157. löggjafarþing — 100. fundur,  27. apr. 2026.

utanríkis- og alþjóðamál 2025.

629. mál
[18:52]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, við hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson erum sammála um að utanríkismál eru stóru málin núna og íslenska þjóðin á mikið undir að vera í góðum samskiptum og taka þátt í utanríkismálum en mjög margir virðast vilja gera lítið úr mikilvægi þess. Þingmönnum Sjálfstæðisflokksins er mikið í mun að vita hver mín afstaða er, það er alveg greinilegt, og okkar í Flokki fólksins og tala þá gjarnan um að þetta sé þjóðaratkvæðagreiðsla um aðild að ESB sem þetta náttúrulega er ekki. Þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort við ætlum að skoða aðild að ESB betur og fara í þær viðræður. Við í Flokki fólksins viljum að fólk fái að taka sína ákvörðun án þess að vera að heyra endilega hver afstaða mín er varðandi það hvort við eigum að fara í þessar viðræður eða ekki. Það er bara eitthvað sem kjósendur Flokks fólksins taka ákvörðun um og þurfa ekki endilega að vita hver mín afstaða er til þess. Þetta er í rauninni bara já eða nei-spurning og við hljótum bara hvert og eitt að taka hana á okkar forsendum og eftir því hvernig við metum að staðan fyrir Ísland sé best. Eins og kom fram áðan eru um 60% þeirra kjósenda Flokks fólksins fylgjandi því að það sé spurt um þetta og það sé bara fengið á hreint: Viljum við þetta eða viljum við þetta ekki? Ég held að það sé löngu tímabært að spyrja að því. Ég treysti mínu fólki og mínum kjósendum til að gera það og ætla ekki að reyna að hafa áhrif á þá niðurstöðu.