150. löggjafarþing — 100. fundur,  7. maí 2020.

utanríkis- og alþjóðamál.

749. mál
[12:24]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef nú ekki séð þetta þingmál en það kemur kannski ekkert rosalega á óvart út á hvað það gengur. Það er ESB — aftur. Ég held, svo að það sé alveg skýrt, að við verðum …(Gripið fram í.) Virðulegi forseti. Hef ég truflað eitthvað hv. þingmann? Ég sagði bara orð sem maður má kannski ekki segja. Það sem við höfum verið að gera með þessum skýrslum, hvort sem það er EES-skýrslan eða Utanríkisþjónusta til framtíðar, er að hugsa til framtíðar og hvernig við getum best gætt okkar hagsmuna. Þegar ég er að vísa til þess að umræðan hafi verið á röngum stað þá held ég, virðulegi forseti, og ég vona og ég veit að við hv. þingmaður erum sammála um það, þótt við séum ósammála um ýmislegt, að við höfum ekki tekið nægjanlega djúpa umræðu um t.d. EES-samninginn. Við höfum ekki gert það. Það hefur ekki verið nægilega mikið í umræðunni (Forseti hringir.) hvaða möguleika við höfum þar og hvernig við getum best gætt hagsmuna okkar. Það hefur gert það að (Forseti hringir.) verkum að allra handa misskilningur hefur vaðið uppi og við erum svolítið að súpa seyðið af því núna.