalagið eftir þeim leikreglum. Þannig að MS mismunaði viðskiptaaðilum og veitti þeim það ómálefnaleg viðskiptakjör að það þótti sérlega alvarlegt og alls ekki réttlætanlegt með tilvísun í núverandi búvörulög, þannig að það sé líka sagt.

Menn hafa til að mynda rætt aðkomu Samkeppniseftirlitsins út af sölu Mílu. Þar lækkaði söluandvirðið um 8 milljarða og menn tóku andköf og sögðu: Nú eru eigendurnir að fá 8 milljörðum minna út af aðkomu Samkeppniseftirlitsins. Ég horfi miklu frekar þannig á það að menn hafi verið að tryggja öryggi neytenda. Það var verið að tryggja rétt neytenda fram í tímann þannig að þessir 8 milljarðar, sem hefðu ella farið til eigenda, til þeirra sem voru að selja, fóru til neytenda. Ég vara við því að við förum eftir svona leiðum eða öðrum að grafa undan samkeppnisreglum, grafa undan Samkeppniseftirlitinu, með því að samþykkja svona mál. Ég ítreka þá ósk mína að ráðherra samkeppnismála, ráðherra Framsóknarflokksins, haldi vöku sinni þegar slíkar undanþágur frá almennum samkeppnisreglum eru settar og reyni að tryggja rétt neytenda í öllum þeim starfshópum sem viðkomandi ráðherra skipar.